Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Enn eitt inn­brotið í mið­bænum

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrotsþjóf í heimahúsi í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þjófurinn var staðinn að verki við að brjótast inn í mannlausa íbúð en nágrannar yfirbuguðu hann og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang.

Innlent
Fréttamynd

Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti

Til skoðunar er að stækka það svæði í miðborginni sem vaktað er með öryggismyndavélum að sögn borgarstjóra. Ráðist verður í nágrannavörsluátak í Reykjavík í kjölfar innbrotahrinu.

Innlent
Fréttamynd

Enn brotist inn í mið­bænum

Tilkynnt var um enn eitt innbrotið í fyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík í dag. Fjallað hefur verið um þráláta hrinu innbrota í miðborginni undanfarið.

Innlent
Fréttamynd

Regn­boginn kominn aftur á tröppurnar

Regnbogafáninn er kominn aftur á tröppurnar við Grafarvogskirkju. Íslenski fáninn var í skjóli nætur málaður yfir regnbogafána sem áður prýddi tröppurnar þann áttunda júlí.

Innlent
Fréttamynd

Loðinn laumu­far­þegi sníkti far frá Úlfarsfelli

Steinunn Þórðardóttir lenti í miður skemmtilegri upplifun eftir að hafa hlaupið tuttugu kílómetra á Úlfarsfelli á fimmtudaginn. Eftir að hún kom heim í Hlíðarnar skaust minkur upp undan húddinu á bíl hennar, stökk af bílnum og hljóp í átt að Kringlumýrabraut.

Lífið
Fréttamynd

Búast við fjöl­mennasta Innipúka til þessa

Nóg verður um að vera um verslunarmannahelgina sem nú er gengin í garð. Skipuleggjendur Einnar með öllu ætla ekki að láta rigningu á sig fá og finna fyrir því að Blö-menn hafi aukið áhugann á Akureyri yfir helgina. Skipuleggjendur Innipúkans í Reykjavík búast við sinni stærstu hátíð til þessa.

Innlent
Fréttamynd

Bruni við Breiðhöfða

Eldur kom upp í gámasamstæðu á byggingarreit við Breiðhöfða í Reykjavík í kvöld. Slökkvistarf hefur gengið vel.

Innlent
Fréttamynd

Halla Hrund og uglurnar þrjár

Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins varð fyrir sérkennilegri upplifun þegar hún fór til að veiða lax í Elliðaám fyrr í sumar.

Lífið
Fréttamynd

Okkar McCartney, okkar Bach kveður

Gunnar Þórðarson tónlistarmaður er allur og íslenski tónlistarbransinn er í sárum. Eins og Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður segir hafa nú fjórir merkir tónlistarmenn kvatt á þessu ári og við erum fátækari í dag en í gær – miklu fátækari í ár en í fyrra: Magnús Eiríksson, Björgvin Halldórsson, Megas og nú Gunnar Þórðarson sem hlýtur að teljast risi á þessum vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Gunnar Þórðar­son er látinn

Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, er látinn 81 árs að aldri. Gunnar hefur átt við veikindi að stríða undanfarin ár og meðal annars barist við Parkinson-veiki.

Innlent
Fréttamynd

Gæslu­varð­hald sam­þykkt yfir Ming Ting

„Það var fallist á gæsluvarðhaldskröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærkvöldi,“ staðfestir Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Ting Mancel, sakbornings í Edition-málinu svokallaða. Mancel var í gær dæmd til tólf ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir samverknað í morði á dóttur sinni.

Innlent
Fréttamynd

Gripinn á nánast tvö­földum há­marks­hraða

Lögregla stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur í Hlíðahverfi Reykjavíkur sem keyrði á nánast tvöföldum hámarkshraða. Hraði hans mældist 87 kílómetrar á klukkustund þar sem hæsti leyfilegi hraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Málinu var lokið á staðnum með greiðslu sektar.

Innlent
Fréttamynd

Um­fangs­miklar götulokanir í kringum al­myrkva

Umfangsmiklar götulokanir verða í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi á meðan almyrkvi á sólu sést yfir vesturhluta landsins í ágúst. Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Einn helsti stjörnuáhugamaður landsins ætlar sjálfur að fylgjast með sólmyrkvanum heima hjá sér í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi

Ming Ting Mancel hefur verið dæmd í tólf ára fangelsi í Edition-málinu svokallaða. Hún var ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi, með því að verða 29 ára gamalli dóttur sinni að bana á hótelherbergi á Reykjavík Edition í miðbæ Reykjavíkur milli 13. og 14. júní í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Edda Falak og Kristján Helgi selja í­búð í 101

Edda Falak Yamak, fyrrverandi hlaðvarpsstjórnandi, og Kristján Helgi Hafliðason, þjálfari hjá Mjölni, hafa sett íbúð sína að Holtsgötu 24 á sölu. Íbúðin er 58,6 fermetrar að stærð og ásett verð hennar 61,9 milljón króna.

Lífið
Fréttamynd

Fluttur til Dan­merkur með al­var­leg bruna­sár

Karlmaður hefur verið fluttur með alvarleg brunasár á sérhæfðan brunaspítala í Kaupmannahöfn vegna atviks sem kom upp í flöskumóttöku Grænna skáta í Hraunbæ í Reykjavík síðastliðinn föstudag. Maðurinn var starfsmaður þar.

Innlent
Fréttamynd

Þúsund sjúkra­flug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“

Sjúkraflugferðum hefur fjölgað umtalsvert á milli ára en slökkviliðsstjóri á Akureyri segir ástæðurnar vera margar. Það hafi hátt í níutíu flugferðir verið skráðar það sem af er liðnum júlímánuði, sem sé met, en gott veður víða um land, ferðamannastraumur og minni heilbrigðisþjónusta í boði á landsbyggðinni sé meðal þess sem valdi miklum fjölda ferða. Það sé nauðsynlegt að auka fjármagn til að tryggja góða þjónustu.

Innlent