Fréttir Hafnaði kröfu ríkisins um að flugskýli yrði flutt af Akureyrarflugvelli Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu íslenska ríkisins um að eigandi flugskýlis á lóð Akureyrarflugvallar yrði borinn af lóðinni. Innlent 23.11.2006 15:25 Fangelsi fyrir hatursraus Breskur maður hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hrækja framan í múslimakonu, og svívirða trú hennar með því að líkja henni við hryðjuverk. Erlent 23.11.2006 15:14 Stofnfundur samráðsvettvangs trúfélaga á morgun Samráðsvettvangur trúfélaga heldur stofnfund sinn á morgun í Tjarnarsal Ráðhússins. Að vettvangnum standa þrettán trúfélög og er markmiðið að stuðla að umburðarlyndi og virðingu milli fólks af ólíkum lífsviðhorfum, trúarhópum og trúarbrögðum og standa vörð um trúfrelsi og önnur mannréttindi. Innlent 23.11.2006 14:56 Rúmlega 140 fórust í árásinni Tala látinna í sprengjuárásunum í Bagdad í dag er komin upp í rúmlega 140. Á þriðja hundrað eru særðir, sumir lífshættulega. Þetta er eitthvert mesta blóðbað sem orðið hefur í svona árásum í Íraksstríðinu frá upphafi. Erlent 23.11.2006 14:51 Félagsmálanefnd fjallar um búsetu fólks í atvinnuhúsnæði Félagsmálanefnd Alþingis hefur nú til umfjöllunar hvort hægt sé að breyta lögum í tengslum við búsetu fólks í atvinnuhúsnæði. Þetta kom fram í máli Dagnýjar Jónsdóttur, formanns nefndarinnar, á Alþingi í dag. Innlent 23.11.2006 14:41 Eltast við þjóðarmorðingja í Rúanda Franskur dómari hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur níu embættismönnum í Rúanda sem eru grunaðir um að hafa skipulagt morðið á forseta landsins árið 1994. Dauði forsetans var kveikjan að þjóðarmorðinu sem framið var í landinu. Erlent 23.11.2006 14:40 Dularfulla löggan Þýsku lögregluþjónarnir héldu að þá væri að dreyma, þegar vel merktur amerískur lögreglubíll renndi fram úr þeim á hraðbrautinni. Við stýrið sat amerískur lögregluþjónn, með kaskeyti og Smith&Wesson skammbyssu. Erlent 23.11.2006 14:09 Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar stofnuð Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar var í dag formlega stofnuð við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Með henni á að leitast við að efla og skapa sóknarfæri til handa rétthöfum tónlistar og auka möguleika íslenskra fyrirtækja og einstaklinga í tónlistarútrás og í að ná árangri í alþjóðlegum viðskiptum á þessu sviði, eins og segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Innlent 23.11.2006 14:07 Þrjár bílsprengjur í einu Erlent 23.11.2006 13:51
303 304 305 306 307 308 309 310 311 … 334 ›
Hafnaði kröfu ríkisins um að flugskýli yrði flutt af Akureyrarflugvelli Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu íslenska ríkisins um að eigandi flugskýlis á lóð Akureyrarflugvallar yrði borinn af lóðinni. Innlent 23.11.2006 15:25
Fangelsi fyrir hatursraus Breskur maður hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hrækja framan í múslimakonu, og svívirða trú hennar með því að líkja henni við hryðjuverk. Erlent 23.11.2006 15:14
Stofnfundur samráðsvettvangs trúfélaga á morgun Samráðsvettvangur trúfélaga heldur stofnfund sinn á morgun í Tjarnarsal Ráðhússins. Að vettvangnum standa þrettán trúfélög og er markmiðið að stuðla að umburðarlyndi og virðingu milli fólks af ólíkum lífsviðhorfum, trúarhópum og trúarbrögðum og standa vörð um trúfrelsi og önnur mannréttindi. Innlent 23.11.2006 14:56
Rúmlega 140 fórust í árásinni Tala látinna í sprengjuárásunum í Bagdad í dag er komin upp í rúmlega 140. Á þriðja hundrað eru særðir, sumir lífshættulega. Þetta er eitthvert mesta blóðbað sem orðið hefur í svona árásum í Íraksstríðinu frá upphafi. Erlent 23.11.2006 14:51
Félagsmálanefnd fjallar um búsetu fólks í atvinnuhúsnæði Félagsmálanefnd Alþingis hefur nú til umfjöllunar hvort hægt sé að breyta lögum í tengslum við búsetu fólks í atvinnuhúsnæði. Þetta kom fram í máli Dagnýjar Jónsdóttur, formanns nefndarinnar, á Alþingi í dag. Innlent 23.11.2006 14:41
