Orlando skrefi nær úrslitakeppninni Einum leik er þegar lokið í NBA deildinni í körfubolta í kvöld. Orlando Magic vann auðveldan sigur á Philadelphia á útivelli 104-87 og þarf nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Dwight Howard setti persónulegt met með 35 stigum og hirti auk þess 11 fráköst fyrir Orlando. Leikur Houston og New Orleans verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf eitt í nótt. Körfubolti 14. apríl 2007 23:27
60. sigurinn hjá Phoenix Phoenix Suns tryggði stöðu sína í öðru sæti Vesturdeildarinnar í NBA í nótt með því að leggja LA Lakers að velli 93-85. Lakers hefur verið í vandræðum undanfarna daga og er nú aðeins hársbreidd á undan grönnum sínum í Clippers og Golden State í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Körfubolti 14. apríl 2007 14:16
50 stig Bryants dugðu ekki gegn Clippers Kobe Bryant skoraði 50 stig fyrir LA Lakers gegn nágrannaliðinu LA Clippers í NBA-deildinni í nótt en það dugði ekki til sigurs því Clippers vann 118-110. Corey Magette átti stórleik hjá Clippers og skoraði 39 stig sem er persónlegt met hjá honum í deildinni. Körfubolti 13. apríl 2007 09:22
Detroit hirti efsta sæti Austurdeildar Detroit Pistons tryggði sér í nótt efsta sæti Austurdeildarinnar í NBA og verður liðið því með heimavallarrétt alla leið í úrslitin. Miami tryggði sér sigur í Suðaustur deildinni með sigri á Washington. Körfubolti 12. apríl 2007 13:38
Minnesota - Dallas í beinni í kvöld Leikur Minnesota Timberwolves og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Um klukkan 21 í kvöld er svo á dagskrá stöðvarinnar klassískur leikur Lakers og Rockets frá því fyrir um 20 árum síðan þar sem Pétur Guðmundsson kemur við sögu í liði Lakers. Óhætt er að mæla með þessum leik, sem bauð upp á dramatík, góða spilamennsku og áflog. Körfubolti 11. apríl 2007 21:08
Washington í úrslitakeppnina þrátt fyrir fimmta tapið í röð Lið Washington Wizards tryggði sér í nótt sæti í úrslitakeppni NBA þrátt fyrir að liðið tapaði fimmta leiknum í röð, nú fyrir New Jersey. New Orleans heldur enn í vonina um að komast í úrslitakeppninna í Vesturdeildinni eftir sigur á LA Clippers. Miami lá fyrir Charlotte. Körfubolti 11. apríl 2007 07:45
Dallas tryggði sér toppsætið í NBA Dallas Mavericks tryggði sér í nótt heimavallarréttinn alla úrslitakeppnina þegar liðið lagði LA Clippers á heimavelli 96-86. Með sigrinum varð ljóst að ekkert lið getur náð Dallas í deildarkeppninni. Detroit tryggði sér sjötta tímabilið í röð með 50 sigrum og þá læddist Golden State í áttunda sæti Vesturdeildarinnar með auðveldum sigri á Utah. Körfubolti 10. apríl 2007 13:35
Detroit í góðri stöðu í Austurdeildinni Detroit vantar aðeins einn sigurleik til þess að tryggja sér heimavallarréttinn í úrslitakeppni Austurdeildar NBA-deildarinnar og þarf liðið nú aðeins einn sigur til viðbótar til að ná þeim áfanga. Liðið vann mikilvægan sigur á Cleveland í nótt, 87-82, þar sem góður varnarleikur á LeBron James lagði grunninn að úrslitunum. Körfubolti 9. apríl 2007 11:05
Dallas færist nær deildarmeistaratitlinum Dallas þarf nú aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér sigur í deildarkeppni NBA en eftir að hafa sigrað Portland í nótt, 86-74. Dallas hefur nú unnið 63 leiki en tapað 13 það sem af er leiktíð. Vince Carter hjá New Jersey og Eddy Curry hjá New York voru menn næturinnar í NBA-deildinni. Körfubolti 8. apríl 2007 12:47
Toronto efstir í Atlantshafsriðlinum Toronto Raptors tryggði sér í nótt sigur í Atlantshafsriðli NBA-deildarinnar í körfuknattleik með því að sigra Philadelphia, 94-85. Denver kom í veg fyrir að Dallas gæti unnið 70 leiki á tímabilinu með því að leggja lærisveina Avery Johnson af velli í nótt og Kobe Bryant var í miklu stuði gegn Seattle. Körfubolti 7. apríl 2007 10:39
