NBA: Lin stigaghæstur í þriðja sigri New York í röð undir stjórn nýja þjálfarans New York Knicks er komið á mikla sigurgöngu í NBA-deildinni í körfubolta undir stjórn Mike Woodson því liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína síðan að Woodson tók við liðinu af Mike D'Antoni. Dallas vann San Antonio í nótt, Chicago vann Philadelphia án Derrick Rose og Chris Paul skoraði 12 stig á síðustu þremur mínútum til að tryggja Los Angeles Clippers sigur á Houston. Körfubolti 18. mars 2012 11:00
Kobe Bryant: Mjög erfitt að sjá á eftir Derek Fisher Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, talaði við blaðamenn um brotthvarf Derek Fisher frá félaginu eftir sigurinn á Minnesota Timberwolves í nótt. Fisher og Bryant komu inn í deildina á sama tíma og voru búnir að vera liðsfélagar á þrettán af sextán tímabilum þeirra í NBA. Lakers ákvað hinsvegar að skipta Fisher til Houston Rockters. Körfubolti 17. mars 2012 13:30
NBA: New York í stuði undir stjórn nýja þjálfarans | Spurs vann OKC New York Knicks vann annan sannfærandi sigurinn í röð undir stjórn nýja þjálfarans Mike Woodson í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Miami var næstum því búið að missa niður 29 stiga forskot, San Antonio Spurs vann Oklahoma City Thunder, Los Angeles Lakers vann Minnesota og Chicago Bulls tapaði óvænt fyrir Portland. Körfubolti 17. mars 2012 11:00
Vorhreinsun hjá Portland | Þjálfarinn rekinn og Oden farinn Forráðamenn NBA liðsins Portland Trail Blazers tóku "vorhreinsun“ hjá félaginu í gær þegar lokað var fyrir leikmannaskipti á þessari leiktíð. Portland rak þjálfarann, Nate McMillan, sagði upp samningum við miðherjann Greg Oden sem var á sínum tíma valinn fyrstur allra í háskólavalinu. Að auki voru þeir Gerald Wallace og Marcus Camby sendir frá liðinu í leikmannaskiptum. Körfubolti 16. mars 2012 09:00
Dallas átti í vandræðum með lélegasta lið deildarinnar Það var mikið um að vera í NBA deildinni í gær en þá var lokað fyrir leikmannaskipti á þessari leiktíð. Mörg lið mættu því "vængbrotinn“ til leiks. Margir þekktir kappar fengu nýjan vinnustað án þess að óska eftir því. Meistaralið Dallas átti í vandræðum gegn lélegasta liði deildarinnar á heimavelli en Dallas hafði tapað 8 af síðustu 11 leikjum sínum í deildinni. Körfubolti 16. mars 2012 08:30
Derek Fisher ekki lengur leikmaður Lakers | Nene til Wizards Í dag var lokadagur félagsskipta í NBA-deildinni í körfubolta og það var þó nokkuð um skipti milli liða á lokasprettinum. Mesta athygli vakti örugglega að Los Angeles Lakers skipti Derek Fisher til Houston Rockets og Nene fór fram Denver Nuggets til Washington Wizards fyrir JaVale McGee og Ronny Turiaf. Körfubolti 15. mars 2012 22:37
Griffin með tvo loftbolta í röð af vítalínunni Ofurstjarnan Blake Griffin, leikmaður LA Clippers, var heldur vandræðalegur á vítalínunni gegn Atlanta Hawks. Hann klúðraði nefnilega tveim vítaskotum í röð á neyðarlegan hátt. Körfubolti 15. mars 2012 16:13
New York hrökk í gang eftir að hafa rekið þjálfarann Það var nóg um að vera í NBA deildinni í körfuknattleik í gær en 12 leikir fóru fram. Stórsigur New York Knicksm 121-79, gegn Portland vakti athygli en þetta var fyrsti leikur NY Knicks eftir að þjálfari liðsins Mike D'Antoni var rekinn. Sóknarleikur New York small saman og kannski hafa forráðamenn liðsins tekið rétta ákvörðun með að reka D'Antoni eftir 6 leikja taphrinu. Körfubolti 15. mars 2012 09:03
