Nennum Nýsköpun Nýsköpun er nauðsynleg, annars stöndum við í stað. Oft er talað um að krísa sé móðir tækifæranna og ýti undir að nýjar hugmyndir og aðferðir líti dagsins ljós, þá af nauðsyn. Í velmegun og stöðugleika eru vandamálin og áskoranirnar ekki alveg jafn aðkallandi. En við lifum svo sannarlega ekki á tímum stöðugleika þó svo við búum við öll heimsins gæði. Jörðin skelfur og brennur og átök geisa. Við erum mitt í stórri krísu og yfir okkur vofir loftslagsváin. Við þurfum nýjar lausnir, sem leysa af hólmi núverandi aðferðir, ferla og samfélagssýn sem eru á góðri leið að tortíma veruleikanum okkar. Skoðun 5. september 2022 17:30
Sling selt á nærri níu milljarða króna til bandarísks tæknirisa Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sling, sem var stofnað af Helga Hermannssyni fyrir um sjö árum síðan, var keypt fyrr í sumar á samtals um 60,6 miljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 8,6 milljarða króna á gengi dagsins í dag, af bandaríska tæknifyrirtækinu Toast. Stærstur hluti kaupverðsins var í formi reiðufjár en stjórnendur Sling fengu einnig afhent hlutabréf í Toast sem skráð í kauphöllinni í New York (NYSE). Innherji 5. september 2022 07:00
Fyrrverandi bankastjóri Landsbankans kemur inn í stjórn CRI Stokkað hefur verið upp í stjórn íslenska tæknifyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI) og þá hefur Sigurlína Ingvarsdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi og fjárfestir, tekið við sem stjórnarformaður en hún hefur setið í stjórn CRI frá því vorið 2021 þegar félagið Eyrir Invest kom inn í hluthafahóp CRI sem leiðandi fjárfestir. Innherji 30. ágúst 2022 20:01
Eina eintakið fauk út í logandi hraunið Spilahöfundarnir Guðmundur Egilsson og Ásgeir Frímannsson lentu heldur betur í óhappi þegar þeim datt í hug að nýta eldgosið í markaðsefni: „Við vorum að vera sniðugir að taka upp markaðsefni fyrir spilið þegar spilakassinn okkar fauk út í logandi hraunið og brann til kaldra kola.“ Lífið 30. ágúst 2022 15:31
Orkuveitan freistar þess að fá alþjóðlegt fjármagn inn í rekstur Carbfix Orkuveita Reykjavíkur mun hefja undirbúning að hlutafjármögnun dótturfélagsins Carbfix sem gæti numið um 1,4 milljörðum króna. Fjöldi alþjóðlegra fjárfesta, þar á meðal Credit Suisse og og fjárfestingaarmur norska ríkisolíufélagsins Equinor, hefur lýst yfir áhuga á því að koma að uppbyggingu íslenska nýsköpunarfyrirtækisins. Innherji 26. ágúst 2022 07:25
Simon tekur við heimilisbókhaldinu af Georgi Meniga hefur ráðið Simon Shorthose í starf forstjóra. Hann tekur við af Georg Lúðvíkssyni, meðstofnanda Meniga, fyrirtæki sem sérhæfir sig í heimilisbókhaldshugbúnaði. Viðskipti innlent 24. ágúst 2022 14:16
„Flestum finnst þetta erfið leið en fyrir mér er þetta akkúrat rétta leiðin“ Fyrr í sumar fengum við að heyra sögu Bala Kamallakharan, stofnanda Startup Iceland og fjárfestis í nýsköpunarfyrirtækjunum. Atvinnulíf 23. ágúst 2022 07:01
Hætti sem stjórnarformaður Kerecis að kröfu nýja danska fjárfestisins Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, gegnir ekki lengur stjórnarformennsku í hinu ört vaxandi íslenska fyrirtæki í kjölfar aðalfundar þess í liðnum mánuði en þar var fulltrúi Kirkbi, fjárfestingafélag LEGO-fjölskyldunnar, kjörinn nýr í stjórnina eftir að danska félagið keypti rúmlega sex prósenta hlut í Kerecis fyrir jafnvirði um 5,5 milljarða króna. Klinkið 22. ágúst 2022 15:29
Hefur unnið með þjóðarleiðtogum, Hollywood-stjörnum, vísindamönnum og villtum dýrum Birta Bjargardóttir, bankastjóri Blábankans og heilsumarkþjálfi ubebu er nýkomin heim frá London. Í búsetu finnst Birtu reyndar ekkert mál að skoppast á milli Balí, London og Dýrafjarðar og satt best að segja er ekki hægt að segja annað en að hún lifi hreinlega ævintýralega skemmtilegu lífi. Atvinnulíf 15. ágúst 2022 07:00
