Álaborg staðfestir komu Arons Aron Pálmarsson hefur samið við Danmerkurmeistara Álaborgar og kemur til liðsins í sumar frá Barcelona. 20.4.2021 09:01
Curry með ótrúlega skotsýningu í sigri á toppliðinu í austrinu Stephen Curry og Nikola Jokic áttu stórkostlega leiki fyrir lið sín, Golden State Warriors og Denver Nuggets, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. 20.4.2021 08:31
Forseti ofurdeildarinnar: „Erum að gera þetta til að bjarga fótboltanum“ Florentino Pérez, forseti ofurdeildarinnar, segir að tilgangurinn með henni sé að bjarga fótboltanum. Hann segir engar líkur á að leikmönnum sem leika í ofurdeildinni verði bannað að spila með landsliðum sínum eins og Aleksander Ceferin, forseti UEFA, hefur hótað. 20.4.2021 08:01
Neville um Klopp: „Veit ekki af hverju hann er með mig á heilanum“ Jürgen Klopp gagnrýndi Gary Neville fyrir ummæli hans um Liverpool og ofurdeildina eftir jafnteflið gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í gær. Neville svaraði með því að segja að Klopp væri með hann á heilanum. 20.4.2021 07:30
NBA dagsins: Ætlaði að fagna uppi á borði eins og Wade eftir fyrstu sigurkörfuna Bam Adebayo skoraði sína fyrstu sigurkörfu á NBA-ferlinum þegar hann tryggði Miami Heat sigur á Brooklyn Nets, 109-107, í gærkvöldi. 19.4.2021 15:00
Forseti UEFA um Woodward og Agnelli: „Ég var lögmaður glæpamanna en hef aldrei séð fólk haga sér svona“ Aleksander Ceferin, forseti UEFA, fór vægast sagt hörðum orðum um Andrea Agnelli, forseta Juventus, og Ed Woodward, stjórnarformann Manchester United, á blaðamannafundi í dag og kallaði þá snáka og lygara. 19.4.2021 14:00
Bayern, Dortmund og Porto vildu ekki vera með í ofurdeildinni Bayern München og Borussia Dortmund lögðust gegn stofnun ofurdeildarinnar. Þetta segir Hans-Joachim Watzke, stjórnarformaður Dortmund. 19.4.2021 13:31
UEFA ætlar að banna leikmönnum í ofurdeildinni að spila með landsliðum Aleksandar Ceferin, forseti UEFA, ræddi um ofurdeild Evrópu á blaðamannafundi í dag. Þar sagði hann að leikmönnum sem myndu spila í deildinni yrði meina að taka þátt á HM og EM. 19.4.2021 12:45
„Get ekki staðið hljóður hjá þegar hinir ríku ræna leiknum frá fólkinu“ Ander Herrera, leikmaður Paris Saint-Germain, lagði orð í belg á Twitter í dag um ofurdeildina svokölluðu. Hann segist ekki geta þagað þegar hinir ríku séu að ræna fótboltanum af almenningi. 19.4.2021 11:30
Fær Gylfi óvænt tækifæri í Meistaradeildinni vegna stofnunar ofurdeildarinnar? Ef ensku félögunum sem eru stofnmeðlimir nýju ofurdeildarinnar verður sparkað út úr Meistaradeildinni gætu Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton fengið tækifæri í keppninni á næsta tímabili. 19.4.2021 10:30