D'Antoni hættur með Knicks | Jackson og Sloan orðaðir við starfið Það hefur verið staðfest að Mike D'Antoni er hættur er hættur að þjálfa NY Knicks. Hann stýrði æfingu liðsins í morgun en á fundi seinni partinn er hermt að D'Antoni hafi komist að samkomulagi um að hætta. Körfubolti 14. mars 2012 18:32
Dwight Howard: Ég vil klára tímabilið með Orlando Magic Dwight Howard, miðherji Orlando Magic í NBA-deildinni, hefur verið á leiðinni frá liðinu allt þetta tímabil enda er samningur hans að renna út í sumar og því síðasti möguleiki fyrir Orlando Magic að fá eitthvað fyrir hann. Körfubolti 14. mars 2012 17:30
Ellis og Bogut fengu nýja vinnuveitendur | leikmannaskipti í NBA Lokað verður fyrir leikmannaskipti í NBA deildinni í körfubolta á morgun, 15. mars, og má búast við að eitthvað muni gerast á þeim markaði. Golden State og Milwaukee tóku stóra ákvörðun í nótt. Monta Ellis, einn besti leikmaður liðsins, var sendur til Milwaukee ásamt Ekpe Udoh og Kwame Brown. Í staðinn fékk liðið Andrew Bogut og Stephen Jackson. Körfubolti 14. mars 2012 11:45
Bynum og Bryant fóru á kostum í tvíframlengdum leik Andrew Bynum skoraði 37 stig og tók 16 fráköst í 116-111 sigri LA Lakers á útivelli gegn Memphis í NBA deildinni í körfubolta. Úrslitin réðust eftir tvær framlengingar. Kobe Bryant skoraði 22 af alls 34 stigum sínum í síðari hálfleik. Þetta var þriðji sigurleikur Lakers í röð. Spánverjinn Pau Gasol skoraði 14 stig og gaf 8 stoðsendingar í liði Lakers. Yngri bróðir Pay Gasol, Marc Gasol, skoraði 20 stig fyrir Memphis og tók hann 11 fráköst að auki. Körfubolti 14. mars 2012 09:00
Er Jeremy Lin "blaðran“ sprunginn? | sjötti tapleikur NY Knicks í röð Sjö leikir fóru fram í nótt í NBA deildinni í körfubolta í Bandaríkjunum. Derrick Rose skoraði 32 stig fyrri Chicago Bulls í 104-99 sigri liðsins gegn New York Knicks sem tapaði sínum sjötta leik í röð. Chicago hefur nú unnið 10 leiki í röð. Körfubolti 13. mars 2012 09:00
Chris Paul kominn með grímu eins og Kobe Það er spurning hvort grímur fari að komast í tísku í NBA-deildinni í körfubolta. Það er löngu orðið frægt að Kobe Bryant þarf að spila með grímu þessi misserin og núna er Chris Paul, leikstjórnandi Los Angeles Clippers, einnig farinn að spila með grímu. Körfubolti 12. mars 2012 23:15
Taphrina New York heldur áfram Sjö leikir fóru fram í gær í NBA deildinni í körfuknattleik. Taphrina New York heldur áfram en liðið tapaði sínum fimmta leik í röð og nú gegn Philadelphia á heimavelli, 106-94. Körfubolti 12. mars 2012 11:45
Bynum hetjan í þriðja sigri Lakers á Celtics í röð Los Angeles Lakers lagði erkifjendur sína frá Boston 97-94 í Staples-höllinni í Los Angeles í gærkvöldi. Lakers voru fimm stigum undir þegar tvær og hálf mínúta lifðu leiks. Frábær endasprettur tryggði liðinu sinn þriðja sigur á Celtics í röð. Körfubolti 12. mars 2012 09:04
Sektaður um þrjár milljónir vegna klámfenginnar myndar á Twitter J.R. Smith, leikstjórnandi New York Knicks í NBA-deildinni í körfubolta, hefur verið sektaður um 25 þúsund dollara eða sem nemur rúmum þremur milljónum íslenskra króna, vegna Twitter-færslu og vafasamrar myndar sem fylgdi henni. Körfubolti 11. mars 2012 23:30
Wade tryggði tólfta heimasigurinn í röð Dwyane Wade tryggði Miami dramatískan sigur á Indiana í framlengingu í nótt. Wade setti sigurkörfuna niður er leiktíminn var að renna út. Körfubolti 11. mars 2012 11:00
