
Tölvurnar taka yfir dráttinn
UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, mun frá og með næstu leiktíð hætta að fá gamlar fótboltahetjur í flottum fötum til að draga um hvaða lið mætast í Meistaradeild Evrópu. Tölvurnar taka nú við.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, mun frá og með næstu leiktíð hætta að fá gamlar fótboltahetjur í flottum fötum til að draga um hvaða lið mætast í Meistaradeild Evrópu. Tölvurnar taka nú við.
Arsenal er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu þökk sé David Raya, markverði liðsins, en hann varði tvær vítaspyrnur í vítaspyrnukeppni liðsins gegn Porto í kvöld.
Barcelona er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir góðan 3-1 sigur á Napolí þegar liðin mættust í Katalóníu í kvöld.
Maurizio Sarri er hættur sem knattspyrnustjóri Lazio, viku eftir að ítalska liðið féll úr leik gegn Bayern München í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Gabriel Martinelli, framherji Arsenal, verður hvergi sjáanlegur þegar liðið mætir Porto í leik sem það þarf að vinna með tveggja marka mun í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld, þriðjudag.
Í lokaþætti þessarar þáttaraðar af Heiðursstúkunni mættur góðir félagar sem hafa nú tekið upp á ýmsum í gegnum tíðina.
Orri Steinn Óskarsson, landliðsmaður í fótbolta og leikmaður FC Kaupmannahafnar, viðurkennir að undanfarnar vikur, utan leikmannahóps hafi reynst honum erfiðar. Staðan sé ósanngjörn gagnvart honum en Orri minnti rækilega á sig með stoðsendingu í tapi gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu.
Manchester City og Real Madrid komust í gærkvöldi í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta og nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inn á Visi.
FC Kaupmannahöfn stillti þremur táningum upp í byrjunarliðinu sínu á móti Manchester City í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.
Það er líklega vert að vara viðkvæma við meðfylgjandi mynd og myndbandi af því þegar Portúgalinn Matheus Nunes meiddist í leiknum með Manchester City gegn FC Kaupmannahöfn í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld.
Manchester City komst þægilega áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu með því að slá út dönsku meistarana í FC Kaupmannahöfn, samtals 6-2.
Real Madrid er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu en mátti hafa mikið fyrir því að slá út RB Leipzig í kvöld.
Orri Steinn Óskarsson fékk langþráð tækifæri í liði FC Kaupmannahafnar í kvöld, gegn meisturum Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, og lagði upp mark með glæsilegum hætti í fyrri hálfleik.
Orri Steinn Óskarsson er í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar í seinni leik liðsins við meistara Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.
Stuðningsmenn ítalska liðsins Lazio sungu söngva um Adolf Hitler, Benito Mussolini og sýndu fasistakveðjur í München í gær eftir Meistaradeildarleik liðsins við Bayern München. Borgarráðsfulltrúi í Róm fordæmir hegðun þeirra.
Kylian Mbappe segir að það séu engin vandamál á milli sín og Luis Enrique sem þjálfar lið Paris Saint-Germain.
Thomas Tuchel stýrði Bayern München inn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 3-0 sigur á Lazio í seinni leik liðanna. Bayern tapaði fyrri leiknum og sýndi allt annan og betri leik í gærkvöldi.
Stórstjörnurnar Kylian Mbappé og Harry Kane voru báðir á skotskónum í mikilvægum leikjum í Meistaradeildinni í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi.
Ferill hins 23 ára gamla Erlings Braut Håland hefur verið draumi líkastur til þessa en framherjinn öflugi vann þrennuna með Manchester City á síðustu leiktíð. Hann segist þó enn eiga fullt ólært og geti enn bætt sig.
París Saint-Germain er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 útisigur á Real Sociedad. Eftir 2-0 sigur í fyrri leikinn í París voru gestir kvöldsins í mjög svo góðum málum þegar leikar hófust í San Sebastian á Spáni.
Bayern München var með bakið upp við vegg þegar Lazio kom í heimsókn á Allianz-leikvanginn í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Ef Bayern München tapar fyrir Lazio í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld eru allar líkur á fyrsta titlalausa tímabili liðsins í tólf ár.
Miklar líkur eru á því að fimmta sætið skili ensku liði í Meistaradeildina og þess vegna er Manchester United ekki úr leik þrátt fyrir að vera meira en tíu stigum frá topp fjögur í ensku úrvalsdeildinni.
Mikel Arteta sagði að lið hans Arsenal yrði að gera betur í seinni leiknum gegn Porto en Arsenal mátti sætta sig við 1-0 tap á útivelli í kvöld. Mark Porto kom í uppbótartíma.
Það er allt galopið í einvígi Napoli og Barcelona eftir fyrri leik liðanna á Diego Armando Maradona-leikvanginum á Ítalíu í kvöld. Liðin mætast á ný eftir þrjár vikur á Spáni.
Arsenal er í brekku í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir 1-0 tap gegn Porto á útivelli í kvöld. Sigurmark Porto kom á lokasekúndum leiksins.
Napoli tekur á móti Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Napoli skipti um þjálfara á mánudag, í annað sinn á tímabilinu. Xavi Hernandez, þjálfari Barcelona, sagðist ekki vita hvernig ætti að skipuleggja liðið fyrir leikinn.
Bandaríski rapparinn Kanye West, eða Ye, var meðal áhorfenda á San Siro er Inter tók á móti Atlético Madrid í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
PSV og Dortmund gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar EVrópu í knattspyrnu í kvöld.
Internazionale, toppliðið á Ítalíu, vann sterkan 1-0 sigur er liðið tók á móti Atletico Madrid, liðinu í fjórða sæti á Spáni, í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.