Verkjalyf í verslanir: Fín hugmynd eða „alger óþarfi“? Rætt var við borgarbúa á förnum vegi í Íslandi í dag og þeir spurðir hvernig þeim hugnaðist sú tillaga að leyfa lausasölulyf í almennum verslunum, líkt og lagt er til í nýlegu frumvarpi á Alþingi. 1.2.2023 08:46
„Eins og að setja startvökva á gamla díselvél“ Sunna Dís Másdóttir rithöfundur var sigursæl í liðinni viku eftir að hún hlaut hinn svonefnda Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir frumsamið ljóð. Tekið var hús á henni í Gröndalshúsi í Grjótaþorpinu í miðbæ Reykjavíkur, þar sem rithöfundar ýmsir hafa aðsetur í góðu yfirlæti. Innslagið má sjá í Íslandi í dag hér að ofan og hefst á níundu mínútu. 30.1.2023 08:46
Talið líklegt að mjög ósiðlegt rapplag hafi valdið upplausn á dvalarheimilum Í Íslandi í dag var lofi ausið yfir skrif Grétars Þórs Sigurðssonar blaðamanns á Twitter að undanförnu, einkum fyrir myndbrot sem hann tók upp af Rás eitt og birti á samfélagsmiðlinum. 27.1.2023 09:01
Mótstaða við breytingar ekki vegna eigin hagsmuna heldur faglegs mats Inga Lilý Gunnarsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, segir mótstöðu Lyfjafræðingafélags Íslands við frumvarp um að heimila lausasölu lyfja í almennum verslunum ekki sprottna út frá hagsmunum lyfjafræðinga, heldur faglegum forsendum. 26.1.2023 08:45
Renndi sér niður af þaki framhaldsskólans Sýnt var frá því í Íslandi í dag þegar breski snjóbrettakappinn Sparrow Knox gerði atlögu að því að renna sér niður handrið á tiltölulega nýrri skólabyggingu Framhaldsskólans í Mosfellsbæ á mánudaginn var. Hefst á mínútu tólf í innslaginu hér að ofan. 24.1.2023 08:57
Gervigreind samdi kynningu fyrir Ísland í dag Fyrir forvitnissakir var gervigreind fengin til að semja stutta kynningu á miðvikudagsþætti Íslands í dag í vikunni. Forritið ChatGPT á vegum bandaríska fyrirtækisins OpenAI hefur vakið mikla athygli notenda, einkum fyrir glettilega færni þess við að setja saman texta. 22.1.2023 13:35
Draumurinn rættist og hluti af honum eru svakaleg áhættuatriði „Þetta var bara brjálaður draumur sem rættist allt í einu. Maður eiginlega fattar það ekki enn þá. Maður er að gera það sama en einhvern veginn lifir á því,“ segir Eiríkur Helgason snjóbrettakappi, sem ásamt bróður sínum Halldóri rekur í dag nokkuð umsvifamikið snjóbrettafyrirtæki, Lobster Snowboarding. 20.1.2023 09:01
„Innræting er ekki orð sem við notum“ Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands segir í Íslandi í dag: „Ef ég væri Sigmundur Davíð myndi mér ekki þykja þægilegt að vera settur á sömu glæru og þessir þarna.“ 19.1.2023 09:01
Óheppilegt myndband virðist vera að leiða til afsagnar ráðherrans Christine Lambrecht, varnarmálaráðherra Þýskalands, hefur ekki átt sjö dagana sæla frá því að hún birti það sem verður að heita óheppileg áramótakveðja til Þjóðverja á gamlársdag. Sumir hafa gengið svo langt að óska eftir afsögn hennar og nú herma þýskir miðlar að af henni verði. Lambrecht sé á leið úr þýsku stjórninni. 14.1.2023 14:22
„Það er svo auðvelt að vera aumingi í dag“ Að hætta í nikótínpúðum, borða meira, fara í nokkra göngutúra - og ekki vera aumingi; þetta er á meðal þess sem Guðmundur Emil Jóhannsson einkaþjálfari, betur þekktur sem Gummi Emil, leggur til að fólk tileinki sér á nýju líkamsræktarári. Hann hefur áhyggjur af heilsu fólks sem hangir á samfélagsmiðlum daginn inn og út. 13.1.2023 09:01