Hommabrandari Phil Jackson veldur fjaðrafoki Phil Jackson, þjálfari LA Lakers, var kallaður inn á teppi af NBA deildinni í kvöld eftir ummæli sem hann lét falla eftir að hans menn voru teknir í bakaríið síðustu nótt. Körfubolti 14. nóvember 2007 23:39
Dwyane Wade er klár NBA lið Miami Heat fékk í kvöld þær góðu fréttir að Dwyane Wade yrði með liðinu í fyrsta sinn á leiktíðinni í kvöld þegar liðiið mætir Seattle Supersonics. Wade hefur verið lengi frá keppni vegna uppskurða á hné og öxl í sumar. Miami veitir ekki af allri þeirri hjálp sem er í boði, enda hefur liðið tapað sex af fyrstu sjö leikjum sínum í deildinni. Körfubolti 14. nóvember 2007 23:33
NBA í nótt: Boston enn ósigrað Átta leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt þar sem meðal annars Boston vann sinn sjötta sigurleik í röð en Houston tapaði. Allt um leikina hér. Körfubolti 14. nóvember 2007 09:07
Jordan þarf að greiða tíu milljarða Michael Jordan þarf að greiða fyrrum eiginkonu sinni, Juanita Jordan, rúma tíu milljarða króna vegna skilnaðar þeirra. Körfubolti 13. nóvember 2007 10:24
Fjórði sigurleikur Utah í röð Utah Jazz átti í engum vandræðum með Sacramento Kings í NBA-deildinni í nótt og vann þar með sinn fjórða leik í röð. Körfubolti 13. nóvember 2007 09:14
Loksins sigur hjá Miami Miami Heat vann í nótt sinn fyrsta leik í NBA-deildinni á tímabilinu er liðið vann New York Knicks, 75-72. Körfubolti 12. nóvember 2007 10:31
Tækling Joey Barton til skoðunar Aganefnd enska knattspyrnusambandsins ætlar að taka til skoðunar tæklingu miðjumannsins Joey Barton á Dickson Etuhu í leik Newcastle og Sunderland í gær. Tæklingin þótti nokkuð glæfraleg og lenti leikmönnunum saman í kjölfarið. Enski boltinn 11. nóvember 2007 12:29
Toronto burstaði Chicago Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Boston er enn taplaust eftir góðan sigur á New Jersey en Minnesota hefur enn ekki unnið leik. Þá er Chicago í bullandi vandræðum eftir að hafa verið niðurlægt á heimavelli af Toronto. Körfubolti 11. nóvember 2007 11:44
Yi á eftir að verða betri en ég Kínverski risinn Yao Ming hjá Houston átti skínandi leik í nótt þegar 200 milljónir Kínverja fylgdust með liðinu sigra Milwaukee í sjónvarpi. Yao hefur tröllatrú á hinum 19 ára gamla landa sínum Yi Jianlian hjá Milwaukke. Körfubolti 10. nóvember 2007 15:50
Besta byrjun Boston í 20 ár Þrettán leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Boston Celtics vann fjórða leik sinn í röð í upphafi leiktíðar og hefur ekki byrjað betur í 20 ár. Þá fór Steve Nash á kostum og tryggði Phoenix góðan útisigur á Miami sem enn hefur ekki unnið leik. Körfubolti 10. nóvember 2007 11:53
Stoudemire ætlar að spila í kvöld Leikur Miami Heat og Phoenix Suns verður sýndur beint á Sýn klukkan hálf eitt í nótt. Miðherjinn Amare Stoudemire snýr aftur með liði Phoenix eftir meiðsli og Miami reynir að afstýra tapi í 18. leiknum í röð í öllum keppnum. Körfubolti 9. nóvember 2007 15:28
Yfir 200 milljónir horfa í kvöld Fastlega er gert ráð fyrir að yfir 200 milljónir Kínverja muni í nótt fylgjast með leik Houston og Milwaukee í NBA deildinni þar sem tvær helstu körfuboltastjörnur landsins leiða saman hesta sína. Körfubolti 9. nóvember 2007 13:08
Dallas fékk uppreisn æru Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Dallas náði loksins að vinna Golden State eftir fimm töp í röð gegn liðinu í deildarkeppni og niðurlæginguna í úrslitakeppninni í vor. Körfubolti 9. nóvember 2007 09:14
Ég er enn mesti fanturinn í deildinni Miðherjinn Shaquille O´Neal hefur ekki riðið feitum hesti frá fyrstu leikjum sínum með Miami í NBA það sem af er leiktíðinni. Liðið tapar hverjum leiknum á fætur öðrum og tröllið virðist ekki geta borið liðið á herðum sér án Dwyane Wade sem er meiddur. Körfubolti 8. nóvember 2007 14:09
Skotglaður Durant Nýliðinn Kevin Durant hjá Seattle Supersonics í NBA deildinni er ekki hræddur við að taka skotin í fyrstu leikjum sínum meðal þeirra bestu. Skotgleði hans er sú næst mesta hjá nýliða í NBA í 30 ár. Körfubolti 8. nóvember 2007 13:59
