Coxon kallaður til æfinga með Blur Damon Albarn hefur staðfest að Blur ætli að koma aftur saman á næsta ári með gítarleikarann Graham Coxon innanborðs. „Blur ætlar að æfa saman og síðan kemur í ljós hvort við erum til í tuskið,“ sagði Albarn, skömmu áður en hann flutti óperu sína Monkey: Journey to the West í London. Tónlist 27. nóvember 2008 02:00
Mamma og pabbi hjálpa „Ég er búin að vera að syngja í þrjú fjögur ár,“ segir Elín Eyþórsdóttir átján ára sem hefur gefið út sína fyrstu plötu, See you in dreamland. „Ég söng fyrst á kaffi Hljómalind þegar ég sá að maður gæti troðið þar upp og lét bara mína nánustu vita. Tónlist 27. nóvember 2008 01:45
Fræbbblarnir þrjátíu ára Í dag er stór dagur fyrir íslenska pönkáhugamenn því þrjátíu ár eru liðin síðan Fræbbblarnir komu fram í fyrsta skipti. „Þetta var í Kópavogsbíói á Myrkramessu MK,“ segir Valgarður Guðjónsson, Valli í Fræbbblunum. „Það var menningarleg samkoma, ræður, ljóðalestur og kórinn söng. Við vorum auðvitað alveg út úr kú. Þurftum að hafa mikið fyrir því að fá að spila því skemmtinefndin reyndi með öllum tiltækum ráðum að útiloka okkur. Sem betur fer áttum við hauk í horni sem kom okkur inn.“ Tónlist 25. nóvember 2008 06:00
Fyrsta alvöru sólóplatan Gítarleikarinn snjalli Guðmundur Pétursson hefur gefið út sólóplötuna Ologies. Hann segir að hún sé fyrsta alvöru sólóplata sín en fyrir mörgum árum gaf hann út tilraunakennda plötu sem fór frekar hljótt um. Tónlist 25. nóvember 2008 05:15
Rúnar Júl staldrar við Rúnar Júlíusson gerir upp feril sinn á þrefaldri plötu. Rúnar er enn að þrátt fyrir 45 ár í bransanum. Hann segist markvisst vinna að því að fresta hrörnuninni, eins og hann orðar það. Tónlist 25. nóvember 2008 04:15
Montin Atómstöð í útrás Lag Atómstöðvarinnar, Think No, er að finna á safnplötunni Riot on Sunset vol. 14 sem bandaríska útgáfufyrirtækið 272 Records gefur út. Tónlist 25. nóvember 2008 03:45
Hvíla sig á upptökum Breska hljómsveitin Arctic Monkeys ætlar að spila á tónlistarhátíðinni Big Day Out í Ástralíu í janúar þrátt fyrir að vera enn á kafi í gerð sinnar þriðju plötu. Tónlist 25. nóvember 2008 01:30
Red Hot besta sveitin Bandaríski rapparinn Kanye West segir að The Red Hot Chili Peppers sé uppáhaldshljómsveitin sín. Hann segir að góðar melódíur sveitarinnar hafi fyrst og fremst heillað sig. Tónlist 24. nóvember 2008 04:00
Settu met á Myspace Nýjasta plata Guns N"Roses, Chinese Democracy, er orðin vinsælasta platan í sögu Myspace-síðunnar. Sveitin leyfði aðdáendum sínum að hlusta ókeypis á plötuna á síðunni á fimmtudag og voru viðbrögðin framúrskarandi. Þegar mest lét var platan spiluð 25 sinnum á sekúndu sem er vitaskuld mjög góður árangur. Tónlist 24. nóvember 2008 04:00
Dylan og Megas eru áhrifavaldar Tónlistarmaðurinn Sverrir Norland játar að meistararnir Bob Dylan og Megas séu báðir á meðal áhrifavalda á hans fyrstu plötu sem er nýkomin út. Tónlist 23. nóvember 2008 06:00
