Miklu kraftmeiri en Nylon Stúlknasveitin Kári? gæti orðið næsta stórmál í íslenska poppinu. Sveitina skipa fjórar stúlkur fæddar 1993, þær Silvía, Auður, Lilja og Margrét. Tvær koma úr Árbænum, ein úr Grafarvogi og ein frá Norðlingaholti. Þetta er því ekta úthverfaband. Tónlist 25. júlí 2008 08:00
Djasshátíð haldin í ágúst Nítjánda Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin í borginni dagana 26.-30. ágúst. Að þessu sinni verða á þriðja tug tónleika á þeim fimm dögum sem djassinn dunar í borginni og koma nálægt eitt hundrað listamenn að hátíðinni að þessu sinni. Tónlist 24. júlí 2008 10:00
Rokkblanda á Organ í kvöld DLX ATX (Deluxe Attacks), Æla og Swords of Chaos spila á Organ í kvöld. Tónlist 24. júlí 2008 08:00
Tónlist fyrir orgel og horn á hádegistónleikum Á hádegistónleikunum í Dómkirkjunni í Reykjavík á morgun koma fram hornleikarinn Svafa Þórhallsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir orgelleikari. Tónleikarnir, sem hefjast kl. 12.15, eru hluti af röð tónleika sem haldnir eru í samvinnu Félags íslenskra organleikara og Alþjóðlegs orgelsumars. Tónlist 23. júlí 2008 06:00
Abba selst og selst Diskur með sönglögum Benny Anderson og Björn Ulveaus úr kvikmyndinni Mamma mia! þaut upp Billboard-listann í vikunni sem leið og kom inn á listann í sjöunda sæti en myndin var frumsýnd vestanhafs hinn 11. júlí. Hefur þessum herrum ekki tekist eins vel í sölu áður. Abba Gold er líka stokkin upp listann en hún var á sínum tíma í tvö ár á listanum. Tónlist 22. júlí 2008 09:00
Húsband spilar eftir fíling Vegfarendur um Bankastrætið hafa eflaust orðið varir við djasstónlistina sem þar hefur ómað reglulega í sumar. Að baki henni er óeiginlegt húsband skemmtistaðarins Priksins. Tónlist 22. júlí 2008 06:00
Ræða þróun tónlistarheimsins Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, IMX, stendur fyrir ráðstefnu 15.-16. október næstkomandi. Ber hún yfirskriftina You are in control, eða Þú ert við stjórnvölinn og verður haldin á Hótel sögu. Tónlist 22. júlí 2008 06:00
Tónlistarfólk í stjörnusápu Amy Winehouse, Razorlight og Bloc Party leika í nýrri sjónvarpsseríu á netinu. Þá má sjá Duffy, Girls Aloud og The Feeling í aukahlutverkum. Sápan heitir 'The Secret World Of Sam King' og verður aðeins aðgengileg þeim sem nota Bebo-vefsvæðið. Tónlist 18. júlí 2008 06:00
Nóg að gera hjá Bang Gang Hljómsveitin Bang Gang verður mikið á ferð og flugi næstu daga. Í gær var hún stödd í Frakklandi til að spila á rokktónlistarhátíðinni Plage de Rock sem haldin er rétt fyrir utan St. Tropez. Bang Gang heldur svo til Parísar í dag þar sem hljómsveitin verður með útgáfutónleika og að þeim loknum er ferðinni heitið alla leið austur á land þar sem hljómsveitin spilar á LungA á Seyðisfirði. Tónlist 18. júlí 2008 06:00
Fá Færeyinga til að dansa Íslenskir plötusnúðar spila á tónlistarhátíð í Færeyjum um helgina. Færeyska tónlistarhátíðin G-festival verður haldin nú um helgina. Í ár mun hátíðin bera yfirskriftina G-mini og verður hún eitthvað minni í sniðum en fyrri hátíðir. Tónlist 18. júlí 2008 06:00
