Þrjú snjóflóð fundin og væntanlega fleiri fallið Sérfræðingur á ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands segir að minnsta kosti þrjú snjóflóð hafa fallið undanfarin sólarhring. Líkur séu á því að þau séu fleiri en eigi eftir að koma í ljós þegar vegir verði opnaðir og rofar til. Innlent 11. desember 2019 13:46
Peningarnir klárir í Dynjandisheiði og þriggja ára matsferli á lokastigi Vegagerð við fossinn Dynjanda og um friðlandið í Vatnsfirði eru taldir viðkvæmustu þættir umhverfismats vegna Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði. Innlent 1. desember 2019 21:46
Nýr sprettharður prestur Bryndís Svavarsdóttir tók prestsvígslu um síðustu helgi og mun þjóna Patreksfjarðarprestakalli fram á sumar 2020. En nú þreytir hún hvert maraþonið eftir annað í Asíu. Lífið 23. nóvember 2019 11:00
Staðfestir aðalskipulag með vegi um Teigsskóg Skipulagsstofnun hefur staðfest veglínu Vestfjarðavegar um Teigsskóg og stefnir Vegagerðin að því að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir lok mánaðarins. Innlent 19. nóvember 2019 22:30
Sinubruni á Bíldudal Snemma morguns síðastliðinn mánudag barst lögreglunni á Vestfjörðum tilkynning um sinubruna á Bíldudal. Innlent 18. nóvember 2019 15:45
Vegurinn milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar lokaður Dráttarbíll með tengivagn rann til á veginum yfir Mikladal. Innlent 31. október 2019 09:10
Vegur yfir Dynjandisheiði fimm árum á eftir Dýrafjarðargöngum Dýrafjarðargöng verða fyrstu fimm rekstrarárin án tengingar við heilsársveg um Dynjandisheiði. Uppbygging nýs vegar yfir heiðina vart fyrr en eftir tvö ár. Innlent 27. október 2019 21:36
Segir laxeldi stærsta tækifærið til að snúa við byggðaþróun á Vestfjörðum Fiskeldi hefur tekið við af hefðbundnum sjávarútvegi sem stærsta atvinnugreinin á Tálknafirði. Helsti forystumaður Vestfirðinga um árabil segir laxeldið stærsta tækifæri fjórðungsins í atvinnumálum. Innlent 24. október 2019 21:00
Bíldudalshöfn Vesturbyggð gaf út í maí á þessu ári Innviðagreiningu fyrir sveitarfélagið sem unnin var í samstarfi við Eflu verkfræðistofu. Í greiningunni er horft til ástands innviða sveitarfélagsins vegna hafsækinnar starfsemi. Skoðun 21. október 2019 13:30
Fögnuðu dýrmætri lyftistöng fyrir samfélagið á Tálknafirði Tálknfirðingar fögnuðu í dag opnun seiðaeldisstöðvar Arctic Fish í botni fjarðarins. Þetta er stærsta einstaka fjárfesting í fiskeldi hér á landi. Innlent 18. október 2019 20:43
Einar Bragi fallinn frá Einar Bragi Bragason, tónlistarmaður, skólastjóri Tónlistarskóla Vesturbyggðar og einn stofnenda hljómsveitarinnar Stjórnarinnar, er fallinn frá 54 ára gamall. Innlent 5. október 2019 22:17
2,2 milljarða tap hjá Arnarlaxi Laxeldisfyrirtækið Arnarlax skilaði 16 milljóna evra tapi á síðasta rekstrarári. Viðskipti erlent 3. október 2019 23:42
Breyta gömlu bæjarskrifstofunum í íbúðir Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Rebekka Hilmarsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samvinnu við fjölgun nýrra íbúða í sveitarfélaginu. Innlent 1. október 2019 11:46
Útlit fyrir að fiskeldi tvöfaldist á næstu árum Útflutningsverðmæti verður líklega hátt í tuttugu milljarðar króna í ár sem nemur ríflega eitt prósent af heildarútflutningi. Innlent 25. september 2019 09:43
Freista þess að nota ferlaufung til að hindra vegagerð um Teigsskóg Alfriðuð blómplanta, sem kallast ferlaufungur, hefur fundist í veglínu Teigsskógar og því bannað að skerða hana á nokkurn hátt, að mati landeigenda. Innlent 8. september 2019 20:35
