Grótta burstaði Fram Einn leikur var á dagskrá í ss bikar kvenna í handbolta í kvöld. Grótta burstaði Fram 28-15 á Seltjarnarnesi eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-5. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir var markahæst í liði Gróttu með fimm mörk. Handbolti 24. október 2006 21:19
Haukastúlkur lögðu HK Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í kvöld. Haukar unnu þar sannfærandi útisigur á HK í Digranesi 26-39. Haukar hafa hlotið 6 stig í 4 leikjum í deildinni en HK hefur aðeins unnið einn leik. Handbolti 18. október 2006 21:11
Grótta á toppnum Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í handknattleik í kvöld. Gróttustúlkur styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar með auðveldum sigri á HK 32-24 og hefur liðið unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni. Handbolti 13. október 2006 20:50
Leik kvöldsins frestað Leik Hauka og Stjörnunnar í DHL-deild kvenna sem fara átti fram í kvöld klukkan 20 hefur verið frestað og fer hann fram á sama tíma annað kvöld. Handbolti 10. október 2006 17:59
Stjarnan stöðvaði Gróttu Eftir að hafa sigrað í þremur fyrstu þremur deildarleikjum sínum brotlenti kvennalið Gróttu í Ásgarði í gær. Leikurinn var jafn og spennandi lengi vel en í síðari hálfleik keyrðu Stjörnustúlkur yfir gesti sína, skoruðu níu mörk í röð og sigruðu á endanum 35-28. Handbolti 9. október 2006 10:00
Valur og Fram unnu Valsstúlkur lögðu HK að velli í Digranesi 23-33 og Framstúlkur unnu Akureyri í Safamýrinni 29-21. Handbolti 7. október 2006 17:42
Grótta lagði Íslandsmeistarana Gróttustúlkur byrja leiktíðina vel í DHL deild kvenna í handbolta en þær lögðu sjálfa Íslandsmeistarana 26-21 á heimavelli sínum á Seltjarnarnesi í kvöld. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir var markahæst í liði Gróttu með 7 mörk, Sandra Paegle skoraði 5 og Kristín Þórðardóttir skoraði 4 mörk. Handbolti 4. október 2006 21:09
Þrír leikir í kvöld Þrír leikir fara fram í DHL-deildinni í handbolta í kvöld, tveir í karlaflokki og þá verður leikur Gróttu og ÍBV í kvennaflokki spilaður klukkan 19 á Seltjarnarnesi eftir að leiknum var frestað í gær. Í karlaflokki mætast Stjarnan og HK í Ásgarði klukkan 19 og Fram tekur á móti Haukum í Framhúsinu klukkan 20. Handbolti 4. október 2006 15:36
Fram skellti Haukum Þrír leikir fóru fram í DHL deild kvenna í handknattleik. Fram vann óvæntan útisigur á Haukum 21-20, Valur lagði Stjörnuna 22-20 í Laugardalshöll og FH lagði lið Akureyrar 21-18 fyrir norðan. Handbolti 3. október 2006 21:42
Leik Gróttu og ÍBV frestað Leik Gróttu og ÍBV sem fara átti fram á Seltjarnarnesi nú klukkan 19 hefur verið frestað vegna ófærðar til og frá Vestmannaeyjum. Leikurinn verður þess í stað á dagskrá annað kvöld klukkan 19 ef veðurguðirnir lofa. Handbolti 3. október 2006 18:38
Þriðja umferðin hefst í kvöld Í kvöld hefst þriðja umferð DHL-deildar kvenna í handknattleik með fjórum leikjum. Í Laugardalshöll mætast Valur og Stjarnan klukkan 20 og á sama tíma eigast við Haukar og Fram að Ásvöllum. Klukkan 19 eigast við Akureyri og FH í KA heimilinu fyrir norðan og Grótta mætir ÍBV á Seltjarnarnesi. Handbolti 3. október 2006 14:49
