Engar viðræður um sameiningu Forstjóri Icelandair segir sameiningu íslensku flugfélaganna ekki í kortunum og bankastjóri Íslandsbanka segist ekki eiga í viðræðum við félagið um fjármögnun. Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs telur skort á upplýsingum geta valdið óróa á markaði en stjórnendur WOW segja tilkynningar að vænta í lok vikunnar. 12.9.2018 19:30
Málamiðlun tveggja gjörólíkra flokka "Þetta er málamiðlun tveggja gjörólíkra flokka sem vilja stefna í sitt hvora áttina," segir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar um nýtt fjárlagafrumvarp og bætir við að fátt komi þar á óvart 11.9.2018 20:30
Stefnir í hörð átök sé þetta niðurstaðan "Ég held að fjárlögin séu ekki gerð með þeim hætti að þau séu endanleg og ég er bjartsýnn á að við náum róttakari breytingum í gegn þegar við hefjum viðræður eftir að okkar kröfugerð er tilbúin," segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, um nýtt fjárlagafrumvarp. 11.9.2018 18:19
Áfengisgjöldin þungur baggi á litlum brugghúsum Fjöldi bjórgerða á Íslandi hefur ríflega þrefaldast á liðnum árum en bjórgerðarmenn segja lítil fyrirtæki eiga erfitt uppdráttar þar sem stór hluti veltunnar fari í áfengisgjöld. Þeir telja að lækka megi álögur á nýsköpunarfyrirtæki. 10.9.2018 20:00
Hafa veitt 160 viðtöl vegna sjálfsvíga á hálfu ári Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt allar tillögur sem komu frá starfshópi sem vann aðgerðaráætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi og verða 25 milljónir króna lagðar strax í verkefnið. 10.9.2018 19:45
25 milljónir í forvarnir gegn sjálfsvígum Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um að leggja strax til 25 milljónir króna í ýmis verkefni er miða að því að fækka sjálfsvígum á Íslandi. 10.9.2018 16:29
Bann við blóðgjöf samkynhneigðra endurskoðað Til skoðunar er að breyta reglum sem banna samkynhneigðum karlmönnum að gefa blóð á Íslandi. Málið er í ferli hjá heilbrigðisráðuneytinu og er niðurstaða væntanleg á næstu vikum eða mánuðum. 2.9.2018 14:00
Krónan og íbúðir í stað N1 við Ægisíðu Bensínstöðvar verðar færðar að Krónuverslunum og Krónuverslanir verða opnaðar við N1 bensínstöðvar eftir samruna Festis og N1 sem gengur í gegn á morgun. Forstjóri félagsins telur framtíðina felast í samþættingu reksturs til að hægt sé að mæta erlendri samkeppni. 30.8.2018 20:00
Stúlkan dregin á bak við hól á leikvelli Ráðist var á tvær ungar stúlkur í Garðabæ í gær og eru nú fimm sambærileg tilvik til rannsóknar. Að sögn lögreglu er málið í algjörum forgangi og unnið er út frá því að sami maður sé að verki. 29.8.2018 12:30
„Ekkert sem gefur til kynna að hér sé gangbraut“ Foreldrar stúlku sem varð fyrir bíl á gangbraut í Grafarholti gagnrýna skort á merkingum við götuna. Engin leið sé fyrir ökumenn að átta sig á því að gangandi vegfarendur eigi leið þar yfir. 24.8.2018 20:00