Ennþá óháð, ennþá fersk Um síðustu helgi blés bandaríska plötuútgáfan Sub Pop til mikillar tónlistarveislu í Redmond í nágrenni Seattle til að fagna tuttugu ára starfsafmæli útgáfunnar. Trausti Júlíusson rifjaði upp sögu þessarar merku útgáfu sem m.a. kom Nirvana á framfæri og sem hefur í gegn um öll tuttugu árin haldið áfram að gefa út frábæra tónlist. Lífið 18. júlí 2008 06:00
Timbaland og Jay-Z saman í hljóðveri Stórpródúsentinn Timbaland segir þá Jay-Z stefna á samstarf við næstu plötu rapparans. Hafa þeir kappar áður starfað saman, til dæmis við „Big Pimpin“ sem sló í gegn á heimsvísu árið 2000. Tónlist 18. júlí 2008 01:30
Neðanjarðarrapp á Organ Triangle Productions munstanda fyrir tónleikum á Organ í kvöld. Tónlistarmaðurinn Josh Martinez mun koma fram en hann er einn virtasti neðanjarðarrappari heimsins í dag og fékk plata hans Buck up Princess verðlaun fyrir bestu hiphop-plötu ársins í föðurlandi hans Kanada árið 2004. Tónlist 15. júlí 2008 06:00
Á morgun með Megasi Loksins er komið nafn á fyrirhugaðan disk Megasar, Magnúsar Þórs Jónssonar, með safni laga úr ýmsum áttum. Hann er væntanlegur í verslanir í lok næstu viku og kallast safnið Á morgun. Tónlist 15. júlí 2008 05:30
Rod Stewart aftur með Faces Unnið er að endurkomu hljómsveitarinnar Faces og nú er talið líklegt að Rod Stewart verði við hljóðnemann á tónleikaferðalagi sveitarinnar. Þetta fullyrðir Ian McLagan, einn meðlima Faces. Tónlist 14. júlí 2008 05:15
Haffi Haff syngur um Bin Laden "Það er hægt að túlka þetta sem pólitískt lag,“ segir Haffi Haff sem er að senda frá sér lagið Bin Laden. Danslag af dýrari gerðinni með snert af ádeilu. "Það er verið að benda á ákveðna hluti sem eru að gerast í heiminum,“ segir Haffi en lagið er eftir Steina nokkurn og textinn líka. "Hann er snillingur. Hann valdi akkúrat réttu orðin í textann.“ Tónlist 11. júlí 2008 05:00
Fyrsta plata Merzedes Club í búðir á morgun Langþráður frumburður hljómsveitarinnar Merzedes Club lítur dagsins ljós á morgun, þegar platan „I wanna touch you“ kemur út. Slagara á borð við „Ho ho ho we say hey hey hey“ og „Meira frelsi“ þarf vart að kynna fyrir mörgum, en þau eru bæði á plötunni. Titillagið „I wanna touch“ you hefur einnig vermt sæti á flestum vinsældalistum landsins. Nýjustu afurðina, „See me now“, er einnig að finna á plötunni, ásamt fleiri verðandi smellum. Tónlist 10. júlí 2008 13:44
Sumargleði Kima Það er engu logið um það að Kimi Records á Akureyri er hressasta plötuútgáfa landsins um þessar mundir. Á meðan varla heyrist múkk frá öðrum útgáfum dælir Baldvin Esra hjá Kima út nýjum plötum og dreifir öðru eins. Það er því við hæfi að fjögur Kima-bönd taki höndum saman og fari um landið undir yfirskriftinni Sumargleði Kima. Tónlist 10. júlí 2008 06:00
Fögnuðu nýrri plötu Hljómsveitin Atómstöðin fagnaði útgáfu nýrrar plötu sinnar með partíi á Bar 11. „Það var fullt hús af fólki og ofsalega góð stemning,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson, söngvari Atómstöðvarinnar, um útgáfupartí hljómsveitarinnar sem fram fór á Bar 11 síðastliðinn fimmtudag í tilefni af útgáfu plötunnar Exile Republic. Tónlist 10. júlí 2008 06:00
Fönkið endurvakið Hljómsveitin Ermar - Featuring Horny Horns mun spila fönktónlist á Glaumbar í kvöld. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Bít Box sem verður á Glaumbar alla fimmtudaga í sumar. Bít Box er samstarf Samma í Jagúar og Steinars sem rekur Glaumbar og vildu þeir með framtakinu skapa vettvang fyrir rytmíska tónlist hér í Reykjavík og hefur Tómas R. Einarsson meðal annars spilað á slíku kvöldi. Tónlist 10. júlí 2008 06:00
