Kynnir EP-plötu í kirkju Tónlistarkonan Ólöf Arnalds heldur hinn 24. nóvember tónleika í lítilli kirkju í London sem nefnist St. Pancras Old Church. Tónleikarnir verða haldnir til kynningar á nýrri EP-plötu hennar, Ólöf Sings, sem kemur út 7. nóvember. Hún hefur að geyma útgáfur Ólafar á lögum eftir tónlistarmenn á borð við Bob Dylan, Neil Diamond og Arthur Russell. Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason, sem býr í London, ætlar að hita upp fyrir Ólöfu. Hann gaf nýverið út sína aðra sólóplötu, Winter Sun. Önnur sólóplata, Ólafar, Innundir skinni, kom út fyrir ári. Tónlist 24. september 2011 16:00
Radiohead aftur af stað Thom Yorke, söngvari Radiohead, hefur staðfest að hljómsveitin ætli að eyða næsta ári í tónleikahald. Radiohead hefur aðeins spilað einu sinni á tónleikum eftir að platan King of Limbs kom út fyrr á þessu ári og því ættu hinir fjölmörgu aðdáendur hljómsveitarinnar að gleðjast. Tónlist 23. september 2011 21:00
Prýðilegt pabbarokk Wilco Áttunda hljóðversplata bandarísku hljómsveitarinnar Wilco kemur út í næstu viku. Jeff Tweedy og félagar gefa plötuna út sjálfir og eru á leiðinni í tónleikaferð til Evrópu. Tónlist 23. september 2011 19:00
Mills alltaf velkominn Mike Mills úr R.E.M. kom til Íslands með konu sinni í ágúst og söng með Bítladrengjunum blíðu á skemmtistaðnum Ob-la-di Ob-la-da við Frakkastíg. Tónlist 23. september 2011 13:30
Slegist um að koma landsmönnum í jólaskapið í ár Laugardagurinn 3. desember verður jólatónleikadagurinn mikli á höfuðborgarsvæðinu. Í Háskólabíói stíga sprelligosarnir síkátu í Baggalúti á svið á sínum árlegu aðventutónleikum en í Laugardalshöll verður öllu meira umstang; þar býður Björgvin Halldórsson landsmenn velkomna á Jólagesti sína, en meðal þeirra eru Paul Potts og Robin Gibb. Í Hörpunni þetta sama kvöld hefst síðan Frostrósamaraþonið mikla þegar fyrstu tónleikarnir af átta fara fram. Tónlist 23. september 2011 11:00
Tveir til liðs við Dimmu Rokksveitin Dimma ætlar að hljóðrita tónleika sína á Gauki á Stöng á fimmtudagskvöld og gefa út á stuttskífu ásamt glænýju efni í október. Tónlist 21. september 2011 21:00
Nýtt myndband frá Singapore Sling Hljómsveitin Singapore Sling frumsýnir í kvöld myndband við titillag nýútkominnar plötu sinnar, „Never Forever“. Tónlist 21. september 2011 14:34
Sissel Kyrkjebø aftur til Íslands Einn heppinn drengjasópran fær að syngja með norsku stórsöngkonunni Sissel Kyrkjebø á Frostrósar-tónleikum í Hörpu 10. desember. Haldnar verða sérstakar áheyrnarprufur um miðjan október þar sem strákar geta látið ljós sitt skína. Að sögn Samúels Kristjánssonar tónleikahaldara er ekki enn orðið ljóst hvert lagið verður sem hinn útvaldi fær að syngja. Tónlist 21. september 2011 12:00
Grúskarar með plötu Fyrsta plata Grúsks er komin út og er það Zonet sem dreifir. Á plötunni eru ellefu lög eftir Einar Oddsson sem einnig gerir textana ásamt Magnúsi Þór Sigmundssyni. Tvö laganna eru við ljóð eftir Þórarin Eldjárn og Davíð Stefánsson. Tónlist 21. september 2011 08:00
Engar undankeppnir í Eurovision „Við viljum gefa þjóðinni tækifæri til að segja hvaða lagahöfunda hún vill fá," segir Þórhallur Gunnarsson. Landsmönnum gefst í fyrsta skipti kostur á því að tilnefna þann tónlistarmann sem þeir vilja sjá í Söngvakeppni Sjónvarpsins en Þórhallur fer fyrir nefnd sem er að endurskoða hana. Tónlist 20. september 2011 17:00
Sömdu glænýtt lag um Ben Stiller Félagarnir Atli Fannar og Haukur Viðar fóru á kostum eins og venjulega í útvarpsþættinum Laugardagskaffinu á X-inu á laugardaginn. Meðal þess sem þeir félagar buðu upp á var stórskemmtilegt og glænýtt lag um Ben Stiller. Tónlist 19. september 2011 12:02
Halda upp á lífið Weirdcore-raftónlistarkvöld verður haldið á Bakkusi í kvöld. Einnig verður fagnað nýrri plötu Bix, Animalog, sem kom út 7. september. Fram koma Bix, DJ Delarosa, PLX og Futuregrapher. Tónlist 17. september 2011 18:00
