Gæsahúð og heiðursorður Hljómsveitin 200.000 naglbítar og Lúðrasveit verkalýðsins hafa gefið út sína fyrstu plötu. Verkefnið stóð yfir í eitt ár og yfir hundrað manns tóku þátt í því. Tónlist 13. desember 2008 06:00
Garðar heldur tónleika Garðar Cortes, hinn dáði tenórsöngvari, mun halda tvenna hádegistónleika á Kjarvalsstöðum þar sem hann flytur helstu jólaperlur tónbókmenntanna með píanóleikaranum Robert Sund. Tónleikarnir verða mánudaginn 15. og þriðjudaginn 16. desember og hefjast kl. 12.15. Tónlist 12. desember 2008 08:00
Sjaldheyrð verk á tónleikum Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur verða haldnir á sunnudag og eru með nokkuð óvenjulegri dagskrá. Tónlist 12. desember 2008 06:00
Hlíf í Friðriksborg Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari heldur tónleika á morgun í hallarkirkjunni í Friðriksborgarhöll á Sjálandi. Þar leikur hún í tilefni af sýningu á portrettmyndum föður síns, Sigurjóns Ólafssonar, sem stendur þar yfir og lýkur um áramót. Á efnisskránni eru Partíta nr. 2 í d-moll eftir Bach og Vetrartré fyrir einleiksfiðlu, sem Jónas Tómasson skrifaði fyrir Hlíf og tileinkaði henni. Tónlist 12. desember 2008 06:00
Fékk samning í Danmörku „Ég er að sjálfsögðu alveg í skýjunum með þetta," segir tónlistarmaðurinn Rúnar Eff sem hefur tryggt sér dreifingarsamning í Danmörku í kjölfar góðs gengis í raunveruleikaþættinum All Stars. Rúnar komst alla leið í úrslit í þættinum en kór hans náði á endanum ekki að tryggja sér sigur. Tónlist 12. desember 2008 06:00
Fjórar endurútgáfur af Ten Fyrsta plata rokksveitarinnar Pearl Jam, Ten, verður endurútgefin í fjórum mismunandi útgáfum 24. mars á næsta ári. Síðan platan kom út árið 1991 hefur hún skipað sér sess sem ein sú besta í rokksögunni og bíða því margir spenntir eftir þessum útgáfum. Tónlist 12. desember 2008 06:00
Plötur ársins 2008 tilkynntar Eins og jafnan á þessum tíma árs keppast nú blöð, tímarit og netmiðlar við að birta lista sína yfir bestu plötur ársins. Niðurstöðurnar eru jafn ólíkar og miðlarnir eru margir, en sé litið til heildarinnar skara sumar plötur fram úr. Tónlist 12. desember 2008 06:00
Titillag endurbætt Nýtt lag fer í spilun af plötu Motion Boys í dag, titillagið sjálft „Hang On“. Lagið verður til á tonlist.is og grapewire.is og með því fylgja fimm nýjar Tónlist 12. desember 2008 06:00
Bryndís á afmælistónleikum Í kvöld mun leik- og söngkonan Bryndís Ásmundsdóttir halda tónleika á DOMO í tilefni afmælis síns. Bryndís steig sín fyrstu spor á sviði í Íslensku óperunni tólf ára að aldri í hlutverki Soffíu í Litla sótaranum í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Þaðan lá leiðin í leikhópinn Gamanleikhúsið, sem stofnaður var af Magnúsi Geir Þórðarsyni, þar sem hún lék m.a. í sýningunum Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, Gúmmí Tarzan og Línu langsokk. Tónlist 11. desember 2008 07:45
Jólahátíð Kimi í kvöld Retro Stefson, Reykjavík!, Agent Fresco og Múgsefjun verða á meðal þeirra sem koma fram á árlegri jólahátíð Kimi Records á Nasa klukkan 20 í kvöld. Með tónleikunum vill fyrirtækið fagna útgáfuárinu með vinum og vandamönnum. Tónlist 11. desember 2008 04:30
Uppvakningar í nýju myndbandi Uppvakningar ganga lausir í nýju myndbandi Metallica við lagið All Nightmare Long. Hið níu mínútna langa myndband er byggt upp eins og sovésk heimildarmynd sem fjallar um nýstárlegar tilraunir sem fara út um þúfur með skelfilegum afleiðingum. Liðsmenn Metallica sjást hvergi í mynd en útkoman þykir afturhvarf til vandaðra myndbanda sveitarinnar frá því í gamla daga á borð við One. Tónlist 11. desember 2008 04:30
Blur í Hyde Park Hljómsveitin Blur heldur stórtónleika í Hyde Park í London þriðja júlí, níu árum eftir að sveitin spilaði síðast saman í upprunalegri mynd. Þá spilaði sveitin í Royal Festival Hall í London þegar gítarleikarinn Graham Coxon var enn innanborðs. Nú snýr hann aftur. Þá eiga Damon Albarn og félagar í viðræðum um að spila á ýmsum tónlistarhátíðum næsta sumar. Tónlist 10. desember 2008 06:00
Undirbúa nýja plötu Rokkararnir í Kings of Leon eru þegar búnir að semja fjögur til fimm lög fyrir næstu plötu sína þrátt fyrir að aðeins nokkrir mánuðir séu liðnir síðan sú síðasta, Only By the Night, kom út. Tónlist 10. desember 2008 03:45
Amnesty með tónleika Amnesty International fagnar 60 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna með tónleikum í Listasafni Reykja-víkur, Hafnarhúsinu á alþjóðlega mannréttindadaginn 10. desember. Tónlist 9. desember 2008 06:00
