Vara við „perragleraugum“ Evrópska persónuverndarráðið hefur gefið út yfirlýsingu um þær áskoranir sem notkun snjallgleraugna hafa í för með sér fyrir persónuvernd. Gleraugun verða sívinsælli víða um heim og eru gjarnan kölluð „perrugleraugu“ þar sem fólk notar þau í að taka fólk myndbönd af fólki á götum úti án þeirra vitundar og birta á netinu. 17.10.2026 16:31
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Eigandi barnaheimilis í Kína og fimm starfsmenn hafa verið dæmdir í fangelsi eftir að hafa eitrað fyrir yfir tvö hundruð börnum. Eigandinn setti málningu í matinn til að hann myndi líta betur út og börnin vildu frekar borða hann. 17.10.2026 15:30
Kannast ekki við lýsingar Jóns Dómsmálaráðherra segist ekki kannast við það að samband hennar og utanríkisráðherra sé stirt, líkt og Jón Gnarr, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, hélt fram í gær. Það sé áfall fyrir flokkinn og ríkisstjórnina að hann kjósi að ganga úr þingflokknum. 17.10.2026 13:57
Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Lífeyrissjóður verzlunarmanna íhugar að kalla eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á fyrirtækinu. Sjóðurinn er einn tíu lífeyrissjóða sem eiga samanlagt tæplega helming í móðurfélagi Ölgerðarinnar. Brot á samkeppnislögum samræmist ekki stefnu sjóðsins og gæti haft afleiðingar. 17.10.2026 11:44
Fljúga daglega til Boston Bandaríska flugfélagið Delta tilkynnti í dag að það ætli að hefja áætlunarflug milli Boston Logan-flugvallar og Keflavíkurflugvallar í apríl á næsta ári. Flugið verður í boði fram í lok október. 16.10.2026 16:49
Ekkert fannst í búi Omnom Ekkert fannst í búi fyrirtækisins sem áður rak sælgætisgerðina Omnom. Kröfur í búið námu um 166 milljónum króna. Góa keypti vörumerkið og allan tækjabúnað áður en félagið varð gjaldþrota. 16.10.2026 15:52
Sjö ára dómur Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj voru báðir dæmdir til sjö ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að Dettifossmálinu svokallaða. Skipverjarnir tveir sem komu að málinu fengu báðir fimm ára dóm. 16.10.2026 11:44
Georg Páll er næsti forseti ASÍ Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ núna rétt fyrir klukkan ellefu. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæði á móti 127 atkvæðum og tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin. 16.10.2026 10:34
„Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Það var margt um manninn í Kringlunni í hádeginu í dag þegar tímabundin verslun Skims var opnuð. Tugir biðu í röð fyrir utan áður en dyrnar voru opnaðar og bættist í eftir því sem leið á. Viðmælendur fréttastofu voru mjög spenntir fyrir komu merkisins til landsins. Fyrsti karlmaðurinn til að versla var líklegast sá allra spenntasti. 15.10.2026 16:48
Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Jón Gnarr segir pólitískan ágreining innan þingflokks Viðreisnar hafa orðið til þess að hann hafi sagt sig úr þingflokknum og nefnir sérstaklega mál sem tengjast börnum. Hann segist hafa íhugað að segja sig úr þingflokknum síðan í sumar, ákvörðunin tengist ekki neinum embættum. Hann sé enn í Viðreisn og eigi ekki samleið með öðrum flokkum en útilokar ekki að stofna eigin flokk síðar meir. 15.10.2026 15:47