Haukar unnu grannaslaginn Fjórir leikir fóru fram í DHL deild kvenna í handbolta í dag. Haukastúlkur lögðu granna sína í FH nokkuð örugglega í Kaplakrika 29-22, Stjarnan valtaði yfir HK 39-21, Grótta lagði Fram á útivelli 26-23 og loks vann ÍBV góðan sigur á Val í Eyjum 30-26. Handbolti 30. september 2006 20:32
HK lagði ÍBV Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð DHL deildar kvenna í handknattleik í kvöld. HK lagði ÍBV nokkuð óvænt í Digranesi 27-24, Grótta lagði FH 26-20 og þá gerðu Reykjavíkurliðin Valur og fram jafntefli 25-25. Handbolti 26. september 2006 22:24
Handboltinn byrjar í kvöld Íslandsmótið í handbolta DHL - deild kvenna hefst í kvöld með þremur leikjum. Stjarnan verður Íslandsmeistari samkvæmt spá forráðamanna liðanna sem birt var í gær og Haukar verða í öðru sæti. Valur, sem spáð er þriðja sæti, tekur á móti Fram klukkan átta í Laugardalshöll. ÍBV, sem lendir í fjórða sæti samkvæmt spánni, mætir HK á útivelli og þá mætast Grótta og FH , en þessir leikir hefjast klukkan sjö. Keppni í karlaflokki hefst annað kvöld , en þar er Valsmönnum spáð titlinum. Handbolti 26. september 2006 13:54
Spá þjálfara og forráðamanna Valsmönnum er spáð Íslandsmeistaratitlinum í DHL-deild karla, samkvæmt spá þjálfara og forráðamanna. Fram er spáð öðru sætinu, síðan koma Haukar, Stjarnan, HK og Akureyri. Fylkismönnum og ÍR-ingum er spáð falli í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í dag. Handbolti 25. september 2006 13:50
Haukar lögðu ÍBV Haukastúlkur fögnuðu í kvöld sigri í meistarakeppni HSÍ þegar þær lögðu Eyjastúlkur örugglega í Eyjum 33-24 eftir að hafa verið yfir 14-11 í hálfleik. Þetta var árlegur leikur Íslands- og bikarmeistaranna í kvennaflokki og annað kvöld fer fram meistarakeppnin í karlaflokki þar sem Íslandsmeistarar Fram tekur á móti Stjörnunni í Safamýrinni. Handbolti 19. september 2006 21:42
Handboltavertíðin hefst á morgun Á morgun hefst handboltavertíð vetrarins með formlegum hætti þegar kvennalið ÍBV og Hauka leiða saman hesta sína í Vestmannaeyjum í meistarakeppni HSÍ. Á miðvikudaginn er svo komið að körlunum þar sem Fram og Stjarnan eigast við í Framhúsinu. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19. Handbolti 18. september 2006 19:15
Valsmenn ætla sér stóra hluti Handknattleiksdeild Vals ætlar sér stóra hluti í karla- og kvennaflokki á næstu leiktíð og nú hefur félagið tilkynnt leikmannahópa sína í báðum flokkum fyrir veturinn. Landsliðsmaðurinn Markús Máni Michaelsson hefur sem kunnugt er ákveðið að snúa aftur á Hlíðarenda og þá hefur félagið gert samning við hinn efnilega Ernir Hrafn Arnarson. Handbolti 23. ágúst 2006 14:17
Einar tekur við ÍBV Einar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari Íslandsmeistara ÍBV í DHL-deild kvenna í handknattleik fyrir næstu leiktíð og tekur hann við af Alfreð Finnssyni sem stýrt hefur liðinu undanfarin tvö ár. Einar kemur úr röðum Fram, þar sem hann hefur starfað sem leikmaður og þjálfari síðustu ár. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV. Sport 10. maí 2006 15:51
Sigur hjá Stjörnunni og Val Fyrri leikirnir í undanúrslitum deildarbikars kvenna fóru fram í kvöld. Stjarnan lagði ÍBV í Eyjum 24-20 og Valsstúlkur lögðu Hauka 23-22 í æsispennandi leik í Laugardalshöllinni. Sport 25. apríl 2006 21:11