Látum okkur detta snjallræði í hug! Við búum við þau forréttindi að hafa öflugt stuðningsumhverfi á sviði nýsköpunar þar sem einstaklingum og sprotafyrirtækjum stendur til boða að afla sér hagnýtrar þekkingar með þátttöku í hröðlum og hugmyndasamkeppnum. Skoðun 28. júlí 2022 16:00
Sidekick íhugar að fá innlenda fjárfesta inn í hluthafahópinn Heilsutæknifyrirtækið Sidekick Health, sem hefur nýlega lokið umfangsmikilli fjármögnunarumferð sem var leidd af erlendum vísissjóðum, hefur til skoðunar að fá innlenda fjárfestum inn í hluthafahópinn á næstunni samkvæmt heimildum Innherja. Innherji 13. júlí 2022 14:00
Var vart hugað líf en hefur náð ótrúlegum bata þökk sé fiskroði Pétur Oddsson brann verulega þegar hann lenti í vinnuslysi í Önundarfirði árið 2020. Hann var á gjörgæslu í sextíu daga eftir slysið og í dái í hundrað daga. Með aðstoð Kerecis sem framleiðir stoðefni úr fiskroði hefur Pétur náð ótrúlegum bata. Lífið 11. júlí 2022 23:01
Controlant fengið 24 milljarða greidda fyrirfram frá lyfjarisanum Pfizer Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant, sem hefur gegnt lykilhlutverki í dreifingu og geymslu bóluefnaskammta gegn Covid-19 fyrir Pfizer, er með samkomulag við bandaríska lyfjarisann sem hefur tryggt félaginu verulegar fyrirfram innheimtar tekjur. Í árslok 2021 námu slíkar tekjur tengdar samningum við Pfizer um 174 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 24 milljarða íslenskra króna, og koma þær að mestu inn í reksturinn á þessu ári og því næsta. Innherji 11. júlí 2022 07:01
2.500 krónur fermetrinn á besta stað í bænum Nýjar vinnustofur í Hafnarhúsi í miðborg Reykjavíkur, sem listamenn og frumkvöðlar geta leigt undir ýmiss konar starfsemi og sköpun, voru formlega opnaðar í dag. Innlent 7. júlí 2022 19:55
Tæknirisi kaupir íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sling Bandaríska fyrirtækið Toast, sem heldur úti stafrænum vettvang fyrir veitingastaði og er skráð í kauphöllinni í New York, hefur keypt íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sling, sem hefur þróað hugbúnað fyrir vinnustaði þar sem unnið er á vöktum. Innherji 7. júlí 2022 13:49
Eigandi LEGO setur 5 milljarða króna í Kerecis Danska fyrirtækið KIRKBI A/S, eigandi LEGO vörumerkisins, mun fjárfesta 40 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði 5,3 milljörðum króna, í Kerecis og er íslenska fyrirtækið verðmetið á 73 milljarða króna í viðskiptunum. Þetta kemur fram í bréfi sem stjórn Kerecis sendi á hluthafa í gær og Innherji hefur undir höndum. Innherji 25. júní 2022 07:56
Empower stækkar: Stoltar, stórhuga og í sókn Þær eru stórhuga konurnar sem stýra Empower enda ekki á hverjum degi sem tilkynnt er um hundruði milljóna í fjármögnun til félags sem stofnað er af konum og stjórnað af konum. Fjármagn er jú oft konum í óhag. Atvinnulíf 24. júní 2022 07:00
Controlant dreifði bóluefnum um allan heim og tífaldaði tekjurnar Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant óx gríðarlega á síðasta ári. Tekjur félagsins námu tæpum níu milljörðum króna, sem er tíföldun á milli ára. Viðskipti innlent 22. júní 2022 17:33
Áframhaldandi stuðningur við nýsköpun Hlutverk stjórnvalda er að finna leiðir til að byggja traustan grunn fyrir nýsköpun hér á landi. Stuðningur við nýsköpun hefur sjaldan verið mikilvægari en einmitt nú og ljóst er að hugvit og nýsköpun eru að verða að styrkri stoð í hagkerfi Íslands. Skoðun 21. júní 2022 12:01
Sigyn til Empower Sigyn Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Empower þar sem hún mun leiða þróun jafnréttishugbúnaðarins Empower Now. Viðskipti innlent 21. júní 2022 09:53
