Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 27. maí 2026 20:17 Fuglinn situr á fjórum eggjum. vísir/lýður valberg Mikil spenna ríkir þessa dagana á Alþingi, ekki vegna umræðu um ESB, heldur vegna þess að lítill fugl hefur lagt í mikla hreiðurgerð í stiga þinghússins.
Þingmaðurinn Hildur Sverrisdóttir hefur fylgst náið með fuglinum og birt stöðuuppfærslur um ferðir hans á Facebook. Hreiðrið er staðsett í brunastiga sem liggur út frá matsal Alþingis og er mikið notaður á góðviðrisdögum - en ekki meir. Nú liggur blátt bann við umferð um stigann svo að fuglinn fái næði til að koma ungum sínum til lífs. Forseti Alþingis með skýr skilaboð í matsal þingsins.vísir/elísabet „Við urðum vör við hann fyrir um viku síðan. Forseti Alþingis gaf strax út mjög snaggaralega fyrirskipan um að allt starfsfólk þingsins legði niður störf til þess að búa til þetta skilti hér svo að hún fengi allt það næði sem hún þyrfti,“ segir Hildur. Þingmenn hafa mikinn áhuga á fuglinum.vísir/facebook Fjögur myntugræn egg eru í hreiðrinu og bíða þingmenn í ofvæni eftir að ungar komi í heiminn. „Já ég held að við höfum gott af því hér í þessu húsi að minna okkur á og sameinast um að hlúa að þessum litlu lífum sem eru hér að leita skjóls og það er einn háttvirtur þingmaður sem hafði það að orði að þetta hús væri ekki verra en svo að allavega fuglarnir sækja hingað.“ Þingmaður númer 64 Umræður um ESB hafa undanfarið farið fram í þinginu. Hildur segir erfitt að slá því föstu hvort að fuglinn sé áhugasamur um gang mála. „Nú er ekki gott að segja. Við samt gefum okkur það, vitum ekki alveg í hvora áttina hann aðhyllist. Eigum við ekki að vona að hann sé heimakær og aðhyllist kannski ekki inngöngu í ESB? Sjáum til. En það hefur svo sem verið grínast með að hingað sé kominn 64 þingmaðurinn hverju sem líður.“ Hildi Sverrisdóttur er annt um fuglana.Vísir/Vilhelm Þrastaþing Þá séu þingmenn ekki alveg með það á hreinu af hvaða tegund fuglinn sé og biður Hildur áhorfendur um að leggja þingmönnum lið. „Ekki alveg, við höfum aðeins verið að leita okkur upplýsinga. Okkur sýnist þetta vera annað hvort gráþröstur eða svartþröstur, þannig ég held að við verðum að leita til áhorfenda um aðstoð þess efnis en það er mjög líklegt að þetta sé þröstur, þannig að hér sé um að ræða þrastaþing en ekki hrafnaþing.“
Alþingi Dýr Fuglar Reykjavík Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Sjá meira