t.A.T.u kemur fram í Sotsjí Þær Lena Katina og Yulia Volkova í hljómsveitinni t.A.T.u munu koma fram fyrir setningarathöfnina á Ólympíuleikunum í Sotsjí. Sport 6. febrúar 2014 10:53
Er ekkert smeyk í brekkunni Helga María Vilhjálmsdóttir missir af bæði kynningunni á íslenska Ólympíuhópnum og setningarathöfninni á ÓL í Sotsjí. Hún valdi að undirbúa sig betur. Sport 6. febrúar 2014 06:00
Shaun White dregur sig úr keppni Bandaríski snjóbrettakappinn Shaun White hefur dregið sig úr keppni í "slopestyle“ greininni á Ólympíuleikunum í Sotsjí. Sport 5. febrúar 2014 15:45
Sævar verður fánaberi Íslands á setningarhátíðinni Sævar Birgisson, keppandi í skíðagöngu, verður fánaberi Íslands á setningarhátíð XXII Vetrarólympíuleikana í Sotsjí sem fram fer að kvöldi 7. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Sport 5. febrúar 2014 13:17
Jamaíska bobsleðaliðið missti af æfingu í Sotsjí Það byrjar ekki vel hjá Jamaíska bobsleðaliðinu sem ætlar að taka þátt í Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí en leikarnir verða settir á föstudaginn. Sport 5. febrúar 2014 12:20
57 prósent telja líkur á hryðjuverkaárás Bandaríkjamenn óttast hryðjuverk á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí. Erlent 5. febrúar 2014 12:09
Flækingshundar, skítugt vatn og ónýt klósett í Sochi Blaðamenn sem eru komnir til Sotsjíi segja frá hræðilegum aðbúnaði. Erlent 5. febrúar 2014 09:47
Mótmælt víða um heim vegna Vetrarólympíuleikanna Styrktaraðilar hvattir til að fordæma lög sem banna umræðu um samkynhneigð. Erlent 5. febrúar 2014 09:03
"Það fyrsta sem ég sagði var nei, nei, nei“ Draumur Maríu Guðmundsdóttur um að keppa á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí dó á einu augnabliki í skíðabrekku í Þýskalandi í fyrradag. Akureyringurinn meiddist illa á hné og hefur ekki enn gert upp við sig hvort hún ætli að halda skíðaiðkun áfram. Sport 5. febrúar 2014 08:00
Sögulegt stökk Shaun White Snjóbrettakappinn Shaun White skráði sig á spjöld sögunnar á Vetrarólympíuleikunum í Vancouver fyrir fjórum árum. Sport 4. febrúar 2014 23:45
Pútín róar hlébarðaunga Rússlandsforseti sagður hafa náð stjórn á dýrinu eftir að það særði tvo fréttamenn. Erlent 4. febrúar 2014 21:47
Senda Maríu batakveðjur "Þetta lítur alls ekki vel út og allar líkur á að krossbandið sé slitið aftur og að innra liðbandið sé tognað,“ skrifar skíðakonan María Guðmundsdóttir á Fésbókarsíðu sína. Sport 4. febrúar 2014 20:39
Baðherbergi með tveimur klósettum í Sotsjí vekur mikla athygli Myndir af klósettunum hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum á borð við Twitter. Sport 4. febrúar 2014 19:31
Hóta að ræna Ólympíuförum Austurríska Ólympíusambandinu hefur borist nafnlaust bréf frá Rússlandi þar sem því er hótað að ræna tveimur austurrískum Ólympíuförum. Sport 4. febrúar 2014 17:30
Allar aðstæður til fyrirmyndar hjá íslenska hópnum í Sotsjí "Aðstæður eru mjög flottar og fínar og við erum svona að koma okkur fyrir,“ segir Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ. Sport 4. febrúar 2014 15:06
„Stjórnmálamenn eiga að halda sig víðsfjarri Ólympíuleikunum“ Vetrarólympíuleikarnir í Sotsjí eru á næsta leyti en leikarnir hefjast 7. febrúar. Athygli vekur á að Íslendingar senda samanlagt fjóra opinbera fulltrúa á Ólympíuleikana og Ólympíuleika fatlaðra í mars. Innlent 4. febrúar 2014 12:03