Eltast við þjóðarmorðingja í Rúanda Franskur dómari hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur níu embættismönnum í Rúanda sem eru grunaðir um að hafa skipulagt morðið á forseta landsins árið 1994. Dauði forsetans var kveikjan að þjóðarmorðinu sem framið var í landinu. Erlent 23.11.2006 14:40
Dularfulla löggan Þýsku lögregluþjónarnir héldu að þá væri að dreyma, þegar vel merktur amerískur lögreglubíll renndi fram úr þeim á hraðbrautinni. Við stýrið sat amerískur lögregluþjónn, með kaskeyti og Smith&Wesson skammbyssu. Erlent 23.11.2006 14:09
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar stofnuð Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar var í dag formlega stofnuð við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Með henni á að leitast við að efla og skapa sóknarfæri til handa rétthöfum tónlistar og auka möguleika íslenskra fyrirtækja og einstaklinga í tónlistarútrás og í að ná árangri í alþjóðlegum viðskiptum á þessu sviði, eins og segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Innlent 23.11.2006 14:07
Landsvirkjun styrkir Ómar Landsvirkjun ætlar að styrkja verkefni Ómars Ragnarssonar, Örkina, um fjórar milljónir króna. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, lýsti þessu yfir í opnum fundi í morgun. Ómar óskaði eftir því að Landsvirkjun styrkti verkefni hans en Ómar hefur verið að kvikmynda myndun Hálslóns. Innlent 23.11.2006 13:45
Orkumál í myrkri Það varð nokkur þögn þegar ljósin slokknuðu í Brussel, á enn einum ráðherrafundi Evrópusambandsins, í dag. Eftir nokkurt þóf var ákveðið að halda fundinum áfram, við kertaljós. Erlent 23.11.2006 13:43
Flugvél lenti í Marseille vegna sprengjuhótunar Flugvél á leið frá París til Fílabeinsstrandarinnar var skipað að lenda í Marseilli fyrr í dag vegna tilkynningar um að sprengja væri um borð. Vélin lenti heilu og höldnu í Marseille og farþegar fóru frá borði en sprengjusveit leitar nú að hugsanlegri sprengju. Erlent 23.11.2006 13:19
Töluvert tjón í innbroti hjá Bræðrunum Ormsson Töluvert tjón varð í raftækjaverslun Bræðranna Ormsson í Síðumúla í nótt þegar þjófur eða þjófar réðust þar inn og höfðu á brott með sér tvö dýr sjónvarpstæki. Innlent 23.11.2006 12:21
Livedoor selur fjármálaarm sinn Japanska netfyrirtækið Livedoor ætlar að selja fjármálaarm fyrirtækisins fyrir 17,6 milljarða jena eða 10,6 milljarða krónur til fjárfestingafélagsins Advantage Partners. Þessi hluti fyrirtækisins hefur fram til þessa verið peningamaskína Livedoor en þaðan koma um 80 prósent af tekjum fyrirtækisins. Viðskipti erlent 23.11.2006 13:08
Nær allur afgangur fjárlaga fari til elli- og örorkulífeyrisþega Stjórnarandstaðan leggur til að nær allur áætlaður tekjuafgangur á fjárlögum næsta árs, eða ríflega sjö milljarðar króna, fari til að bæta stöðu elli - og örorkulífeyrisþega. Talsmenn stjórnarandstöðunnar segja tillögurnar skref í áttina að samræmdum málflutningi hennar fyrir kosningarnar í vor. Innlent 23.11.2006 13:02
Þriggja daga þjóðarsorg vegna námuslyss Nú er orðið ljóst að enginn komst lífs af þegar gassprenging varð í pólskri námu í fyrrakvöld. Búið er að finna lík þeirra tuttugu og þriggja námumanna sem fóru þangað niður. Erlent 23.11.2006 12:27
Sýknaður af ákæru um naugðun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað karlmann af ákæru um naugðun en honum var gefið að sök að hafa þröngvað ungri stúlku til samræðis við sig þegar þau voru saman í bíl. Atvikið átti sér stað í fyrrasumar en stúlkan lagði ekki fram kæru í málinu fyrr en tæpu ári síðar. Innlent 23.11.2006 12:18
Stefnt að samruna Air France KLM og Alitalia Jean-Cyril Spinetta, forstjóri fransk-hollenska flugfélagsins Air France KLM, greindi frá því í dag að flugfélagið ætti í viðræðum um hugsanlegan samruna við ítalska flugfélagið Alitalia. Samruni flugfélaganna hefur verið á áætlun í langan tíma, að hans sögn. Viðskipti erlent 23.11.2006 12:17
Vantar peninga svo hægt sé að opna skíðasvæðið Skortur á fjármagni kemur í veg fyrir að hægt sé að opna skíðasvæði Ísfirðinga og verður það að öllum líkindum ekki opnað fyrr en eftir áramót. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá þessu en nægur snjór er kominn í Skutulsfjörð svo hægt sé að hefja skíðaiðkun. Innlent 23.11.2006 11:46