Miami unnu Cleveland og San Antonio unnu Phoenix Tveir risaslagir voru í NBA-deildinni í nótt. Meistarar Miami Heat mættu LeBron James og félögum í Cleveland og höfðu sigur, 94-90 í framlengdum leik. Miami léku án Dwayne Wade og munar heldur betur um minna. Körfubolti 6. apríl 2007 11:05
Arenas missir af úrslitakeppninni Nú hefur verið staðfest að Gilbert Arenas, leikmaður Washingto Wizards, muni missa af úrslitakeppninni vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í nótt. Arenas verður frá keppni í 2-3 mánuði, en aðeins nokkrir dagar eru síðan annar stjörnuleikmaður, Caron Butler, meiddist hjá liðinu og verður tæplega með í úrslitakeppninni. Körfubolti 5. apríl 2007 17:23
Gilbert Arenas meiddur Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Washington tapaði annan daginn í röð fyrir Charlotte og varð fyrir enn einu áfallinu þegar Gilbert Arenas tognaði á hné og verður hann líklega frá keppni í nokkrar vikur vegna þessa. Þá vann Chicago þýðingarmikinn sigur á Detroit á útivelli. Körfubolti 5. apríl 2007 13:21
Dallas lagði Sacramento án Dirk Nowitzki Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt, en nú er farið að styttast í að úrslitakeppnin hefjist og línur farnar að skýrast með uppröðun liða í Austur- og Vesturdeildinni. Körfubolti 4. apríl 2007 11:34
Memphis - Phoenix í beinni á miðnætti Leikur Memphis Grizzlies og Phoenix Suns verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Hér er á ferðinni leikur tveggja sókndjarfra liða sem þó eru á mjög ólíkum stað í deildinni. Phoenix hefur unnið 55 leiki og tapað 18 en Memphis er í neðsta sæti Vesturdeildarinnar með aðeins 19 sigra og 56 töp. Körfubolti 3. apríl 2007 20:16
Jackson flaug inn í heiðurshöllina Þjálfarinn Phil Jackson hjá LA Lakers var í dag tekinn inn í heiðurshöllina í NBA deildinni. Hann vann sex meistaratitla með Chicago Bulls á tíunda áratug síðustu aldar og aðra þrjá með liði LA Lakers í byrjun aldarinnar. Aldrei var spurning hvort Jackson færi inn í heiðurshöllina heldur aðeins hvenær og hann hefur nú fengið þar sæti á fyrsta árinu sem hann kom til greina. Körfubolti 2. apríl 2007 22:20
Sagði Steve Nash hafa verið handtekinn fyrir ölvunarakstur Mike D´Antoni, þjálfari Phoenix, var mjög sáttur með sigurinn á Dallas í NBA deildinni í gær. Dagurinn endaði því á mun betri nótum en hann byrjaði, því eigandi liðsins lét hann hlaupa apríl. Körfubolti 2. apríl 2007 12:43
Phoenix skellti Dallas Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar af voru þrír stórleikir á dagskrá. Phoenix jafnaði einvígið við Dallas í deildarkeppninni með 126-104 sigri á heimavelli. Utah vann afar mikilvægan útisigur á Houston og Detroit lagði Miami í uppgjöri risanna í Austurdeildinni. Körfubolti 2. apríl 2007 11:59
Risaslagur í NBA í beinni á Sýn í kvöld Í kvöld klukkan 18:50 verður einn af leikjum ársins í deildarkeppninni í NBA í beinni á Sýn. Hér er um að ræða fjórðu og síðustu viðureign Phoenix Suns og Dallas Mavericks í deildarkeppninni, en þetta eru tvö af allra bestu liðum deildarinnar. Síðasti leikur liðanna fyrir hálfum mánuði var að flestra mati besti leikurinn í NBA í vetur og því má eiga von á frábærum slag á besta tíma í kvöld. Körfubolti 1. apríl 2007 14:10
Enn skorar Kobe yfir 50 stig Enn og aftur skoraði Kobe Bryant yfir 50 stig fyrir Los Angeles Lakers í NBA körfuboltanum í nótt. Það dugði þó ekki til sigurs í framlengdum leik gegn Houston. Körfubolti 31. mars 2007 11:11
