Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára ill­deilur

Harry prins og Meghan, hertogaynja af Sussex, komu til Bretlands í dag ásamt börnum sínum, sex árum eftir að þau hættu opinberum störfum fyrir konungsfjölskylduna og fluttu til Kaliforníu. Bæði AP og Reuters greina frá komunni.

Hvað gerist ef það verður jafnt?

Jöfn niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag myndi hvorki kalla á aðra atkvæðagreiðslu né hlutkesti. Engin regla kveður heldur á um sjálfkrafa endurtalningu þótt aðeins eitt atkvæði skilji að já og nei.

Er­lendir fjöl­miðlar beina sjónum að þjóðar­at­kvæða­greiðslunni

Erlendir fjölmiðlar beina nú sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. AFP segir mjótt á munum en breska dagblaðið Telegraph fjallar um kosningarnar í samhengi við þorskastríðin og langvarandi baráttu Íslendinga fyrir yfirráðum yfir fiskimiðunum.

Maxwell fær ekki dómnum hnekkt

Ghislaine Maxwell hefur ekki tekist að fá tuttugu ára fangelsisdómi sínum hnekkt. Bandarískur alríkisdómari hafnaði kröfu hennar og sagði rök hennar ýmist byggð á getgátum og rangfærslum eða komin of seint fram.

Móðirin sem Banda­ríkja­menn deila um

Bandarísk móðir hefur viðurkennt að hafa orðið börnum sínum þremur að bana í janúar 2023. Réttarhöldin yfir henni hafa staðið yfir í rúmar fjórar vikur og styttist í að málið verði lagt fyrir kviðdóm. Hann mun skera úr um hvort móðirin hafi verið sakhæf þegar hún banaði börnunum.

Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu

Dansútgáfa af Madonnu smellinum Like a Prayer hefur orðið eitt vinsælasta lag Ástralíu, þótt enginn söngvari hafi flutt lagið. Röddin og trommurnar voru búnar til með gervigreind og velgengni lagsins hefur nú orðið kveikjan að nýjum reglum um ástralska vinsældalista.

Elkem segir toll­frelsi geta skilað 350 milljónum á ári

Elkem áætlar að núverandi tollakjör í Bandaríkjunum geti bætt afkomu verksmiðjunnar á Grundartanga um 300 til 350 milljónir króna á ári. Íslenskt kísiljárn, sjávarafurðir og eldisafurðir eru nú tollfrjálsar á Bandaríkjamarkaði á meðan vörur frá nokkrum helstu samkeppnisríkjum bera viðbótartolla.

Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali

Bónus tekur pastahillurnar í gegn og hyggst bjóða fleiri tegundir í öllum verðflokkum. Barilla og Himneskt hverfa úr hillunum í bili en í staðinn koma meðal annars fleiri ódýrar tegundir, ítalskt úrvalspasta, lífrænt pasta, heilhveitipasta, glútenfrítt pasta og próteinpasta.

Viður­kennir að opin­ber gjöld hefðu getað hækkað minna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir vaxtahækkun Seðlabankans vonbrigði. Hún viðurkennir að hækkanir opinberra gjalda hafi haft áhrif á verðbólgu en segir þær ekki óvenjumiklar í sögulegu samhengi. Hún vísar gagnrýni vegna fjölgunar opinberra starfsmanna til fyrirhugaðs aðhalds í ríkisfjármálum.

Sjá meira