Oladipo ætlar í NBA-nýliðavalið 10. apríl 2013 21:45 Victor Oladipo.
Háskólakörfuboltinn er búinn í ár og nú byrja vangaveltur um hvaða ungstirni ætla sér að fara í nýliðaval NBA-deildarinnar. Margir sterkir leikmenn íhuga að taka slaginn og einn besti leikmaður háskólaboltans í vetur, Victor Oladipo, hefur ákveðið að kveðja Indiana-háskólann. Oladipo er að klára sitt þriðja ár í skólanum og lætur það duga að sinni. Hann tilkynnti um ákvörðun sína í gær. "Þetta er búið að vera að brjótast um í mér í nokkurn tíma. Þetta fannst mér vera besta ákvörðunin fyrir mína fjölskyldu," sagði hinn tvítugi Oladipo. Oladipo er alhliða leikmaður sem er þekktur fyrir að leggja afar hart að sér. Hann skoraði 13,6 stig og tók 6,3 fráköst að meðaltali í vetur. Hann var einnig valinn besti varnarmaðurinn í sinni deild. Skotnýtingin hjá honum í vetur var stórkostleg eða 59,9 prósent innan teigs. Þriggja stiga nýtingin var 44,1 prósent. Bætti hann leik sinn verulega á milli ára. Margir, þar á meðal Barack Obama Bandaríkjaforseti, spáðu því að Indiana myndi vinna háskólamótið í ár en liðið féll óvænt úr leik í 16-liða úrslitum. Indiana-liðið verður mikið breytt næsta vetur miðherjinn stóri Cody Zeller ætlar líklega einnig í nýliðavalið.
NBA Mest lesið Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf Í beinni: Bröndby - Víkingur | Tekst loksins að slá út Dani? Fótbolti Sárt tap gegn Dönum á HM Handbolti Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Enski boltinn Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enski boltinn Labbaði í fjórtán tíma á keppnisstað og vann síðan 63 km ofurhlaup Sport Stuð á Víkingum í Kaupmannahöfn Fótbolti Í beinni: Breiðablik - Zrinjski | Hundruð milljóna í húfi Fótbolti Mikael Neville ósáttur við liðið sitt Fótbolti Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð Sjá meira