Náttsöngvar í Skálholti Tónlistarhátíðin í Skálholti heldur áfram með glæsilegu tónleikahaldi. Sönghópurinn Hljómeyki treður upp í kirkjunni í kvöld kl. 20 og verður þá mikið um dýrðir. Hópurinn flytur Náttsöngva Rachmaninovs, en um er að ræða eitt af sannkölluðum stórvirkjum tónbókmenntanna. Tónlist 10. júlí 2008 06:00
Tónlistin út til fólksins Tvennir útitónleikar verða haldnir í gamla Sirkusportinu í kvöld og annað kvöld. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð sem verða núna í júlímánuði. Tónlist 10. júlí 2008 06:00
Loksins nýtt frá Emilíönu Tónlistarkonan Emilíana Torrini stimplaði sig endanlega inn með plötunni Fisherman’s Woman, sem kom út í ársbyrjun 2005. Nú er loksins búið að tilkynna að næsta plata sé á leiðinni, hún mun heita Me and Armini og kemur út 8. september. Tónlist 10. júlí 2008 06:00
Væntanleg plata Cörlu Bruni á netið Aðdáendum forsetafrúarinnar frönsku Cörlu Bruni gefst í dag möguleiki á því að hlusta á væntanlega plötu hennar í heild sinni á heimasíðu hennar. Platan kemur ekki út fyrr en í næstu viku, en með því að skrá sig á heimasíðu Bruni, www.carlabruni.com er hægt að hlusta á plötunna frítt í tvo tíma. Tónlist 9. júlí 2008 15:02
Níu íslensk popplög á Húnavöku „Þetta er þriðja árið í röð sem Húnavakan er haldin frá því að hún var endurvakin, en í ár ákváðum við að gera eitthvað extra og halda popplagakeppni í tilefni af því að tuttugu ár eru liðin frá því að Blönduós fékk kaupstaðarréttindi," segir Einar Örn Jónsson framkvæmdastjóri Húnavökunnar og meðlimur hljómsveitarinnar Í svörtum fötum. Tónlist 9. júlí 2008 06:00
Klarínetta og orgel í hádeginu Klarínettuleikarinn Einar Jóhannesson, einn af þekktustu einleikurum landsins, kemur fram á hádegistónleikum í Dómkirkjunni í Reykjavík á morgun kl. 12.15 ásamt Douglas A. Brotchie, organista Háteigskirkju. Tónlist 9. júlí 2008 06:00
Murta St. Calunga - Benni Hemm Hemm: Fjórar stjörnur Þó að Murta St. Calunga sé full lík fyrri plötum Benna Hemm Hemm þá er hún léttari og skemmtilegri heldur en síðasta plata. Góð lög og vel heppnuð smáatriði í útsetningum lyfta henni upp. Tónlist 9. júlí 2008 06:00
Bergmann - Bergmann: Tvær stjörnur Þó að mikil vinna og metnaður hafi farið í að gera þessa plötu þá veldur hún vonbrigðum - útsetningar eru ófrumlegar og lagasmíðarnar eru veikar. Tónlist 8. júlí 2008 06:00
Madonna vill Britney Orðrómur um að Britney Spears muni troða upp á tónleikaferðalagi Madonnu gengur nú fjöllunum hærra. Madonna er sögð hafa boðið Britney að ganga til liðs við sig í von um að hjálpa henni, en Britney er nú að reyna að koma söngferli sínum aftur á skrið eftir undangengna erfiðleika. Tónlist 8. júlí 2008 06:00
Beck með afmælisplötu Í dag, á 38 ára afmæli Becks, kemur út áttunda platan hans, Modern Guilt. Tvö ár eru síðan síðasta platan hans kom út. Á nýju plötunni nýtur Beck meðal annars liðsinnis tónlistarkonunnar Cat Power, sem spilaði á Innipúkanum fyrir þremur árum, og Dangermouse, sem hljóðvann plötuna. Tónlist 8. júlí 2008 06:00