Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Birgir Olgeirsson skrifar 5. október 2026 21:01 Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, vill setja þak á tekjur Rúv af viðskiptaboðum. Vísir/Anton Brink Auglýsingatekjur RÚV hefðu farið yfir fyrirhugað 2,8 milljarða króna mark aðeins einu sinni á síðustu fjórum árum, samkvæmt samanburði Vísis á tölum ráðuneytisins. Það var árið 2022. Í skriflegu svari til Vísis segir ráðuneytið að mun meira muni um tíu prósenta lækkun á framlagi ríkisins til RÚV en um tekjuþakið.
Í frumvarpsdrögum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins er lagt til að framlag ríkisins til RÚV lækki ef tekjur félagsins af viðskiptaboðum fara yfir 2,8 milljarða króna á ári. Fyrir hverja krónu umfram markið yrði ein króna dregin frá framlaginu. Viðskiptaboð eru meðal annars auglýsingar, kostun þátta og vöruinnsetningar. RÚV væri því áfram heimilt að selja auglýsingar þótt tekjurnar færu yfir markið. Tekjurnar lækka þegar verðbólga er tekin með Ráðuneytið birtir í frumvarpsdrögunum auglýsingatekjur RÚV fyrir árin 2022 til 2025. Til að bera árin saman reiknaði það eldri tekjur upp með verðbólgu, á verðlagi maí 2026. Þannig jafngilda tekjur ársins 2022 rúmum 2,9 milljörðum króna og eru þær einu sem fara yfir 2,8 milljarða markið. RÚV fékk þó í raun um 2,4 milljarða króna í auglýsingatekjur það ár. Árið 2023 voru verðlagsleiðréttar tekjur aðeins 29 milljónum króna undir markinu. Þær lækkuðu síðan frekar, í um 2,74 milljarða árið 2024 og 2,63 milljarða árið 2025. Auglýsingatekjurnar náðu ekki 2,8 milljörðum króna neitt áranna fjögurra áður en þær voru reiknaðar upp með verðbólgu. Framlagið lækkar líka undir þakinu Frumvarpsdrögin fela í sér aðra lækkun á framlagi ríkisins til RÚV. Árlega yrði dregin frá framlaginu fjárhæð sem nemur tíu prósentum af meðaltekjum RÚV af viðskiptaboðum síðustu fjögur heilu reikningsárin. Sú lækkun á við hvort sem tekjurnar ná 2,8 milljarða markinu eða ekki. Fari þær yfir markið bætist frekari frádráttur við. Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis segir ráðuneytið að tekjur af auglýsingum geti sveiflast, meðal annars vegna stórra íþróttaviðburða. Þakinu sé ætlað að hafa „kælingaráhrif“ á auglýsingasölu RÚV. Ráðuneytið leggur ekki fram spá um hvenær tekjurnar kunni að fara yfir markið. Það segir að tíu prósenta lækkunin muni vega þyngra en frádráttur vegna tekna umfram þakið. Ríkið vill taka yfir skuld Rúv Stjórnvöld tengja skerðingu framlagsins við áform um að létta skuldabyrði RÚV. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er lagt til að ríkið fái heimild til að taka yfir skuldabréf félagsins vegna eldri lífeyrisskuldbindinga. Höfuðstóll lánsins er um fjórir milljarðar króna og áætluð árleg greiðslubyrði um 285 milljónir króna, að meðtöldum verðbótum. Í greinargerð fjárlagafrumvarpsins er möguleg yfirtaka skuldarinnar sérstaklega tengd frumvarpinu um RÚV. Til samanburðar eru tíu prósent af fjögurra ára meðaltekjunum í töflu ráðuneytisins um 276 milljónir króna á verðlagi maí 2026. Það er samanburðartala, ekki staðfest fjárhæð sem dregin yrði frá framlagi til RÚV árið 2027. Yfirtaka skuldarinnar er heldur ekki sjálfvirk: fjárlagafrumvarpið leggur til heimild fyrir ríkið til að taka lánið yfir. Ráðuneytið segir jafnframt í skriflegu svari til Vísis að ætlunin sé að hækka 2,8 milljarða markið með verðlagi við fjárlagagerð á hverju ári. Það myndi krefjast lagabreytingar ár hvert; fjárhæðin hækkar ekki sjálfkrafa.
Ríkisútvarpið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira