Dagurinn sem markar endalok þrælahalds orðinn lögboðinn frídagur Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur skrifað undir lög þess efnis að 19. júní verði héðan í frá einn af lögboðnum frídögum Bandaríkjamanna. Erlent 18. júní 2021 06:53
Biden ánægður með fundinn en hóflega bjartsýnn Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst ánægður með fund sinn við rússneska kollega sinn, Vladímír Pútín. Forsetarnir funduðu í Genf í Sviss í dag. Erlent 16. júní 2021 21:11
Fundur forsetanna laus við „fjandskap“ Enginn fjandskapur var í viðræðum Joes Biden Bandaríkjaforseta og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í dag, að sögn rússneska forsetans. Búist hafði verið við því að fundurinn gæti staðið yfir í allt að fimm tíma en honum lauk fyrr en áætlað var. Erlent 16. júní 2021 16:56
Hófstilltar væntingar um árangur fundar Biden og Pútín Joe Biden Bandaríkjaforseti hittir í dag kollega sinn Vladimír Pútín Rússlandsforseta á fundi í svissnesku borginni Genf. Erlent 16. júní 2021 07:02
„Afar ólíklegt“ að Biden fengi að skipa hæstaréttardómara 2024 Mitch McConnell, leiðtogi minnihluta bandarísku öldungadeildarinnar, segir afar ólíklegt að hann myndi gera Joe Biden Bandaríkjaforseta kleift að skipa nýjan hæstaréttardómara árið 2024 ef repúblikanar næðu aftur meirihluta. Erlent 15. júní 2021 09:00
Segir Bandaríkin hafa „helga skyldu“ til að verja Evrópu Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti þátttöku Bandaríkjanna í sameiginlegum vörnum Evrópu, Kanada og Tyrklands sem „helgri skyldu“ þeirra við upphaf leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í morgun. Lagði hann áherslu á mikilvægi bandalagsins. Erlent 14. júní 2021 13:40
Vonar að Biden verði ekki jafn hvatvís og Trump Vladímír Pútín Rússlandsforseti segist vona að kollegi hans, Joe Biden Bandaríkjaforseti, verði ekki jafn hvatvís og forveri þess síðarnefnda í starfi, Donald Trump. Erlent 12. júní 2021 20:30
Boris segist hafa átt frábæran fund með Biden Boris Johnson forsætisráðherra Breta segist hafa átt frábæran fund með Joe Biden Bandaríkjaforseta sem staddur er á Englandi þessa dagana. Erlent 11. júní 2021 06:54
Biden hittir Johnson, drottninguna og Pútín Joe Biden Bandaríkjaforseti er mættur til Evrópu í sína fyrstu opinberu heimsókn eftir að hann tók við forsetaembættinu. Hann kom til London í gærkvöldi og hittir Boris Johnson forsætisráðherra í dag. Erlent 10. júní 2021 06:43
Stjórn Biden heldur áfram að verja Trump í meiðyrðamáli Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna heldur því enn fram að þegar Donald Trump kallaði konu sem sakaði hann um nauðgun „dræsu“ og „lygari“ hafi það verið hluti af störfum hans sem forseti. Afstaða ráðuneytisins er óbreytt þrátt fyrir stjórnarskiptin í janúar. Erlent 8. júní 2021 16:58
Biden lengir bannlista Trumps Joe Biden undirritaði í gær forsetatilskipun þess efnis að fleiri kínverskum fyrirtækjum verði bætt á lista yfir fyrirtæki sem Bandaríkjamenn mega ekki fjárfesta í. Erlent 4. júní 2021 17:03
Biden gefur eftir gagnvart öldungadeildinni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur neyðst til að draga nokkuð úr áformum sínum um hækkun fyrirtækjaskatts og fjárveitingu í innviðauppbyggingu. Erlent 4. júní 2021 13:00
Biden stendur þétt við bakið á hinsegin fólki í upphafi Pride-mánaðarins „Við sjáum ykkur, við styðjum ykkur og við drögum innblástur af hugrekki ykkar til að sætta ykkur ekki við neitt annað en fullt jafnrétti,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti í yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu og samfélagsmiðlum Hvíta hússins í gær. Erlent 2. júní 2021 14:39
Skaut á tvo áhrifamikla Demókrata í öldungadeildinni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, virtist gagnrýna tvö öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins í kvöld, þegar hann sagði af hverju hann hefði ekki komið metnaðarfullum kosningaloforðum sínum og málefnum í verk. Erlent 1. júní 2021 23:51
Biden leggur til mestu ríkisútgjöld frá því í seinna stríði Útgjöld bandaríska ríkissjóðsins verða þau hæstu frá því í síðari heimsstyrjöldinni verði Bandaríkjaþing við tillögu Joe Biden forseta að fjárlögum næsta árs sem hann lagði fram í dag. Hluti þeirra sex biljóna dollara sem Biden vill að alríkisstjórnin eyði á að fjármagna meiriháttar innviðauppbyggingu og öflugra velferðarkerfi. Erlent 28. maí 2021 23:50
Kínverjar bregðast snúðugir við rannsókn Biden Ákvörðun Joes Biden Bandaríkjaforseta um að fela leyniþjónustunni að rannsaka frekar uppruna kórónuveirufaraldursins hefur farið öfugt ofan í kínverska ráðamenn í dag. Þeir vísa tilgátum um að veiran kunni að hafa sloppið út af rannsóknarstofnu fyrir mistök á bug. Erlent 27. maí 2021 18:13