Rubio með slitið krossband | Missir af ÓL í sumar Hinn stórefnilegi leikmaður Minnesota Timberwolves, Ricky Rubio, spilar ekki meira með liðinu í vetur eftir að í ljós kom í dag að hann er með slitið krossband. Körfubolti 10. mars 2012 20:15
Los Angeles-liðin að gera það gott Kobe Bryant var í stuði í nótt og skoraði 34 stig í sjaldséðum útisigri Lakers. Það lagði þá Minnesota með þriggja stiga mun en Minnesota var án síns sterkasta manns, Kevin Love. Lakers er nú búið að vinna Minnesota í átján leikjum í röð. Körfubolti 10. mars 2012 11:00
Howard óstöðvandi er Bulls tapaði loksins Aðeins tveir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Orlando batt enda á sigurgöngu Chicago á meðan Phoenix vann nauman sigur á Dallas. Körfubolti 9. mars 2012 09:01
Rasheed Wallace æfir með Miami Heat | Ekki búinn að ákveða neitt Rasheed Wallace er ekki alveg tilbúinn að leggja NBA-körfuboltaskóna ef marka má nýjustu sögusagnir í bandarískum fjölmiðlum. Wallace átti farsælan feril en hefur ekki spilað í NBA-deildinni í að verða tvö ár. Körfubolti 8. mars 2012 23:15
LeBron og Wade eru að reyna að fá Peyton Manning til að spila með Miami Dolphins LeBron James og Dwyane Wade, leikmenn Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta, hafa báðir mikinn áhuga á ameríska fótboltanum og hafa nú blandað sér í baráttuna um undirskrift NFL-leikstjórnandans Peyton Manning. Sport 8. mars 2012 22:45
Bulls á siglingu | Washington lagði Lakers Derrick Rose og félagar í Chicago Bulls eru hreinlega óstöðvandi um þessar mundir. Bulls vann sinn áttunda leik í röð í nótt. Að þessu sinni gegn Milwaukee með flautukörfu frá Rose. Körfubolti 8. mars 2012 09:00
Ewing á leið í Heiðurshöllina Það hefur verið tilkynnt að Patrick Ewing, fyrrum miðherji NY Knicks, sé einn af þeim tíu sem verða teknir inn í heiðurshöll körfuboltans á þessu ári. Körfubolti 7. mars 2012 15:00
Pistons lagði Lakers í framlengingu Rodney Stuckey fór á kostum í liði Detroit Pistons og skoraði 34 stig er liðið vann óvæntan sigur á LA Lakers í framlengdum leik. Kobe Bryant sendi leikinn í framlengingu með flautukörfu en átti annars frekar slakan dag. Sama verður ekki sagt um Andrew Bynum sem skoraði 30 stig og tók 14 fráköst. Körfubolti 7. mars 2012 09:00
Kobe Bryant: Það á að reka alla þá sem misstu af Jeremy Lin Kobe Bryant, aðalstjarna NBA liðsins Los Angeles Lakers, hefur hrifist af tilþrifum Jeremy Lin hjá New York Knicks. Lin skoraði 38 stig fyrir New York gegn Lakers á dögunum en innkoma hans í NBA deildina hefur vakið gríðarlega athygli. Kobe Bryant telur að forráðamenn tveggja NBA liða ættu að reka alla þá sem sáu ekki hvaða hæfileika Lin býr yfir. Körfubolti 6. mars 2012 23:45
Kidd: Við njótum ekki nægrar virðingar Jason Kidd, leikstjórnandi NBA-meistara Dallas Mavericks, segir að liðið hafi ekki fengið neitt ókeypis frá dómurum deildarinnar í vetur og að þeir líti ekki á liðið sem meistara. Körfubolti 6. mars 2012 20:30
Lin verður áfram aðalleikstjórnandi Knicks Mike D'Antoni, þjálfari NY Knicks, segist ætla að halda sig við Jeremy Lin sem aðalleikstjórnanda liðsins og Baron Davis verður því að sætta sig við að byrja á bekknum. Körfubolti 6. mars 2012 12:15
Bulls á siglingu | Love fór hamförum Chicago Bulls vann í nótt sinn sjöunda leik í röð í NBA-deildinni. Derrick Rose fór á kostum í liði Bulls og skoraði 35 stig. Körfubolti 6. mars 2012 09:00