Glitnir spáir 7 prósenta verðbólgu Greiningardeild Glitnis segir útlit fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,1 prósent á milli nóvember og desember. Gangi spáin eftir lækkar verðbólga úr 7,3 prósentum í 7,0 prósent í desember. Viðskipti innlent 23.11.2006 11:30
Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir vexti sennilega verða hækkaða Stýrivextir Seðlabanka Íslands verða sennilega hækkaðir í næsta mánuði. Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, sagði í morgun í viðtali við fréttastofu Bloomberg að vísbendingar séu um að bankinn þyrfti að hækka vexti sína til að ná markmiði um 2,5% verðbólgu innan ásættanlegs tíma. Frá þessu er sagt í Morgunkorni Glitnis. Innlent 23.11.2006 11:26
700 þúsund króna sekt fyrir illa meðferð á hrossum Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær karlmann til greiðslu 700 þúsund króna sektar vegna illrar meðferðar á hrossum. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa síðla árs 2005 og í janúar og febrúar 2006, vanrækt gróflega aðbúnað, umhirðu og fóðrun á ellefu hrossum sem voru í hans umsjá en fjórum þeirra þurfti að lóga vegna þess hve horuð þau voru. Innlent 23.11.2006 11:19
Methagnaður hjá Air France á öðrum ársfjórðungi Stærsta flugfélag Evrópu, Air France-KLM, skilaði methagnaði á öðrum ársfjórðungi þessa rekstrarárs, eða sem nemur um 28 milljörðum íslenskra króna. Annar ársfjórðungur í rekstrarári félagsins nær frá júlí til september en hagnaðurinn á því tímabili í fyrra var um 22 milljarðar sem er um fjórðungi minni hagnaður en í ár. Erlent 23.11.2006 10:50
Rússar hóta Evrópusambandinu Rússar hafa hótað að banna allan innflutning á kjöti frá ríkjum Evrópusambandsins frá og með fyrsta janúar næstkomandi, þegar Rúmenía og Búlgaría fá aðild að sambandinu. Talsmaður ESB segir að Rússar fari offari með þessari hótun sinni, og hún stefni í hættu árangri á fundi sambandsins og Rússlands í Helsinki á morgun. Erlent 23.11.2006 10:49
Komið í veg fyrir áfengiskaup Evrópudómstóllinn hefur úrskurðað að Bretar, sem kaupa áfengi og tóbak í öðrum löndum á netinu og láta senda sér heim, verði að greiða tolla og gjöld af vörunum. Einhverjum Bretum kann að þykja þetta súrt í broti enda hafa margir keypt vörurnar í öðrum löndum þar sem tollar eru lægri en í Bretlandi og látið senda sér. Viðskipti erlent 23.11.2006 10:24
Kristrún Lind nýr aðstoðarmaður samgönguráðherra Kristrún Lind Birgisdóttir, aðstoðarskólastjóri Lindaskóla í Kópavogi, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Hefur hún störf í ráðuneytinu eftir næstu helgi. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins. Innlent 23.11.2006 10:11
Líðan Litvinenkos versnar eftir hjartaáfall í nótt Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnari hjá KGB sem talið er að eitrað hafi verið fyrir, fékk hjartaáfall í nótt og ástand hans er sagt mjög alvarlegt. Litvinenko hefur dvalið á University College sjúkrahúsinu í Lundúnum frá því í byrjun mánaðarins en nýjustu fregnir herma að þrír hlutir hafi fundist í meltingarvegi hans. Erlent 23.11.2006 10:01
Vilja 900 þúsund króna frítekjumark hjá elli- og örorkulífeyrisþegum Stjórnarandstaðan leggur fram sameiginlegar tillögur við breytingar á fjárlögum við aðra umræðu um þau sem varðar lífeyrisgreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega. Gert er ráð fyrir að greiðslur til þeirra hækki um samtals sjö milljarða króna samkvæmt tillögunum en þær voru kynntar á sameiginlegum fundi stjórnarandstöðunnar í morgun. Innlent 23.11.2006 10:40
Kerkorian selur í General Motors Bandaríski auðkýfingurinn Kirk Kerkorian er sagður ætla að minnka við sig í bandaríska bílaframleiðandanum General Motors. Kerkorian á 9,9 prósenta hlut í fyrirtækinu og einn stærsti einstaki hluthafi þess. Breska ríkisútvarpið segir Kerkorian ætla að selja 14 milljón hluti í félaginu og fara niður í 7,4 prósenta eignarhlut. Viðskipti erlent 23.11.2006 09:56
Tíbeti kveikti í sér Tíbeskur maður kveikti í sjálfum sér fyrir utan hótelið sem Hu Jintao, forseti Kína dvelur á, í heimsókn sinni til Indlands. Erlent 23.11.2006 09:48