Biden og Pútín funda í Genf Joe Biden og Vladimír Pútín, forsetar Bandaríkjanna og Rússlands, munu funda í Genf í næsta mánuði. Verður það fyrsti fundur þeirra tveggja frá því Biden tók við embætti en spenna milli ríkjanna hefur aukist á undanförnum mánuðum. Erlent 25. maí 2021 14:31
Eygja möguleika á vopnahléssamningi á föstudag Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, virðist ekki ætla að verða við ákalli Bandaríkjaforseta Joe Bidens um að draga verulega úr loftárásum á Gasa-svæðið. Þvert á móti gaf hann það út eftir samtal þeirra í dag að hann myndi gefa í árásirnar. Erlent 20. maí 2021 00:02
Biden þrýsti á Netanjahú og sagðist vænta færri árása Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, býst við töluverðum samdrætti í árásum Ísraelsmanna á Gasa-ströndinni í dag. Þetta sagði hann í samtali við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í dag. Erlent 19. maí 2021 14:30
Bandaríkjaforseti lýsir yfir stuðningi við vopnahlé á Gasa Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í nótt að hann styðji kröfur um vopnahlé á Gasa-svæðinu þar sem ísraelski herinn hefur nú látið sprengjum rigna yfir íbúðabyggð í átta daga og Hamas-liðar hafa sent eldflaugar yfir til Ísraels á móti. Erlent 18. maí 2021 07:00
Biden hringdi í leiðtoga Ísraels og Palestínu Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur hringt bæði í Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas forseta Palestínu til þess að ræða stöðu mála á Gasa-svæðinu. Árásir Ísraelshers á svæðinu héldu áfram í dag, sjötta daginn í röð, og fórust átta börn í loftárás í flóttamannabúðum á svæðinu í nótt. Erlent 15. maí 2021 23:35
Vill embætti Cheney og fylkja Repúblikönum saman um Trump Þingkonan Elise Stefanik lýsti því yfir í dag að hún vildi stöðu þingkonunnar Liz Cheney, sem þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Cheney hefur verið undir miklum þrýstingi innan flokksins fyrir að taka ekki undir falsar yfirlýsingar Donalds Trump, fyrrverandi forseta, og bandamanna hans um að umfangsmikið kosningsvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum í fyrra. Erlent 6. maí 2021 22:30
Biden styður að fella niður einkaleyfi á bóluefnum Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, hefur ákveðið að styðja viðleitni innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um að fella niður einkaleyfi á bóluefnum gegn Covid-19. Markmiðið er að gera öðrum ríkjum kleift að framleiða meira af bóluefnum og hraða bólusetningum á heimsvísu. Erlent 5. maí 2021 20:34
Stærðarmunur á forsetahjónum vekur furðu Mynd af forsetahjónum Bandaríkjanna með Jimmy Carter, fyrrverandi forseta, og Rosalynn eiginkonu hans, hefur vakið mikla furðu og kátínu á samfélagsmiðlum. Á henni virðast Biden-hjónin eins og risar við hlið Carter-hjónanna en allt á það sér þó einfaldari skýringar. Erlent 4. maí 2021 15:01
Hækkar hámark flóttamanna eftir gagnrýni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að hækka hámark á fjölda flóttamanna sem Bandaríkin munu taka við á árinu. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn hans tilkynnti að hámarkið yrði það sama og það var í forsetatíð Donalds Trump, forvera hans. Erlent 3. maí 2021 23:56
Innanbúðarfólkið sem varð utangarðs Repúblikanarnir og þingmennirnir Liz Cheney og Mitt Romney hafa um árabil verið í innsta hring Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Cheney er til að mynda þriðji æðsti þingmaður flokksins, formlega séð og Romney var eitt sinn forsetaefni hans gegn Barack Obama. Erlent 3. maí 2021 22:36
Sagði lýðræðið þurfa að sanna sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lagði línurnar í nótt að umfangsmiklum breytum á velferðarkerfi Bandaríkjanna og umsvifum alríkisins á hagkerfið. Þetta sagði hann í fyrsta ávarpi sínu fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings í nótt. Erlent 29. apríl 2021 08:59
Biden boðar von um betri tíð eftir faraldur og kreppu Efnahagsbati eftir kórónuveirufaraldurinn verður efst á baugi í fyrsta ávarpi Joes Biden Bandaríkjaforseta fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings í kvöld. Í ávarpinu ætlar forsetinn að lýsa því hvernig Bandaríkin eru „komin aftur af stað“ og hvernig hann sér fyrir sér að alríkisstjórnin geti bætt líf landsmanna. Erlent 28. apríl 2021 23:31
Annað ímyndað hneyksli gerir íhaldsmenn reiða Blaðamaður götublaðsins New York Post hefur hætt starfi sínu og segir að sér hafi verið skipað að skrifa kolranga frétt. Sú frétt var um að ríkisstjórn Joes Biden væri að útbýta barnabókum Kamölu Harris, varaforseta, og til ólöglegra innflytjenda á barnsaldri. Erlent 28. apríl 2021 09:29
Æfir yfir ímynduðum takmörkunum Bidens á kjötneyslu Repúblikanar hafa lýst yfir miklum áhyggjum undanfarna daga af því að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ætli að banna fólki að borða hamborgara. Hann ætli að skera neyslu kjöts niður um 90 prósent fyrir árið 2030. Erlent 27. apríl 2021 09:06