Setti Seðlabankinn nýjar reglur til höfuðs indó? Sparisjóðurinn indó hefur vakið þónokkra athygli upp á síðkastið og ekki síst þau metnaðarfullu áform um að bjóða mun betri kjör á veltureikningum einstaklinga heldur en rótgrónu viðskiptabankarnir bjóða í dag. Klinkið 20. júní 2022 08:01
Stofnendur indó vilja bæta bankakjör heimila um tíu milljarða Haukur Skúlason og Tryggvi Björn Davíðsson, stofnendur indó, fengu að heyra fjölmargar ástæður fyrir því hvers vegna ómögulegt væri að stofna nýjan banka. Fjórum árum síðar er sparisjóðurinn kominn með starfsleyfi, aðgang að greiðslukerfi bankanna og stefnir að því að bjóða alla velkomna í viðskipti á seinni hluta þessa árs. Þeir hafa einsett sér að umbylta verðlagningu á bankamarkaðinum og telja að aukin samkeppni geti skilað heimilum landsins allt að 10 milljarða króna ábata. Innherji 18. júní 2022 10:01
Nýsköpun og menntarannsóknir Hvaða máli skipta grunnrannsóknir og nýsköpun í menntavísundum? Stutta svarið er að grunnrannsóknir og nýsköpun eru og hafa lengi verið eins mikilvægar fyrir menntavísindi og þau eru fyrir öll önnur vísindi og fræði. Skoðun 15. júní 2022 14:01
Birna Ósk í stjórn vísisjóðsins Eyris Vaxtar Birna Ósk Einarsdóttir, sem tók í ársbyrjun við starfi í framkvæmdastjórn hjá APM í Hollandi, dótturfélagi flutningafyrirtækisins Maersk, hefur verið kjörin ný í stjórn Eyris Vaxtar sem er sex milljarða vísisjóður sem var komið á fót í fyrra. Klinkið 15. júní 2022 13:03
„Ég var einmana í gegnum allt þetta ferli“ Haraldur Þorleifsson, stofnandi hönnunarstofunnar Ueno, samþykkti kauptilboðið frá Twitter, lægsta tilboðið sem honum barst, vegna þess að hann sá fram á að geta haft jákvæð áhrif á umræðuna sem verður sífellt skautaðri. Í viðtali við Innherja segir hann að stærsta vandamál nútímans sé það hvernig molnað hefur undan samfélagssáttmálanum á undanförnum árum og að ekki sé gengið nógu langt í því að beita skattkerfinu til að útrýma fátækt. Innherji 11. júní 2022 10:00
Íslenskur vafri sem heldur utan um tölvupóstinn, dagatalið og hlaðvörpin Íslenska fyrirtækið Vivaldi hefur uppfært netvafrann sinn og bætt við innbyggðu póstforriti, dagatali og lesara fyrir strauma. Hægt er að sameina marga tölvupóstreikninga í vafranum. Viðskipti innlent 10. júní 2022 23:35
Running Tide semur um uppbyggingu á Akranesi Bandaríska loftslagsfyrirtækið Running Tide hefur undirritað samning við Breið - þróunarfélag og Brim hf. um leigu húsnæðis á Akranesi undir aðstöðu fyrir rannsóknir og framleiðslu á þörungum til kolefnisbindingar í hafi. Viðskipti innlent 9. júní 2022 15:08
CRI hættir við áform um skráningu vegna óróa á mörkuðum Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling International (CRI), sem framleiðir metanól úr koltvísýringi og vetni, hefur horfið frá fyrri áformum um skráningu á Euronext Growth markaðinn í Osló í Noregi. Unnið er nú að öðrum leiðum til að styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins, sem er meðal annars í eigu fjárfestingarfélagsins Eyris Invest, og gert er ráð fyrir að þeirri fjármögnun ljúki síðar á árinu. Innherji 8. júní 2022 17:10
Gangverk landar samningum við bandarískt stórfyrirtæki Íslenska hugbúnaðarhúsið Gangverk hefur náð samningum um að hanna og þróa stafrænar lausnir fyrir bandarískan risa á sviði heimahjúkrunar, TheKey. Um er að ræða samstarf upp á mörg hundruð milljónir króna. Innherji 4. júní 2022 10:01
„Byrjaði allt vegna þess að ég varð ástfanginn” Síðasta rúman áratug hefur enginn á Íslandi komið að umhverfi nýsköpunar, frumkvöðla eða fjármögnun á fyrri stigum nema að heyra nafnið Bala. Atvinnulíf 3. júní 2022 07:00