Höfða enn eitt málið gegn Google og að þessu sinni vegna Google Play Ríkissaksóknarar 36 ríkja Bandaríkjanna, auk saksóknara Washington DC, hafa tekið höndum saman og höfðað samkeppnismál gegn Google. Þeir saka fyrirtækið um að brjóta samkeppnislög varðandi Google Play, þar sem fólk sækir hin ýmsu forrit í síma sína og önnur tæki. 8.7.2021 14:06
Pólitísk framtíð Haítí í óvissu: Tveir menn telja sig forsætisráðherra Pólitísk framtíð Haítí er í töluverðri óvissu eftir að Jovenel Moise, forseti ríkisins, var myrtur af hópi þungvopnaðra manna sem réðust á heimili hans í Port-au-Prince, aðfaranótt miðvikudags. Tveir menn segjast vera forsætisráðherra ríkisins. 8.7.2021 12:31
Engin bóluefni í Norður-Kóreu, þrátt fyrir ítrekuð boð Rússar hafa boðist til að senda skammta af bóluefninu Spútnik 5 til Norður-Kóreu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt boð berst til Norður-Kóreu en Rússar hafa til að mynda boðið einræðisríkinu bóluefni áður. 8.7.2021 11:01
Fjórar milljónir dánar: Yfirmaður WHO skýtur fast á ríkari þjóðir heims Skráð dauðsföll vegna Covid-19 eru nú komin yfir fjórar milljónir. Rúmt eitt og hálft ár er síðan faraldur nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, hófst í Kína. Þessi áfangi, ef svo má kalla, náðist í gær en yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og sérfræðingar segja raunverulegu töluna vera hærri. 8.7.2021 09:04
Lýsa yfir neyðarástandi í Haítí og kalla eftir ró Starfandi forsætisráðherra Haítí hefur lýst yfir neyðarástandi og kallar eftir ró meðal íbúa í kjölfar þess að forseti landsins var skotinn til bana á heimili sínu í nótt. Morð Jovenel Moise, forseta Haítí, hefur verið fordæmt af öðrum þjóðarleiðtogum. Samhliða því að kallað hefur verið eftir ró og friði á eyjunni. 7.7.2021 15:31
Vilja skjóta 23 eldflaugum á smástirni Kínverskir vísindamenn vilja senda 23 Long March 5 eldflaugar, þær öflugustu sem framleiddar eru í Kína, til að kanna hvort hægt sé að nota þær til að breyta stefnu smástirna. Markmið vísindamannanna er að komast að því hvort hægt væri að bjarga jörðinni með þessum hætti, ef smástirni stefndi á plánetuna okkar. 7.7.2021 14:03
Hraunflæðið séð úr geimnum: Eldgosið í Fagradalsfjalli í forgrunni hjá BBC Blaðamaður Breska ríkisútvarpsins (BBC) birti í morgun grein á vef miðilsins þar sem fjallað er um gervihnetti, gervihnattamyndir og sérstaklega ratsjárgervihnetti sem notaðir eru til að vakta hreyfingar jarðarinnar, jökla og annarra jarðfræðilegra fyrirbæra. 7.7.2021 13:00
Forseti Haítí skotinn til bana á heimili sínu Jovenel Moïse, forseti Haítí, er sagður hafa verið myrtur í árás í nótt. Hópur vopnaðra manna er sagður hafa rutt sér leið inn á heimili hans í Port-au-Prince í nótt og skotið forsetann til bana og sært Martine Moise, eiginkonu hans, sem sé nú á sjúkrahúsi. 7.7.2021 10:06
Litlar sem engar líkur á að finna fólk á lífi Líkamsleifar átta manns fundust í gær í rústum fjölbýlishúss sem hrundi nýverið í bænum Surfside í Flórída. Enn er rúmlega hundrað manns saknað og ráðamenn sem stýra björgunarstörfum í rústunum virðast telja litlar líkur á því að finna fólk á lífi í rústunum. 7.7.2021 09:05
Ferðaþjónustan að lifna við: „Það eru allir eins og beljur á vorin“ Ferðaþjónustan á Íslandi er að lifna við þó enn séu tiltölulega fáir ferðamenn á ferð og flugi um landið. Pétur Gauti Valgeirsson, fyrrverandi formaður Leiðsagnar stéttarfélags leiðsögumanna, segir umsvifin aukast mun hraðar en hann hafi talið. 7.7.2021 06:00