Fjarðalax með rekstrarleyfi til fiskeldis Heimilt er að kæra ákvörðun MAST um útgáfu rekstrarleyfis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála en kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar. Viðskipti innlent 28. ágúst 2019 17:36
MAST veitir rekstrarleyfi til fiskeldis á Vestfjörðum eftir ógildingu úrskurðarnefndar Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafði áður fellt rekstrarleyfi fyrirtækjanna Arctic Sea Farm og Fjarðalax fyrir samtals 17.500 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum á Patreksfirði og Tálknafirði úr gildi í september á síðasta ári. Innlent 27. ágúst 2019 17:15
Rjómablíða á Skjaldborg Þann 7.-10. júní fór íslenska heimildarmyndahátíðin Skjaldborg fram í þrettánda skipti á Patreksfirði. Veðrið lék við gesti hátíðarinnar.. Menning 12. júní 2019 08:15
Saga þeirra byrjar á bónorði Dagana 7.-10. júní er Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildarmynda haldin í þrettánda sinn á Patreksfirði. Hátíðin er opnuð með sýningu heimildarmyndar Hrafnhildar Gunnarsdóttur Vasúlka áhrifin, sem er um hjónin Steinu og Woody Vasúlka, brautryðjendur í gerð vídeólistar á heimsvísu. Menning 8. júní 2019 10:00
Nánd og innblástur á Patreksfirði Helga Rakel Rafnsdóttir annar skipuleggjanda Skjaldborgar, hátíðar íslenskra heimildamynda, segir dagskrá hátíðarinnar sérstaklega fjölbreytta í ár. Menning 8. júní 2019 09:00
Líf og fjör um allt land yfir helgina Mikil ferðahelgi er framundan, enda hvítasunnuhelgi og margir landsmenn í fríi fram á mánudag. Tvær bæjarhátíðir munu fara fram um helgina en það eru Kótelettan á Selfossi og Skjaldborg Folk Festival á Patreksfirði. Innlent 7. júní 2019 11:40
Vinnuhelgi í Selárdal í Arnarfirði Hafist verður handa strax í dag við að lagfæra lóð og hús listamannsins Samúels Jónssonar. Menning 30. maí 2019 08:00
Búist við 500-600 bátum á strandveiðum í sumar Fyrsti dagur strandveiðanna er í dag að þær færa jafnan mikið líf í hafnir landsins hringinn í kringum landið. Breytt lög tryggja hverjum báti núna að lágmarki tólf veiðidaga í hverjum mánuði. Innlent 2. maí 2019 12:00
Kynna tillögu að friðlýsingu Látrabjargs Umhverfisstofnun hefur unnið að undirbúningi friðlýsingarinnar frá árinu 2011 með samtali við landeigendur, sveitarfélag og fleiri hagsmunaaðila. Innlent 18. apríl 2019 19:23
Lögreglan hafði afskipti af verndunarsinnum á Bíldudal Heimsfrumsýning á Artifishal í kvöld. Innlent 10. apríl 2019 13:09
Vesturbyggð átti vef ársins á Íslensku vefverðlaununum Auk verðlaunanna fyrir vef ársins fékk Vesturbyggð verðlaun fyrir besta opinbera vefinn. Viðskipti innlent 22. febrúar 2019 22:45
Arnarlax tapaði 405 milljónum Tap fyrirtækisins minnkaði á milli ára en það nam 134 milljónum norskra króna á árinu 2017, sem jafngildir um 1,9 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 21. febrúar 2019 07:45
Segir áhættumat gefa færi á verulegum vexti laxeldis Tekjur þjóðarbúsins af laxeldi gætu margfaldast á næstu árum, miðað við það svigrúm sem áhættumat vísindamanna gefur á auknu sjókvíaeldi. Innlent 15. febrúar 2019 21:30
Arnarlax 20 milljarða virði 6 árum eftir að Matthías mætti á Bíldudal Arnarlax er komið í flokk verðmætustu fyrirtækja landsins og telst yfir tuttugu milljarða króna virði, miðað við yfirtökutilboð sem norska félagið Salmar þarf að gera öðrum eigendum Arnarlax. Innlent 14. febrúar 2019 20:00
Færðu björgunaraðilum miklar gjafir Lionsklúbbur Patreksfjarðar færði björgunaraðilum þar í bæ miklar gjafir í tilefni af 112 deginum sem haldið var upp á víða um land í gær. Innlent 12. febrúar 2019 21:58