

Vistaskipti
Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.

Hlutabréfaverð rýkur upp eftir ráðninguna
Hlutabréfaverð í Regin hefur hækkað um 5,69 prósent það sem af er degi. Greint var frá því í gærkvöldi að Halldór Benjamín Þorbergsson, fráfarandi framkvæmdastjóri SA, tæki við sem forstjóri Regins í sumar.

Helga Lára og Hjalti Már ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Arion
Helga Lára Hauksdóttir og Hjalti Már Hauksson hafa verið ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Arion banka.

Anna Regína nýr forstjóri Coca-Cola á Íslandi
Anna Regína Björnsdóttir hefur tekið við starfi forstjóra Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (Coca-Cola á Íslandi). Hún tekur við af Einari Snorra Magnússyni sem kveður nú fyrirtækið eftir yfir tuttugu ára starfstíma.

Forseti Ungra umhverfissinna til Seðlabankans
Tinna Hallgrímsdóttir hefur látið af störfum sem forseti Ungra umhverfissinna og verið ráðin til starfa sem loftslags- og sjálfbærnisérfræðingur Seðlabanka Íslands.

Pálmi ráðinn til Árvakurs
Pálmi Guðmundsson fjölmiðla- og rekstrarhagfræðingur hefur verið ráðinn forstöðumaður þróunarmála hjá Árvakri. Hann lét af störfum sem dagskrárstjóri Símans síðasta sumar en hann hafði þá gegnt stöðunni í fjölda ára.

Birta nýr markaðsstjóri Arctic Adventures
Birta Ísólfsdóttir hefur verið ráðin til ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures, þar sem hún tekur við stöðu markaðsstjóra. Birta kemur til Arctic frá stafrænu markaðs- og auglýsingastofunni KIWI þar sem hún starfaði sem markaðsráðgjafi.

Halldór Benjamín lætur af störfum
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) hefur ákveðið að láta af störfum. Hann mun taka við nýju starfi sem forstjóri Regins í sumar.

Dagmar Ýr tekur við af Jónu bæjarstjóra
Dagmar Ýr Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Austurbrúar. Hún tekur við af Jónu Árnýju Þórðardóttur sem fer nú í starf bæjarstjóra í Fjarðabyggð.

Friðrik sækist ekki eftir endurkjöri
Friðrik Jónsson, formaður Bandalags háskólamanna (BHM), mun ekki sækjast eftir endurkjöri þegar formannskjör bandalagsins fer fram í vor. Hann segist kveðja hlutverk sitt sáttur.

Arnar Már snýr aftur í framkvæmdastjórn Play
Arnar Már Magnússon, flugstjóri og einn af stofnendum Play, mun senn taka aftur við sem framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs félagsins.

Tekur aftur við embætti lögreglustjóra í Eyjum
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur skipað Karl Gauta Hjaltason, fyrrverandi lögreglustjóra og þingmann Miðflokksins, í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum frá og með 1. apríl 2023.

Karl og Haraldur til Terra
Karl F. Thorarensen hefur verið ráðinn sem innkaupastjóri Terra umhverfisþjónustu og Haraldur Eyvinds Þrastarson forstöðumaður upplýsingatækni og stafrænnar vegferðar.

Helga Hlín og Magnús ný inn í stjórn Rue de Net
Hugbúnaðarfyrirtækið Rue de Net hefur fengið þau Helgu Hlín Hákonardóttur og Magnús Árnason til að taka sæti í þriggja manna stjórn félagsins við hlið Aðalsteins Valdimarssonar stjórnarformanns.

Máni kveður Sýn: „Þetta hefur verið áhugavert ferðalag í rúm 25 ár"
Máni Pétursson fjölmiðlamaður hefur sagt skilið við Sýn eftir 25 ára starf. Hann lauk formlega störfum um síðustu mánaðamót.

Fanney Birna ráðin dagskrárstjóri Rásar 1
Fanney Birna Jónsdóttir blaðamaður og formaður siðanefndar Blaðamannafélags Íslands hefur verið ráðin dagskrárstjóri Rásar 1. Hún tekur við af Þresti Helgasyni en hann sagði starfi sínu lausu í febrúar síðastliðnum eftir að hafa gegnt starfinu í nærri níu ár.

Reynslumestu miðlarar Íslenskra verðbréfa hverfa á brott
Þrír reynslumestu verðbréfamiðlarar Íslenskra verðbréfa (ÍV) eru að hætta störfum en í þeim hópi er meðal annars yfirmaður markaðsviðskipta félagsins til margra ára.

