Fréttamaður

Bjarki Sigurðsson

Bjarki er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Engar við­varanir

Lægðin sem olli storminum í gær er nú fyrir norðan land og fjarlægist. Engar veðurviðvaranir eru í gildi en veðrið hefur leikið íbúa landsins grátt síðustu daga. 

Neyðar­lending eftir sprengju­hótun

Flugvél Austrian Airlines á leið frá Ísrael til Austurríkis þurfti óvænt að lenda á flugvelli í Búlgaríu eftir sprengjuhótun. Málið er nú til rannsóknar. 

Í símanum undir stýri og hljóp í burtu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mann í gær eða í nótt sem var að nota farsíma undir stýri. Maðurinn stöðvaði bílinn og fór út úr henni en var beðinn um að fara aftur í hana. Hann steig upp í bílinn og ók af stað án þess að lögreglumenn náðu að taka tal af honum. Honum var veitt stutt eftirför áður en hann stoppaði bílinn og hljóp í burtu. 

Klám­fengið spjall­menni Zucker­bergs vekur ugg innan klám­geirans

Áhrifavaldar sem framleiða klámfengið efni á áskriftarmiðlinum Only Fans eru afar ósáttir með nýtt gervigreindarspjallmenni fyrirtækisins Meta. Þeir gagnrýna að fyrirtækið takmarki aðgang notenda að þeirra efni á samfélagsmiðlum Meta en leyfi spjallmenninu að ræða á klámfenginn hátt við notendur. Meta sé að stela af þeim viðskiptavinum. 

Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda. 

Pattra og Brynjar slá sér upp

Pattra Sriyanonge, tískubloggari og markaðsstjóri, og Brynjar Árni Smárason eru nýtt par. Þau hafa reglulega birt myndir af sér saman á samfélagsmiðlum síðustu vikur. 

Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag

Að minnsta kosti tólf hundruð voru handtekin í gær og í nótt í mótmælum og óeirðum víða um Frakkland. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull. Forsætisráðherra Frakklands segir að 150 lögreglumenn hafi slasast í óeirðunum. Íslendingur þurfti að flýja táragas lögreglunnar í Nice. 

„Ég elska Obbu“

Formaður Viðreisnar segist ætla að taka ummæli Jóns Gnarr um forystuleysi innan flokksins til umhugsunar. Það sé þó ósatt að það andi köldu milli hennar og dómsmálaráðherra. Það sé högg fyrir þingflokkinn að missa Jón. 

Vara við „perra­gler­augum“

Evrópska persónuverndarráðið hefur gefið út yfirlýsingu um þær áskoranir sem notkun snjallgleraugna hafa í för með sér fyrir persónuvernd. Gleraugun verða sívinsælli víða um heim og eru gjarnan kölluð „perrugleraugu“ þar sem fólk notar þau í að taka fólk myndbönd af fólki á götum úti án þeirra vitundar og birta á netinu.

Sjá meira