Kemur í nóvember Tónleikamynd og -plata Sigur Rósar, Inni, kemur í verslanir 7. nóvember. Platan verður tvöföld og á henni verða fimmtán lög, þar á meðal Lúppulagið sem hljómar í lok myndarinnar en var áður óútgefið. Tónlist 17. september 2011 13:00
Brostinn strengur frá Lay Low Þriðja sólóplata Lovísu Elísabetar Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, hefur fengið nafnið Brostinn strengur. Tónlist 16. september 2011 09:00
Grugguppvakningar vilja endurlífga handboltarokkið Bush er ekki vinsælasta hljómsveit heims. Hún er ekki heldur sú besta né sú virkasta. Það hafa samt allir heyrt lög með Bush og sama hvað þér finnst um harpix-klístrað handboltarokkið þá er komin ný plata frá Bretunum sem allir halda að séu Kanar. Tónlist 15. september 2011 20:00
Of Monsters and Men selja grimmt í forsölu „Of Monsters and Men hefur tekist að safna stórum aðdáendahópi víðs vegar um heiminn án þess að hafa lagt í tónleikaferðir eða unnið með kynningarstofum,“ segir Haraldur Leví Gunnarsson, framkvæmdastjóri útgáfufyrirtækisins Records Records. Tónlist 14. september 2011 16:00
Rihanna syngur á nýju plötu Coldplay Breska hljómsveitin Coldplay hefur tekið upp dúett með bandarísku söngkonunni Rihönnu. Lagið heitir Princess of China og verður að finna á plötunni Mylo Xyloto sem kemur út 24. október. Tónlist 14. september 2011 16:00
Fönguðu kraftinn á einni helgi Önnur plata Hellvar, Stop That Noise, kemur út á miðvikudaginn. „Við tókum hana „live“ upp á einni helgi í desember. Aron Arnarsson var á tökkunum og þetta var hugmynd frá honum. Hann hafði verið á tökkunum hjá okkur á Airwaves og sagðist vilja fanga kraftinn hjá okkur. Það var alveg hárrétt ákvörðun hjá honum,“ segir Elvar Geir Sævarsson. Tónlist 14. september 2011 15:00
Fyrsta platan frá Two Step Horror Dúóið Two Step Horror, sem er skipað Þórði Grímssyni og Önnu Margréti Björnsson, hefur gefið út sína fyrstu plötu, Living Room Music. Parið samdi plötuna veturinn 2008 til 2009 í stofunni heima hjá sér. Hún kom út í Bretlandi í maí hjá óháðu bresku útgáfunni Outlier Records. Platan er núna fáanleg í 12 Tónum, Smekkleysu og Lucky Records. Tónlist 14. september 2011 11:00
Gylfi Ægis heldur upp á 65 ára afmælið Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson heldur upp á 65 ára afmælið sitt með því að flytja bestu lögin sín í bland við gamanmál í Salnum í Kópavogi 12. nóvember. Tónlist 14. september 2011 08:00
Þrenna á einum degi Friðrik Ómar hefur bætt miðnæturtónleikum við afmælistónleikaröð sína 1. október í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hann heldur því þrenna tónleika þennan eina og sama dag. Eitt þúsund miðar eru þegar seldir og líklega bætast nú 500 við til viðbótar. Tónlist 9. september 2011 15:00
Syngur um ást og reiði Þriðja sólóplata ensku tónlistarkonunnar Lauru Marling, A Creature I Don"t Know, kemur út eftir helgi. Breska pressan kallar tónlistina nu-folk. Tónlist 8. september 2011 10:00
Upp og niður að vinna mikið með sjálfum sér Fyrsta plata Sóleyjar Stefánsdóttur í fullri lengd, We Sink, er komin út. Þýska útgáfufyrirtækið Morr Music gefur plötuna út erlendis en hér heima annast Kimi Records útgáfuna. Sóley var í eitt ár að semja plötuna og taka upp og gekk það allt saman mjög vel. "Auðvitað komu stundir þar sem ég fékk algjörlega nóg af því að hlusta á sjálfa mig. Þetta er rosalega mikið upp og niður að vinna svona mikið með sjálfum sér,“ segir Sóley. Tónlist 7. september 2011 16:30
Björk bætir við tónleikum í Eldborg Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum á Biophilia-tónleika Bjarkar 7. nóvember. Tónleikarnir verða haldnir í stærsta sal Hörpunnar, Eldborg, sem tekur 1.600 manns í sæti. Áður höfðu miðar selst upp á átta tónleika Bjarkar í Silfurbergi sem tekur 750 manns í sæti. Miðasala á tónleikana hefst á Harpa.is og Midi.is á föstudaginn kl. 12. Tónlist 7. september 2011 10:00
Litríkur hljóðheimur Beirut Þriðja breiðskífa Beirut, The Rip Tide, er komin út. Sterk áhrif frá Balkanskaganum, Frakklandi og Mexíkó eru sem fyrr til staðar. Tónlist 1. september 2011 13:00