Snorri og Óskar kaupa Valhöll
Fasteignasalarnir Snorri Björn Sturluson og Óskar H. Bjarnasen hafa tekið við rekstri Valhallar fasteignasölu af stofnanda hennar, Ingólfi Geir Gissurarsyni. Báðir hafa þeir ekki starfað hjá stofunni áður.

Kynningarstjóri ráðinn á skrifstofu útvarpsstjóra
Atli Sigurður Kristjánsson hefur verið ráðinn samskipta- og kynningarstjóri hjá Ríkisútvarpinu.

Sverrir Scheving nýr deildarstjóri Advania
Sverrir Scheving Thorsteinsson er nýr deildarstjóri rafrænna viðskipta og skólalausna Advania. Hann mun leiða þróun á stafrænum skólalausnum fyrirtækisins og þróun á lausnum sem snúa að því að auðvelda íslenskum fyrirtækjum að stunda rafræn viðskipti.

Konráð til liðs við nýja greiningardeild Arion banka
Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins á meðan síðustu kjarasamningaviðræðum stóð, hefur gengið til liðs við Arion banka en í kjölfarið kemur bankinn á fót nýrri greiningardeild, Arion greiningu, undir sviðinu Mörkuðum.

Birna Rún sérhæfir sig í TikTok hjá Kvartz
Birna Rún Eiríksdóttir leikkona hefur gengið til liðs við Kvartz markaðs- og viðburðastofu sem hugmyndasmiður og verkefnastjóri TikTok teymis. Birna mun leiða þessa vinnu innan Kvartzen Birna er leikkona, leikstjóri og handritshöfundur og heldur hún úti vinsælum TikTok reikningi.

Helgi ráðinn framkvæmdastjóri Framsóknar
Helgi Héðinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Framsóknar. Hann tekur við af Teiti Erlingssyni, sem hefur sinnt hlutverki framkvæmdastjóra tímabundið frá áramótum.

Ágúst Karl tekur við af Soffíu Eydísi hjá KPMG Law
Ágúst Karl Guðmundsson, lögmaður og einn eiganda KPMG Law ehf., hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra KPMG Law. Hann mun sinna starfinu samhliða ráðgjafastörfum á stofunni.

Bryndís Kolbrún ráðin árangursstjóri hjá dk
Bryndís Kolbrún Sigurðardóttir hefur hefur verið ráðin í starf stjórnanda viðskiptatengsla bókhalds- og endurskoðendaskrifstofa, Customer Success Manager (CSM), hjá dk hugbúnaði. Staðan er ný hjá fyrirtækinu.

Nýir sölustjórar hjá A4
Með skipulagsbreytingu hjá A4 hafa orðið til þrjár nýjar sölustjórastöður. Í þær hafa verið ráðin Bylgja Bára Bragadóttir, Ásgrímur Helgi Einarsson og Sigurveig Ágústsdóttir.

Tvær nýjar í framkvæmdastjórn Genís
Líftæknifyrirtækið Genís hefur ráðið til sín tvo nýja framkvæmdastjóra sem hefja störf á næstu mánuðum.

Sólrún og Hildur ráðnar til Terra umhverfisþjónustu
Sólrún Hjaltested hefur verið ráðin mannauðsstjóri Terra umhverfisþjónustu og Hildur Emilsdóttir sem verkefnastjóri stefnumótunar og umbóta félagsins.

Gunnur Líf framkvæmdastjóri á nýju sviði hjá Samkaupum
Gunnur Líf Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa. Hún tekur við stöðunni um næstu mánaðamót og um jafnframt gegna hlutverki staðgengils forstjóra.

Þingmaður ráðinn bæjarstjóri Akraness
Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Hann tekur við stöðunni af Sævari Frey Þráinssyni sem nýverið var ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.

Jón Ólafur hafði betur gegn Auði í formannskjöri hjá SVÞ
Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Marga, var endurkjörinn formaður Samtaka verslunar og þjónustu til tveggja ára í morgun þegar aðalfundur samtakanna fór fram. Jón Ólafur hafði þar betur gegn Auði Daníelsdóttur, forstjóra Orkunnar, sem einnig bauð sig fram. Jón Ólafur hlaut 35.495 atkvæði eða tæplega 56 prósent atkvæða og Auður 27.696 atkvæði eða rúmlega 43 prósent atkvæða.