Upptökur á næstu plötu Gusgus hafnar Hljómsveitin Gusgus hefur hafið upptökur á sinni sjöttu plötu í Tankinum við Önundarfjörð. Sveitin dvelur í hljóðverinu í níu daga og er áætlaður útgáfudagur í byrjun næsta árs. Tónlist 22. nóvember 2008 04:30
Hjaltalín hita upp fyrir Cold War Kids Hjaltalín er leiðinni í tónleikaferð um Evrópu með bandarísku sveitinni Cold War Kids. Um vikulangan túr er að ræða sem hefst í Tórínó á Ítalíu á laugardagskvöld. Tónlist 21. nóvember 2008 07:00
Fólk sýni baráttuanda Mammút, Agent Fresco og fleiri hljómsveitir koma fram á tónleikum í Vetrargarðinum í Smáralind á laugardaginn. Tildrög tónleikanna eru þau að tónlistarmaðurinn Ká Eff Bé, Kristinn F. Birgisson, samdi lag til kærustu sinnar sem hefur glímt við heilakrabbamein síðastliðin fimm ár. Tónlist 21. nóvember 2008 06:00
Coldplay að hætta? Chris Martin, söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, vill ekki verða gömul rokkstjarna. Söngvaranum, sem er 31 árs í dag, finnst ekki að hljómsveitir eigi að halda áfram eftir að meðlimir þeirra verða 33 ára. Tónlist 20. nóvember 2008 07:00
Heildin skiptir höfuðmáli Þriðja sólóplata Beatmakin Troopa, Search For Peace, er komin út. Hljómsveitin er hugarfóstur Pans Thorarensen sem gaf á síðasta ári út plötuna Parallel Island með föður sínum Óskari. Tónlist 20. nóvember 2008 06:00
Ókeypis rafmúsik „Við höfum haldið mánaðarleg tónleikakvöld undir nafninu Weirdcore þar sem við höfum safnað saman þeim sem eru að gera eitthvað að viti í rafmúsík," segir Sveinbjörn Þorgrímsson, Biogen. Tónlist 20. nóvember 2008 06:00
Óútgefið verk eftir The Beatles Fjórtán mínútna spunaverk sem Bítlarnir tóku upp við hljóðritun á Penny Lane í janúar 1967 undir stjórn Pauls McCartney veldur nokkrum deilum um þessar mundir í Bretlandi. Paul vill endilega að tilraunaverkið, sem ber heitið Carnival of light, verði gefið út, en það er frjáls spuni unninn áfram með aðferðum raftónskálda. Tónlist 20. nóvember 2008 04:45
Dikta fær aðstoð frá Svíþjóð Rokkararnir í Diktu eru að ljúka upptökum á nýju lagi, Let Go, sem fer líklega í spilun í byrjun desember. Fylgir það eftir vinsældum, Just Getting Started, sem kom út í sumar og fór á toppinn bæði hjá Rás 2 og X-inu. Svínn Jens Bogren mun hljóðblanda og leggja lokahönd á laginu en hann var upptökustjóri nýjustu plötu sænsku þungarokkssveitarinnar Opeth sem hefur getið sér gott orð að undanförnu. Tónlist 20. nóvember 2008 04:30
Afmælisbörn hætta við túr Rokkararnir í Brain Police, sem halda upp á tíu ára afmælið sitt á næstunni, hafa hætt við þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu sem átti að standa yfir í nóvember og desember. Ástæðan er hrap íslensku krónunnar. Tónlist 20. nóvember 2008 04:00
Tveggja milljarða plata Axl Rose kemur loks út Á mánudaginn kemur nýja platan með Guns N‘ Roses, eða öllu heldur Axl Rose, loksins út. Platan Chinese Democracy er margboðuð, en nú virðist ekkert geta stöðvað útgáfu hennar nema ef til vill heimsendir. Tónlist 20. nóvember 2008 03:45