Stórskytta til ÍBV? Kvennalið ÍBV í handboltanum hefur átt í viðræðum við rúmensku stórskyttuna Alinu Petrache um að hún gangi til liðs við Eyjaliðið á næstu leíktíð. Petrache þessi leikur með Constanta og fór mikinn í tveimur leikjum liðsins gegn Valsstúlkum í undanúrslitum Áskorendakeppni Evrópu. Sport 25. apríl 2006 14:15
ÍBV í sterkri stöðu Kvennalið ÍBV stendur með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina í DHL-deild kvenna í handknattleik eftir að liðið sigraði Gróttu 28-24 í Vestmannaeyjum í dag. Á sama tíma töpuðu Íslandsmeistarar Haukar fyrir Val 28-25 og því hefur ÍBV eins stigs forskot á Hauka og Val fyrir lokaumferðina. Sport 25. mars 2006 18:18
Haukastúlkur aftur á toppinn Haukar komust aftur á topp DHL-deildar kvenna í handbolta með 8 marka sigri á næst neðsta liði deildarinnar, Víkingi á Ásvöllum í Hafnarfirði, 31-23. Ramune Pekeskyten var markahæst Hauk með 12 mörk en Hekla Daðadóttir var markahæst Víkinga með 7 mörk. Sport 19. mars 2006 20:35
Eyjastúlkur á toppinn ÍBV tyllti sér á topp DHL-deildar kvenna í handbolta síðdegis með því að leggja FH að velli í Eyjum, 29-23. Eyjastúlkur eru með eins stig forystu á Val og Hauka en Hafnarfjarðarliðið getur endurheimt toppsætið um kvöldmatarleytið þegar Haukar mæta næst neðsta liðinu, Víkingi kl. 18. Sport 19. mars 2006 17:32
Valsstúlkur á toppinn Valur komst í dag á topp DHL-deildar kvenna í handbolta með 8 marka sigri á Fram, 21-29 í Framhúsinu. Valsstúlkur eru efstar ásamt Haukum með 26 stig en Haukar eiga leik til góðar gegn Víkingi á morgun. Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni í dag. HK lagði KA/Þór, 31-24 og eru enn í 7. sæti með 11 stig. Að lokum vann Stjarnan fjögurra marka útisigur á Gróttu, 19-23. Sport 18. mars 2006 16:23
Haukar lögðu Selfoss Tveir leikir fóru fram í DHL-deild karla í handknattleik. Haukar lögðu Selfoss 33-28 á heimavelli sínum Ásvöllum og Stjarnan gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn og skellti FH 31-26. Þá var einn leikur í DHL-deild kvenna, Grótta marði sigur á FH á útivelli 26-25. Sport 12. mars 2006 21:46
Haukar lögðu Stjörnuna Haukar gerðu í dag góða ferð í Garðabæinn þar sem liðið skellti heimamönnum í Stjörnunni í DHL-deild kvenna í handbolta 29-26. Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst í liði Hauka með 12 mörk og Ramune Pekarskite skoraði 7 mörk. Hjá Stjörnunni skoraði Rakel Dögg Bragadóttir 7 mörk og Sólveig Kjærnested 6 mörk. Sport 11. mars 2006 17:55
ÍBV lagði KA/Þór Kvennalið ÍBV gerði góða ferð norður á Akureyri í dag þegar það skellti heimamönnum í KA/Þór 25-19. Pavla Plaminkova skoraði 9 mörk fyrir Eyjastúlkur, en Guðrún Helga Tryggvadóttir skoraði 6 mörk fyrir heimaliðið. Sport 11. mars 2006 16:10
Valur vann fyrri leikinn við Bruhl Kvennalið Vals vann sigur á svissneska liðinu Bruhl í kvöld í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu í handbolta 25-21. Leikurinn fór fram í Laugardalshöll og sá síðari verður leikinn á morgun á sama stað, þar sem svissneska liðið seldi heimaleik sinn. Sport 10. mars 2006 20:52
Valur á toppinn Valsstúlkur lyftu sér á toppinn í DHL-deild kvenna í kvöld þegar þær burstuðu lið HK 41-26 í Laugardalshöllinni. Þá vann Stjarnan góðan sigur á Fram í Safamýrinni 31-26. Sport 7. mars 2006 22:20
Uppgjörið og viðtöl: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti