Dagur er risinn í Garðabænum Eftir fremur rólegt fyrsta tímabil hjá Stjörnunni hefur Dagur Gautason byrjað þetta tímabil af miklum krafti og segja má að nýr dagur sé upprisinn í Garðabænum. 26.10.2021 15:00
Fannst að United hefði getað fengið fimm rauð gegn Liverpool Liverpool-mönnum fannst Anthony Taylor aumka sig yfir leikmönnum Manchester United í leik liðanna á Old Trafford í fyrradag. Hann hefði getað rekið fleiri leikmenn United en Paul Pogba út af. 26.10.2021 14:31
Ástæðurnar fyrir lélegri pressu United-liðsins Ole Gunnar Solskjær leggur litla áhersla á að æfa pressu á æfingum Manchester United. Þetta kemur eflaust engum sem horfir reglulega á liðið á óvart. 26.10.2021 11:31
Icardi-sápuóperan heldur áfram: Sundur, saman, aftur sundur og nú aftur saman Sápuóperan með Icardi-hjónunum í aðalhlutverki heldur áfram. Síðustu daga hafa þau hætt saman og tekið saman á víxl og allt fyrir opnum tjöldum. Miðað við nýjustu fréttir eru þau enn hjón. 26.10.2021 11:01
Mjög líklegt að Solskjær stýri United gegn Tottenham Ole Gunnar Solskjær verður áfram knattspyrnustjóri Manchester United, allavega um sinn, og stýrir liðinu gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Leikmenn United hafa þó margir hverjir misst trúna á honum. 26.10.2021 08:00
Bulls ekki byrjað betur síðan Jordan lék með liðinu Fara þarf aftur til tíma Michaels Jordan til að finna jafngóða byrjun á tímabili hjá Chicago Bulls í NBA-deildinni og núna. 26.10.2021 07:30
Segir að Pogba eigi aldrei aftur að spila fyrir United Paul Scholes segir að Paul Pogba eigi aldrei aftur að spila fyrir Manchester United eftir hræðilega innkomu hans í 0-5 tapinu fyrir Liverpool í gær. 25.10.2021 14:01
Eyjakonur fara aftur til Grikklands Aðra umferðina í röð fer ÍBV til Grikklands í Evrópubikar kvenna í handbolta. Dregið var í 3. umferð keppninnar í dag. 25.10.2021 13:41
Scholes með tær dóttur sinnar uppi í sér Stórfurðulegt og fremur óþægilegt myndband sem dóttir Paul Scholes birti á Instagram hefur vakið mikla athygli. 25.10.2021 10:00
Neville heldur að Solskjær verði ekki rekinn Pressan á Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóra Manchester United, eftir tapið stóra fyrir Liverpool verður óbærileg segir Gary Neville. Þrátt fyrir það telur hann að Solskjær verði áfram við stjórnvölinn hjá United. 25.10.2021 08:30