Bulls tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni Chicago Bulls tryggðu sér í nótt sæti í úrslitakeppni Austurdeildarinnar í NBA-deildarkeppninni í körfuknattleik með naumum sigri á Detroit, 83-81. Kirk Hinrich, leikmaður Bulls, tryggði liðinu sínu sigur með því að hitta úr tveimur vítaskotum af þremur þegar innan við þrjár sekúndur voru eftir af leiknum. Körfubolti 30. mars 2007 09:40
Longoria stolt af rappi bónda síns (Myndband) Leikkonan Eva Longoria segist mjög stolt af frammistöðu bónda síns á nýútkominni rappplötu hans Balance-toi ("Hreyfðu þig"). Eiginmaður hennar er franski leikstjórnandinn Tony Parker hjá San Antonio Spurs. Aðþrengda eiginkonan leikur í myndbandi sem gefið hefur verið út við lag af plötunni. Smelltu á hlekk í fréttinni til að sjá og heyra afraksturinn. Körfubolti 29. mars 2007 20:04
Sextíu sigrar hjá Dallas Dallas vann í nótt 60. leik sinn í NBA deildinni þegar liðið skellti Milwaukee 105-103 á heimavelli sínum. Utah Jazz tryggði sér fyrsta deildarmeistaratitil félagsins síðan um aldarmótin með sigri á Minnesota. Körfubolti 29. mars 2007 11:42
Lakers tapaði fyrir neðsta liðinu Fjórir leikir voru í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Dallas vann 21. leikinn í röð gegn New Orleans. Cleveland tryggði sér sæti í úrslitakeppninni og LA Lakers tapaði á heimavelli fyrir neðsta liði deildarinnar. Körfubolti 28. mars 2007 11:49
New Orleans - Dallas í beinni á miðnætti Leikur New Orleans Hornets og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan tólf á miðnætti í kvöld. Dallas er í efsta sæti deildarinnar og hefur árangur liðsins í deildarkeppninni í vetur verið einstakur. Liðið getur í kvöld unnið sjötta útileikinn í röð á keppnisferðalagi sínu og leitast einnig við að vinna 21. leikinn í röð á Hornets. Dallas tapaði síðast fyrir Hornets árið 1999 þegar liðið var í Charlotte. Körfubolti 27. mars 2007 17:30
Boozer fór á kostum í sigri Utah Carlos Boozer fór á kostum í liði Utah í nótt þegar liðið lagði Washington í sjónvarpsleiknum á NBA TV. Shaquille O´Neal varð 12. stigahæsti leikmaður NBA frá upphafi þegar hann skoraði 22 stig í sigri Miami á Atlanta. Miami er nú komið í toppsætið í sínum riðli í Austurdeildinni. Körfubolti 27. mars 2007 04:53
Wallace tryggði framlengingu með skoti frá miðju Detroit Pistons vann í nótt ævintýralegan sigur á Denver Nuggets á heimavelli sínum 113-109, þrátt fyrir að vera án tveggja byrjunarliðsmanna sinna sem voru með flensu. Rasheed Wallace tryggði heimamönnum framlengingu með skoti frá eigin vallarhelmingi um leið og flautan gall og var maðurinn á bak við sigur liðsins í aukahlutanum. Körfubolti 27. mars 2007 04:28
Artest að gefast upp? Ron Artest, hinn skrautlegri framherji Sacramento í NBA-deildinni, er sagður vera að íhuga það alvarlega að leggja skóna á hilluna að loknu núverandi tímabili. Ástæðan, að því er fjölmiðlar í Bandaríkjunum halda fram, er sú að hann vill eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni. Körfubolti 26. mars 2007 20:00
Tímabilið búið hjá Ray Allen Ray Allen mun ekki spila meira með liði sínu Seattle Supersonics í NBA-deildinni á tímabilinu en leikmaðurinn hefur ákveðið að bíða ekki lengur með að gangast undir óumflýjanlega aðgerð á ökkla. Allen hefur spilað sárþjáður í síðustu leikjum liðsins. Körfubolti 26. mars 2007 15:15
Kobe skoraði ekki yfir 50 stig Kobe Bryant mistókst að skora yfir 50 stig fjórða leikinn í röð, en náði engu að síður að setja niður 43 stig þegar LA Lakers bar sigurorð af Golden State, 115-113, í NBA-deildinni í nótt. Alls fóru níu leikir fram í deildinni í nótt. Körfubolti 26. mars 2007 10:06