Reikna með metáhorfi í Kína annað kvöld Segja má að sannkallað NBA æði gangi nú yfir Kína. Yfir 100 milljónir manna sáu leik Milwaukee og Chicago í landinu um síðustu helgi og þeir verða væntanlega enn fleiri annað kvöld. Körfubolti 8. nóvember 2007 10:43
Stjörnuleikurinn verður í Phoenix árið 2009 Nú hefur verið staðfest að hinn árlegi stjörnuleikur í NBA deildinni fari fram í Phoenix árið 2009. Leikurinn fór síðast fram í borginni árið 1995 þegar stórskyttan Mitch Richmond var valinn verðmætasti leikmaðurinn í stórsigri vesturliðsins. Stjörnuleikurinn 2008 verður haldinn í New Orleans í febrúar. Körfubolti 8. nóvember 2007 10:37
Boston valtaði yfir Denver Boston vann í nótt þriðja leik sinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið burstaði Denver 119-93 á heimavelli sínum. Alls voru níu leikir á dagskrá í nótt og margir þeirra mjög áhugaverðir. Körfubolti 8. nóvember 2007 09:38
Metin féllu í Staples Center NBA lið New Orleans Hornets gerði góða ferð til Los Angeles í nótt þar sem það vann öruggan sigur á LA Lakers 118-104. Þeir Peja Stojakovic og Chris Paul settu glæsileg félagsmet í leiknum. Körfubolti 7. nóvember 2007 09:11
Rodman vill þjálfa í kvennadeildinni Villingurinn og fyrrum körfuboltakappinn Dennis Rodman hefur nú gefið það út að hann vilji gerast þjálfari í bandarísku kvennadeildinni í körfubolta - WNBA. Körfubolti 7. nóvember 2007 00:05
McGrady og Granger leikmenn vikunnar Tracy McGrady hjá Houston og Danny Granger hjá Indiana voru í gær útnefndir leikmenn vikunnar í NBA deildinni. Granger fór fyrir Indiana í 3-0 viku með því að skora tæp 23 stig og hirða 8,7 fráköst í leik og var valinn leikmaður vikunnar í Austurdeildinni. Körfubolti 6. nóvember 2007 13:07
Terry fór fyrir Dallas í sigri á Houston Aðeins einn leikur var á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt þar sem Texas-liðin Dallas og Houston áttust við. Varamaðurinn Jason Terry hjá Dallas leiddi sitt lið til 107-98 sigurs með frábærri innkomu af bekknum. Körfubolti 6. nóvember 2007 09:19
Phoenix skellti Cleveland Góður seinni hálfleikur tryggði Phoenix Suns 103-92 sigur á Cleveland í NBA deildinni í nótt en heimamenn voru án Amare Stoudemire sem hvíldi lúið hné í nótt. Miami Heat er enn án sigurs. Körfubolti 5. nóvember 2007 09:40
NBA í nótt: Frábær byrjun hjá Houston Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt og má hér finna ítarlega umfjöllun um þá alla. Körfubolti 4. nóvember 2007 11:21
Boston fer vel af stað Þrettán leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Boston Celtics unnu sannfærandi sigur á Washington Wizards í fyrsta leik sínum á tímabilinu. Körfubolti 3. nóvember 2007 12:06
Eigandi Sonics sækir um flutning á liðinu Clay Bennett, eigandi Seattle Supersonics í NBA deildinni, staðfesti í kvöld að hann ætlaði að óska eftir því við forráðamenn deildarinnar að liðið verði flutt frá Seattle eins fljótt og hægt er. Körfubolti 2. nóvember 2007 19:43
Boston - Washington í beinni á Sýn í nótt Sjónvarpsstöðin Sýn hefur beinar útsendingar frá NBA deildinni í körfubolta á miðnætti í nótt þegar stöðin sýnir beint frá viðureign Boston og Washington. Leiksins er beðið með mikilli eftirvæntingu í Boston. Körfubolti 2. nóvember 2007 17:20
Fjárfestar í Seattle vilja kaupa Sonics Hópur fjárfesta í Seattle gaf það út í dag að þeir hefðu í huga að kaupa NBA lið Seattle Supersonics af núverandi eiganda Clay Bennett, með það fyrir augum að halda liðinu í borginni. Fátt bendir til annars en að Bennett flytji liðið til heimaborgar sinnar Oklahoma. Körfubolti 2. nóvember 2007 16:13
Jón Arnór með fjórtán stig gegn Real Madrid Jón Arnór Stefánsson átti góðan leik þegar lið hans, Lottomatica Roma, tapaði á útivelli fyrir Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í körfubolta. Körfubolti 2. nóvember 2007 09:34
McGrady sallaði 47 stigum á Jazz Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Tracy McGrady var maður kvöldsins þegar hann skoraði 47 stig í góðum útisigri Houston á Utah 106-95. Körfubolti 2. nóvember 2007 04:48