Dylan túrar Evrópu Meistari Bob Dylan heldur áfram linnulausu tónleikaferðalagi sínu. Næst ætlar hann í umfangsmikið tónleikaferðalag um Evrópu sem hefst í Svíþjóð í mars. Einnig spilar hann í Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi og í Bretlandi. Tónlist 7. desember 2008 06:00
Mitt hlutverk að skemmta Björgvin Halldórsson býður til sannkallaðrar jólaveislu í Laugardalshöll á morgun. Stórsöngvarinn segir eilítið aðra stemningu svífa yfir fjölum Laugardalshallarinnar heldur en í fyrra. Tónlist 5. desember 2008 08:00
Tilraunakennt popp Sin Fang Bous, öðru nafni Sindri Már Sigfússon, úr hljómsveitinni Seabear, gefur í dag út sína fyrstu plötu sem nefnist Clangour. Upptökur stóðu yfir með hléum í um það bil eitt ár. Tónlist 5. desember 2008 06:00
Leona Lewis slær sölumet Nýjasta smáskífulag söngkonunnar Leona Lewis hefur selst mest allra í Bretlandi af þeim sem hafa eingöngu komið út í stafrænu formi. Lagið, sem er hennar útgáfa af lagi Snow Patrol, Run, seldist í tæpum sjötíu þúsund eintökum á fyrstu tveimur dögunum, sem er nýtt met. Tónlist 5. desember 2008 06:00
Lil Wayne með átta Grammy-tilnefningar Bandaríski rapparinn Lil Wayne hefur verið tilnefndur til átta Grammy-verðlauna fyrir plötu sína Tha Carter III. Platan er jafnframt sú vinsælasta á árinu vestanhafs. Tónlist 5. desember 2008 06:00
Sparka í pung melódíunnar Hljómsveitin Reykjavík! var að senda frá sér aðra breiðskífu sína, The Blood. Bóas söngvari og Kristján trommari segja plötuna ofstopafulla og óþægilega áheyrnar. Tónlist 5. desember 2008 05:30
Spila stanslaust og æfa aldrei Rokksveitin Agent Fresco, sem vann Músíktilraunir í vor og undankeppni Battle of the Bands fyrir skömmu, hefur gefið út EP-plötuna Lightbulb Universe. Á henni er lagið Eyes of a Cloud Catcher sem var það vinsælasta á X-inu í tvær vikur samfleytt í sumar. Tónlist 4. desember 2008 07:00
Girls Aloud hita upp fyrir Coldplay Chris Martin og félagar hans í bresku hljómsveitinni Coldplay eru nú í óða önn að skipuleggja tónleikaferðalag um Bretland á næsta ári. Stærstu tónleikarnir verða á Wembley-leikvanginum í London í september. Það tók ekki langan tíma að selja alla miðana á tónleikana sem verða á Wembley 19. september og því hefur öðrum tónleikum verið bætt við kvöldið áður. Tónlist 4. desember 2008 06:00
Þrjár sveitir fagna útgáfu Þrjár hljómsveitir halda útgáfutónleika á næstunni til að fagna sínum nýjustu plötum. Fyrstu tónleikarnir verða á Glaumbar í kvöld þegar hljómsveitin Steini treður þar upp. Tónlist 4. desember 2008 06:00
Fyrstu tónleikarnir á Íslandi Popparinn Ingi heldur útgáfutónleika á Nasa á föstudagskvöld sem verða jafnframt hans fyrstu tónleikar hér á landi. „Ég verð með átta manna hljómsveit, þetta verður rosalega spennandi. Það er ekkert stress, bara tilhlökkun,“ segir Ingi sem var að gefa út sína fyrstu plötu, Human Oddities. Tónlist 4. desember 2008 05:30
Ætlar að syngja á íslensku „Þetta er allt frumsamið efni eftir sjálfan mig,“ segir söngvarinn Alan Jones, fyrrum X-factor keppandi. Alan, sem söng sig inn í hug og hjarta landsmanna í fyrra, hefur haft í nógu að snúast eftir keppnina og vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu sem er væntanleg í vor. Tónlist 4. desember 2008 05:00
Semur kraftapopp Billie Joe Armstrong, forsprakki Green Day, segir að „kraftapopp" verði líklega allsráðandi á væntanlegri plötu sveitarinnar. „Mér finnst gaman að leika mér með útsetningar og skoða alltaf möguleikann á að semja „kraftapopp"," sagði Armstrong. Tónlist 4. desember 2008 03:30
Stóru B-in tvö sameinast Það verður mikið um dýrðir þegar Baggalútur og Buff leika saman á dansleik á Nasa um næstu helgi. Sveitirnar hafa gert ábreiður af hvort annars lögum. Tónlist 3. desember 2008 06:00
Íslendingar áberandi Hljómsveitin Sigur Rós á næstbestu plötu ársins samkvæmt heimasíðu bandaríska tónlistartímaritsins Pastemagazine. Mugison á jafnframt 25. bestu plötu ársins á listanum, Mugiboogie. Tónlist 3. desember 2008 06:00
Hljómsveit safnar gjaldeyri fyrir Ameríkuferð Strákarnir í Sprengjuhöllinni hafa fengið boð um að spila á tveimur tónlistarhátíðum í Norður-Ameríku í mars á næsta ári. Annars vegar er það Canadian Music Week í Toronto og hins vegar South By Southwest í Austin í Texas, en forsvarsmenn beggja hátíða hrifust mjög af nýjustu plötu þeirra, Bestu kveðjur. Tónlist 3. desember 2008 05:00
Flugfreyjur syngja jólalög Flugfreyjukórinn treður upp í Fríkirkjunni í kvöld. Dömurnar skarta nýjum búningum við þetta tækifæri. Tónlist 3. desember 2008 03:00