

Fréttir frá störfum ríkisstjórnarinnar, Alþingis og stjórnmálum almennt.
Einar Bárðarson, landsfrægur lagahöfundur og umboðsmaður, sem nú er formaður stjórnar Tónlistarmiðstöðvar Íslands, verður í öðru sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í alþingiskosningunum 30. nóvember næstkomandi.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir segir Samfylkinguna hafa fjarlægst þau gildi sem hún brennur fyrir en hún er aftur gengin til liðs við Vinstri græn. Hún segist enn brenna fyrir þau málefni sem kjarnist í stefnu flokksins og hún sé tilbúin að snúa til baka nú þegar stjórnarsamstarfinu hafi verið slitið.
Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur á Akureyri leiðir framboðslista Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi í Þingeyjarsveit vermir annað sætið.
Fjármálaráðherra hefur að stórum hluta dregið til baka upphafleg áform um verulega lækkun á endurgreiðsluhlutfalli og hámarki á frádráttárbærum kostnaði í tengslum við rannsóknir og þróun nýsköpunarfyrirtækja sem hefði, að mati hagsmunasamtaka í hugverkaiðnaði, valdið því að fyrirtæki myndu færa þróunarstarfsemi sína úr landi. Samtök iðnaðarins segja breytingarnar frá frumvarpsdrögum „jákvæðar“ en vilja sjá meira gert sem snýr að skattahvötum.
Alma Möller, landlæknir, mun leiða lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi er í öðru sæti og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður, í því þriðja.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, leiðir lista flokksins í Reykjavík norður, Dagur B. Eggertsson, læknir og fyrrverandi borgarstjóri, er í öðru sæti og Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður, í því þriðja.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, mun leiða lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Kjördæmissamband Framsóknar í kjördæminu hefur samþykkt framboðslistann.
Framboðslistar Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 voru samþykktir á allsherjarfundi Samfylkingarfélaganna í Reykjavík í félagsheimili Þróttar í Laugardal í dag. Jóhann Páll leiðir í Reykjavíkurkjördæmi suður og Kristrún Frostadóttir í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Logi Einarsson, alþingismaður og formaður þingflokks Samfylkingarinnar, leiðir listann í Norðausturkjördæmi. Eydís Ásbjörnsdóttir, skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, og fjórða sætið skipar Sindri Kristjánsson lögfræðingur.
Nk. miðvikudag býðst mér að fara í beina útsendingu á Stöð 2 með forsvarsmönnum annarra flokka – ef XL hefur þá náð tilskildum fjölda meðmæla. Þegar þetta er ritað, á laugardagsmorgni, vantar aðeins nokkur hundruð meðmæli.
Uppstillinganefnd Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi hefur lagt til að Ingibjörg Davíðsdóttir leiði lista flokksins í kosningunum í næsta mánuði. Ingibjörg er 53 ára Borgfirðingur, frá Arnbjargarlæk í Þverárhlíð. Hún er stjórnmálafræðingur (BA) frá HÍ og með MA í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Kantaraborg í Bretlandi.
Inga Sæland formaður og stofnandi Flokks fólksins gerir lítið úr væringum innan flokksins nú þegar hún leiðir hann í fjórða sinn í kosningum til Alþingis. Tveir áberandi þingmenn í forystu flokksins, Tómas A. Tómasson í Reykjavíkurkjördæmi norður og Jakob Frímann Magnússon í Norðausturkjördæmi, fengu ekki brautargengi til að leiða flokkinn í kjördæmum sínum.
Svandís Svavarsdóttir útdeildi tveimur milljónum af skúffupeningum sínum til Kvenréttindafélags Íslands sinn síðasta dag í embætti sem innviðaráðherra í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Samtals hafa sjö ráðherrar ríkisstjórnar útdeilt 9.095.000 krónum í ýmis verkefni af ráðstöfunarfé á þessu ári.
Mig langar að benda þér á nokkuð, sem hlýtur að vera yfirsjón, og þú vilt örugglega leiðrétta fyrir kjördag. En fyrst vil ég hrósa þér fyrir það sem vel er gert. Nýsköpun og tækniþróun á Íslandi hafa blómstrað undanfarin ár. Þú hefur ræktað þessar greinar með auknu fjármagni og breyttu styrkjaumhverfi. Vandinn er hins vegar sá að þessi nýsköpun og tækniþróun munu stöðvast nema þú leiðréttir fjármögnun til háskólastigsins. Lof mér að útskýra.
Almannatengill segir ásókn karla á lista Samfylkingarinnar geta reynst flokknum erfið enda er hann bundinn af reglum um fléttu- eða paralista. Það geti verið snjallt þegar formenn flokka tjá sig lítið um eigin skoðanir í dægurmálum.