Hafdís Huld í breyttri útgáfu Bretinn Simon Latham hefur endurhljóðblandað lag Hafdísar Huldar, Tomoko, og verður það gefið út á Tónlist.is næstkomandi mánudag. Lagið verður gefið út erlendis í byrjun næsta árs. Tónlist 19. nóvember 2008 06:00
Battle of the Bands að hefjast Undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands fer fram í Hafnarfirði 18. til 22. nóvember. Sigursveitin tryggir sér þátttökurétt í úrslitakeppninni sem verður haldin á tónleikastaðnum Scala í hjarta Lundúna, Englandi 14. og 15. desember. Tónlist 17. nóvember 2008 03:00
Zeppelin-dúett breytir um nafn Led Zeppelin-goðsagnirnar Jimmy Page og John Paul Jones hafa ákveðið að halda í tónleikaferð um heiminn ásamt syni trommarans Johns Bonham, Jason. Robert Plant verður hins vegar víðs fjarri og því stendur ekki til að notast við nafnið Led Zeppelin. „Án Plants kemur ekki til greina að notast við nafnið. Zeppelin er ekki til án hans,“ segir talsmaður hinnar nýskipuðu sveitar. Leit stendur nú yfir að eftirmanni hans. Tónlist 17. nóvember 2008 03:00
Steed Lord í kvikmyndahúsi Stalíns Hljómsveit Svölu Björgvins og Einars Egilssonar, Steed Lord, kom fram á skemmtistaðnum Gradus í Moskvu í gærkvöldi. Staðurinn var áður einkakvikmyndahús Jósefs Stalín, einræðisherra Sovétríkjanna, en er nú einn vinsælasti skemmtistaður höfuðborgarinnar meðal hinna nýríku ólígarka. Ásamt Steed Lord steig Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, á stokk með sveitinni og tók með henni tvö eða þrjú lög. Tónlist 16. nóvember 2008 04:00
Þjóðverjar veita hjálparhönd Þýska fyrirtækið A Number of Small Things, sem selur plötur á heimasíðunni anost.net, ætlar að koma Íslendingum til bjargar með því að selja í tonnatali plötur frá íslenska útgáfufyrirtækinu Kimi Records. Tónlist 14. nóvember 2008 09:00
Sprengjuhöllin fagnaði í Óperunni Sprengjuhöllin hélt útgáfutónleika í Íslensku óperunni á þriðjudagskvöld til að fagna útkomu sinnar annarrar plötu, Bestu kveðjur. Hljómsveitin spilaði lög af nýju plötunni í bland við eldra efni við mjög góðar undirtektir. Kynnir kvöldsins var Árni Vilhjálmsson, söngvari í FM Belfast, og sá hljómsveitin Motion Boys um upphitun. Tónlist 14. nóvember 2008 07:00
Jóhann fær góða dóma Tónskáldið Jóhann Jóhannsson fær 6,7 í einkunn af tíu mögulegum á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchforkmedia.com fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia. Tónlist 14. nóvember 2008 06:00
Marco V á árshátíð Hollenski plötusnúðurinn Marco V spilar á árshátíð Techno.is sem verður haldin á Nasa á laugardaginn. Einnig koma fram þetta kvöld vinsælir íslenskir plötusnúðar. Tónlist 13. nóvember 2008 06:00
Árituðu ólöglegar plötur Hljómsveitin Mezzoforte er nýkomin heim frá Minsk í Hvíta-Rússlandi þar sem hún spilaði í fyrsta sinn á ferli sínum. Tónleikahöllin í borginni tekur tvö þúsund manns í sæti og var fullt út úr dyrum. Tónlist 13. nóvember 2008 03:15
Íslenskar á by:Larm Hljómsveitirnar Hjaltalín og Retro Stefson spila á norsku tónlistarhátíðinni by:Larm sem verður haldin í Ósló í ellefta sinn í febrúar á næsta ári. Tónlist 12. nóvember 2008 06:00