Hafði áður hótað því að skjóta samstarfsfélaga sína Maðurinn sem skaut níu manns til bana áður en hann framdi sjálfsvíg á lestamiðstöð San Jose í Kaliforníu í gær, hafði áður talað um það að skjóta samstarfsfólk sitt. Þetta segir fyrrverandi eiginkona hans en hún segir árásarmanninn oft hafa verið mjög reiðan í garð vinnu sinnar og samstarfsfólks. 27.5.2021 08:52
Segist hafa heyrt Boris tala um að leyfa líkum að hrannast upp Dominic Cummings, fyrrverandi ráðgjafi Boris Johnson, segist hafa heyrt forsætisráðherrann segja að hann vildi frekar sjá þúsundir líka hrannast upp á Bretlandi, frekar en að herða sóttvarnaaðgerðir. Sjálfur hefur Johnson neitað því að hafa látið þessi orð frá sér. 26.5.2021 15:35
Fengu ekki að fljúga inn í lofthelgi Frakklands Flugvél Belavia, flugfélags frá Hvíta-Rússlandi, sem átti að lenda í Barcelona í dag var snúið aftur til Minsk. Það var gert eftir að flugumferðarstjórar í Póllandi tilkynntu flugstjóra flugvélarinnar að hann fengi ekki leyfi til að fljúga inn í lofthelgi Frakklands. 26.5.2021 14:58
Amazon kaupir MGM og James Bond Amazon hefur gert samning um að kaupa kvikmyndaver og kvikmynda- og þáttasafn fyrirtækisins MGM. Þar með er njósnarinn frægi, James Bond, kominn í eigu auðjöfursins Jeff Bezos. MGM kostar Amazon 8,45 milljarða dala, sem samsvarar um einni billjón króna. 26.5.2021 14:10
Zuma segist saklaus af spillingu Jacob Zuma, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, lýsti í dag yfir saklausan af spillingu. Réttarhöld gegn honum hófust í morgun en hann hafur verið ákærður fyrir spillingu og fjársvik í sextán liðum fyrir meint brot sem spanna meira en tvo áratugi. 26.5.2021 12:57
Assad gefur lítið fyrir gagnrýni vesturlanda á kosningar Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, segir gagnrýni vestrænna ríkja á kosningar í Sýrlandi vera marklausa. Bandaríkin og Evrópusambandið hafa, auk annarra, gagnrýnt framkvæmd kosninga í Sýrlandi og segja þær hvorki frjálsar né sanngjarnar. 26.5.2021 12:09
Segir Boris hafa viljað láta smita sig í beinni Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, taldi Covid-19 vera litla ógn í upphafi faraldursins. Johnson er sagður hafa viljað vera smitaður vísvitandi af Covid-19 í beinni útsendingu, til að sýna að sjúkdómurinn væri ekki hættulegur. 26.5.2021 10:15
Gaf í skyn að flugvélin hefði getað verið skotin niður Alexander Lúkasjenka, forseti Hvíta-Rússlands, gaf í skyn í morgun að hann hefði getað látið skjóta niður farþegaþotu RyanAir í lofthelgi ríkisins um helgina. Áhöfn flugvélarinnar var þvinguð til að lenda í Minsk þar sem tveir farþegar hennar voru handteknir. 26.5.2021 09:40
Forseti og forsætisráðherra Malí í haldi hersins Her Malí hefur vikið forseta og forsætisráðherra ríkisins úr embættum og tekið völdin. Það er tíu mánuðum eftir að herinn tók síðast völd í Malí með því að velta forsetanum Ibrahim Boubacar Keïta úr sessi. 25.5.2021 16:01
Biden og Pútín funda í Genf Joe Biden og Vladimír Pútín, forsetar Bandaríkjanna og Rússlands, munu funda í Genf í næsta mánuði. Verður það fyrsti fundur þeirra tveggja frá því Biden tók við embætti en spenna milli ríkjanna hefur aukist á undanförnum mánuðum. 25.5.2021 14:31