„Það er þannig að sumir lenda á milli og þá eru engin úrræði sem passa við. Við sjáum það í samtölum við fólk að það eru til börn og ungmenni sem eru með þannig vandkvæði að þau passa hvergi. Við finnum það öll að þegar það er talað um málefni barna að þetta er viðkvæmt og miklar tilfinningar í þessu. Fyrir utan það að það er auðvitað kostnaður fyrir samfélagið að það verði til fólk sem brýtur af sér eða verði ekki nýtir þjóðfélagsþegnar.“
Töluvert fleiri vilja sjá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra eða Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, leiða Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum í stað Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, ef marka má nýja skoðanakönnun.
Ákvörðun matvælaráðherra að taka umsókn um leyfi til hvalveiða til efnislegrar meðferðar stuttu fyrir kosningar er hneyksli og ber vott um valdníðslu að sögn talskonu Hvalavina. Vinstri græn beri ábyrgð á stöðunni sem upp sé komin.
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður fjárlaganefndar, skipar fyrsta sæti lista flokksins í Norðvesturkjördæmi. Kjördæmissamband Framsóknar í Norðvesturkjördæmi kom saman klukkan 18 í dag og hefur samþykkt framboðslista.
Listar Vinstri grænna fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður og suður voru samþykktir á fundi flokksins sem hófst á Nauthóli klukkan 17:30 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Kunnugleg andlit skipa fyrstu sæti beggja lista en athygli vekur að Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, skipar heiðurssæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Það er kjördæmið sem hún skipaði áður forystusætið.
Flestir myndu vilja fá sér drykk með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, af formönnum stjórnmálaflokkanna. Næst flestir myndu vilja drekka með Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins. Þó myndu enn fleiri ekki vilja drekka með neinum af stjórnmálaleiðtogunum.
Dagur B. Eggertsson kveðst spenntur fyrir komandi kosningabaráttu og vilja vera þingmaður fyrir alla landsmenn, fái hann þingsæti. Hann segir uppi mikla kröfu um nýja ríkisstjórn en gerir engar kröfur um ráðherrasæti myndi Samfylking nýja ríkisstjórn.
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, gaf kost á sér í annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi kosningum. Hann taldi rétt að sækjast eftir því í stað oddvitasætis í ljósi þess að hann er að hefja nýjan kafla í stjórnmálaþátttöku sinni.
Jón Magnús Kristjánsson, fyrrverandi yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, sem bauð sig fram til þriðja eða fjórða sætis á lista Samfylkingar í Reykjavík verður ekki að ósk sinni. Hann greinir frá því í færslu á Facebook.
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, mun ekki skipa efsta sæti á öðrum lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum. Viðbúið er að hann skipi annað sætið á framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Ragna Sigurðardóttir, læknir og varaþingmaður, hefur verið tilnefnd af uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í annað sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Kosið verður um lista Samfylkingarinnar á morgun.
Lagt er til að fjárveitingar til landhelgismála verðir auknar um 350 milljónir króna í ár vegna kostnaðar við viðgerð á hreyflum TF-SIF, flugvélar Landhelgisgæslunnar. Forstjóri Landhelgisgæslunnar hefur kvartað undan því að stofnunin geti ekki rekið flugvél til að fylgjast með landhelginni.
Yfirleitt spyrst út þegar einhverjir eru á framboðsskóm og berast þá jafnan inn á ritstjórnargólf. En ekki hjá Samfylkingu nú um stundir. Þar halda menn spilum þétt að sér. Víst er að þar er við nokkurn vanda að etja þegar raða skal í efstu sæti í Reykjavíkurkjördæmunum norður og suður.
Formaður VG segir vendingar í matvælaráðuneytinu og mögulegt leyfi til hvalveiða draga fram hvernig Sjálfstæðisflokkurinn umgangist völd þegar viðnámið sé lítið. Það hljómi sem brandari að líkja útgáfu hvalveiðileyfis við útgáfu ökuskírteinis, líkt og Jón Gunnarsson hafi gert.
Samfylkingin skar sig úr í frumkvæðisathugun Persónuverndar á notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir kosningar til Alþingis 2021, með víðtækri notkun persónusniða á grundvelli skráningar Facebook á áhugamálum notenda. Viðreisn nýtti sér upplýsingar um þá sem líkað höfðu við flokkinn á Facebook og Instagram og heimsótt vefsíðu hans. Þó var ekki talið tilefni til að beita valdheimildum Persónuverndar.