Hundruð létust í flóðum Hunduð létust í flóðum í Baghlan-héraði í norðurhluta Afganistan í dag og er óttast að tala látinna muni hækka. 11.5.2024 18:56
Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Ísraelsher hefur fyrirskipað þúsundum að yfirgefa Rafah en búist er við því að herinn ráðist þangað inn af fullum þunga á næstunni. 11.5.2024 18:05
Vendingar í Eurovision höllinni og forsetakosningar Miklar vendingar hafa verið í Arena höllinni í Malmö í dag þar sem úrslitakvöld Eurovision fer fram í kvöld. Allt virtist ætla að sjóða upp úr eftir að Hollendingum var vikið úr keppni og fjórar þjóðir neituðu að taka þátt í fánaathöfn. Þá er norski stigakynnirinn hættur við að koma fram. 11.5.2024 18:02
Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Lögmaður þriggja kvenna sem vísa á úr landi eftir helgi segir skjóta skökku við að íslensk stjórnvöld ætlist til þess að fórnarlömb mansals stigi fram og segi sögu sína, þegar viðbrögð ríkisins séu þau að handtaka fórnarlömbin og senda þau úr landi. Konurnar segjast allar hafa verið fórnarlömb mansals áður en þær komu hingað til lands. 11.5.2024 11:45
Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Fagstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir að einhverjar vikur geti verið í næsta eldgos á Reykjanesi. Kvika haldi áfram að safnast saman í Svartsengi en reynslan síni að sífellt meiri þrýsting þurfi til að koma af stað öðru kvikuhlaupi. 10.5.2024 20:09
Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Knattspyrnuþjálfari hefur lent í því að fá skilaboð þar sem hann var inntur eftir upplýsingum um stöðu leikmanna fyrir fótboltaleik barna og ungmenna í öðrum flokki en fólkið vildi upplýsingar fyrir veðmál. Hann óttast að börn verði fyrir óþægilegum þrýstingi í æskulýðsstarfi. 10.5.2024 20:01
Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Ísraelsher gerði árás á austurhluta Rafah-borgar í morgun þar sem hundruð þúsunda Palestínumanna hafa undanfarið leitað skjóls. Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í gær að hann myndi stöðva vopnasendingar til Ísrael ef forsætisráðherra landsins fyrirskipar árás inn á Rhafah. 9.5.2024 18:01
Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina er lokið. Eldfjallafræðingur telur líklegt að næsta gos á Reykjanesi verði í Eldvörpum. Það sé langbesti staðurinn til að fá nýtt eldgos því á svæðinu sé mikið flatlendi og langt í mikilvæga innviði. Nýtt eldgos geti hafist hvenær sem er. 9.5.2024 11:47
Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Lögregla hefur ekkert eftirlit með ólöglegum veðmálasíðum hér á landi þrátt fyrir að ríkislögreglustjóri meti sem svo að hætta á peningaþvætti og skattsvikum í gegnum síðurnar sé mikil. Dæmi eru um að íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum. 30.4.2024 21:11
Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Lítið sem ekkert eftirlit er með ólöglegum veðmálasíðum sem auglýsa grimmt hér á landi í trássi við lög. Þetta segir formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn sem sakar stjórnvöld um sinnuleysi. 29.4.2024 20:28