Pútín herðir lög gegn mótmælum Lögin umdeildu, sem samþykkt voru með hraði síðasta sumar, hafa nú verið hert stuttu fyrir Ólympíuleikana. Erlent 4. febrúar 2014 11:45
Erla fer til Sotsjí í stað Maríu Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands tilkynnti í morgun að skíðakonan Erla Ásgeirsdóttir muni taka sæti Maríu Guðmundsdóttur á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí. Sport 4. febrúar 2014 08:53
Ólympíudraumur Maríu úti María Guðmundsdóttir meiddist illa á hné í stórsvigskeppni í Þýskalandi í dag. Hún missir af Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí af þeim sökum. Sport 3. febrúar 2014 20:19
Drepa hunda í Sotsjí Þúsundir flökkuhunda er að finna í borginni Sotsjí í Rússlandi þar sem Vetrarólympíuleikarnir verða settir á föstudaginn. Sport 3. febrúar 2014 20:00
Ban Ki-moon mætir til Sotsjí Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa ákveðið að sitja heima á setningarhátíð Vetrarólympíuleikanna í Sotsjí sem fram fer á föstudaginn. Sport 3. febrúar 2014 18:00
Tignarlegur Pútín prýðir forsíðu The Economist Forseti Rússlands er gagnrýndur vegna Vetrarólympíuleikanna í Sotsjí. Erlent 3. febrúar 2014 14:45
Keyrir búnaðinn á milli staða í Evrópu Fjalar Úlfarsson, landsliðsþjálfari Íslands í alpagreinum, þarf oft að hafa mikið fyrir því að koma græjum íslenska Ólympíuhópsins á milli staða. Sport 3. febrúar 2014 06:30
Við þurfum að gera eitthvað á leikunum Fjalar Úlfarsson, landsliðsþjálfari Íslands í alpagreinum, leggur áherslu á að íslensku keppendurnir nái árangri á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí. Okkar fólk hafi þegar fengið smjörþefinn af stórviðburðum. Sport 3. febrúar 2014 06:00
Helga María náði öðru sæti í Noregi Ólympíufarinn Helga María Vilhjálmsdóttir stóð sig frábærlega á stórsvigsmóti í Norefjell í dag en hún náði þá öðru sætinu. Sport 1. febrúar 2014 20:31
„Þetta er auðvitað það stærsta sem maður kemst í“ „Síðan maður var lítill krakki var það markmið mitt að komast á Ólympíuleikana. Nú er það orðið að veruleika,“ segir Einar Kristinn Kristgeirsson. Breiðhyltingurinn verður á meðal fjögurra íslenskra keppenda í alpagreinum á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí. Sport 1. febrúar 2014 00:01
Sotsjí er öruggasti staðurinn á jörðinni Íþróttafólkið er farið að týnast til Sotsjí í Rússlandi þar sem að Vetrarólympíuleikarnir verða settir í lok næstu viku. Rússar ætla að sjá til þess að öll öryggisgæsla verði fyrsta flokks og jafnvel enn betri en það. Sport 31. janúar 2014 23:00
Einar Kristinn stóð sig vel í Austurríki Íslensku Ólympíufararnir Einar Kristinn Kristgeirsson og Brynjar Jökull Guðmundsson kepptu í dag á svigmóti í Piesendorf í Austurríki en þeir eru í lokaundirbúningi sínum fyrir Vetrarólympíuleikana í Sotsjí í Rússlandi. Sport 31. janúar 2014 18:07
Forsetahjónin verða viðstödd í Sotsjí Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff, forsetafrú, hafa þegið boð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Alþjóðaólympíunefndarinnar um að vera viðstödd upphaf Vetrarólympíuleikanna í Sotsjí. Innlent 31. janúar 2014 10:45
55 ára prins ætlar að keppa fyrir Mexíkó á ÓL í Sotsjí Prins Hubertus of Hohenlohe-Langenburg er á leiðinni til Rússlands þar sem hann ætlar að keppa í alpagreinum. Þetta er kannski ekki fréttnæmt nema vegna þess að hann er 55 ára gamall og eini keppandi Mexíkó á öðrum Vetrarólympíuleikunum í röð. Sport 30. janúar 2014 23:30