AIK segir KSÍ ekki hafa látið sig vita af brotum Kolbeins Sænska úrvalsdeildarfélagið AIK segist ekki hafa fengið upplýsingar frá KSÍ um ofbeldisbrot Kolbeins Sigþórssonar þegar það samdi við leikmanninn fyrir rúmum tveimur árum. 31.8.2021 14:27
Myndasyrpa: Æft í skugga atburða síðustu daga Íslenska karlalandsliðið í fótbolta æfði í annað sinn á Laugardalsvelli í dag fyrir leikina sem framundan eru í undankeppni HM 2022. 31.8.2021 13:47
Garðar með ákall til fótboltastráka: „Þýðir ekki bara að snyrta toppinn af trénu“ Markaskorarinn Garðar Gunnlaugsson segir að meira þurfi til en nýja stjórn hjá KSÍ til að uppræta eitraða menningu fótboltans. Hann biðlar til fótboltastráka að beita sér í baráttunni fyrir heilbrigðara umhverfi innan fótboltans þar sem kvenfyrirlitning og mismunum gagnvart minnihlutahópum heyri sögunni til. 31.8.2021 10:00
Krefjast þess að KSÍ boði tafarlaust til aukaþings: „Orðspor íslenskrar knattspyrnu er stórlega skaðað“ Knattspyrnudeildir níu félaga hafa krafist þess að KSÍ boði tafarlaust til aukaþings. 30.8.2021 15:26
Spezia kaupir Mikael en lánar hann aftur til SPAL Ítalska úrvalsdeildarfélagið Spezia hefur fest kaup á íslenska landsliðsmanninum Mikael Agli Ellertssyni frá SPAL. Hann leikur þó sem lánsmaður með SPAL, sem er í ítölsku B-deildinni, út tímabilið. 30.8.2021 14:13
ÍTF krefst þess að framkvæmdastjóri og stjórn KSÍ víki Stjórn Íslensks toppfótbolta, ÍTF, krefst þess að Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, og stjórn sambandsins stígi frá borði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum. 30.8.2021 12:46
„Þarf að hreinsa meira til en að láta Guðna einan bera þennan kross“ Óánægja er innan fótboltahreyfingarinnar á Íslandi með niðurstöðu maraþonfundar KSÍ um helgina. Að mati ÍTF, hagsmunasamtaka félaganna í efstu tveimur deildum karla og kvenna, þarf að gera breytingar á stjórn KSÍ. 30.8.2021 11:36
Albert kom inn á í sigri á gamla liðinu sínu Albert Guðmundsson kom inn á sem varmaaður þegar AZ Alkmaar sigraði Heerenveen, 1-3, á útivelli í hollensku úrvalsdeildinni í dag. 29.8.2021 16:36
Glódís lék sinn fyrsta leik fyrir Bayern í átta marka sigri Glódís Perla Viggósdóttir þreytti frumraun sína fyrir Bayern München þegar liðið rúllaði yfir Werder Bremen, 8-0, í 1. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í dag. 29.8.2021 15:50
Ari og Ísak fara með gott veganesti í landsleikina Ari Freyr Skúlason og Ísak Bergmann Jóhannesson léku báðir allan leikinn fyrir Norrköping sem vann 3-0 sigur á Östersund í sænsku úrvalsdeildinni í dag. 29.8.2021 15:06