

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Ekki eins „starstruck“ og í fyrra
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð, er mætt á sitt annað stórmót með landsliðinu eftir að hafa farið á HM í Noregi og Danmörku í fyrra. Hún er ásamt stórum hluta liðsins, reynslunni ríkari fyrir komandi átök á EM í Innsbruck.

Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys
Landsliðskonan Steinunn Björnsdóttir er mætt á sitt fyrsta stórmót í handbolta en Ísland mætir Hollandi í fyrsta leik á morgun. Frumraunin var hins vegar í hættu um tíma, af óvenjulegri ástæðu.

Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk
Sú ákvörðun Noru Mørk að vera álitsgjafi í sjónvarpi um Evrópumótið í handbolta mæltist ekki vel fyrir hjá Þóri Hergeirssyni, þjálfara norska kvennalandsliðsins.

Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“
Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka, er allt annað en sáttur með að Haukum hafi verið dæmdur ósigur gegn ÍBV í bikarkeppni karla í handbolta. Hann segir að venja sé að betra liðið fari áfram og að Haukar muni áfrýja.

Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“
Karlalið Hauka í handbolta er á ferð og flugi um álfuna vegna Evrópuverkefnis helgarinnar. Leikið verður í Mingachevir í Aserbaísjan og lögðu menn tímanlega af stað, klukkan fimm í gærmorgun.

Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni
Sigvaldi Björn Guðjónsson og Sveinn Jóhannsson skoruðu samtals tíu mörk þegar Kolstad mætti Pick Szeged frá Ungverjalandi í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Það dugði ekki til þar sem Janus Daði Smárason fór á kostum í sigurliðinu. Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru svo allt í öllu í frábærum sigri á stórliði Barcelona.

Skrýtið en venst
Finna má eftirvæntingu í íslenska landsliðshópnum sem hefur keppni á EM kvenna í handbolta á föstudaginn kemur. Liðið hefur komið sér vel fyrir í Ólympíubænum Innsbruck þar sem herlegheitin fara fram.

Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri
Tveir lykilleikmenn í stórkostlegum árangri norska kvennalandsliðsins í handbolta, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, hafa nú fengið vinnu sem sérfræðingar í sjónvarpi á Evrópumótinu sem hefst á morgun.

ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum
Ríkjandi bikarmeistarar Vals í handbolta karla þurfa að slá út Gróttu og svo Fram til þess að komast í fjögurra liða úrslitavikuna í Powerade-bikarnum. Dregið var í 8-liða úrslit í dag.

„Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“
„Þetta er bara algjör þvæla. En fyrst að menn vilja fara þessa leið þá getum við haldið áfram að eyða tíma í þessa vitleysu,“ segir Andri Már Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, eftir að félaginu var dæmt 10-0 tap gegn ÍBV.

Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram
ÍBV hefur verið dæmdur 10-0 sigur í leiknum gegn Haukum fyrir rúmri viku, í 16-liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta.

Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga
FH mætti Fenix Toulouse í lokaleik sínum í H-riðli Evrópudeildarinnar í handbolta karla. Heimamenn gerðu aðeins sjö mörk í fyrri hálfleik og töpuðu að lokum 25-29. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

„Nauðsynlegt fyrir íslensk lið að taka þátt í svona keppni“
Evrópukeppni FH-inga lauk með fjögurra marka tapi gegn Fenix Toulouse 25-29. Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var ósáttur með fyrri hálfleik liðsins.

Porto lagði Val í Portúgal
Valsmenn máttu þola átta marka tap gegn Porto ytra í Evrópudeild karla í handbolta, lokatölur 37-29.

Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ
Haukar unnu góðan og nokkuð óvæntan sigur í Mosfellsbæ þegar þeir sóttu Aftureldingu heim í Olís-deild karla í handbolta.

Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu
Óðinn Þór Ríkharðsson var hreint út sagt magnaður þegar lið hans Kadetten vann stórsigur á Tatran Prešov frá Slóvakíu í Evrópudeild karla í handbolta.

Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna
Seinni umferð Olís deildar karla í handbolta fer af stað í kvöld en öll liðin hafa mæst á þessari leiktíð. Það þótti góður tímapunktur til að reikna út sigurlíkur liðanna í framhaldinu.

Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“
Samfélagsmiðladeild FH leyfði stuðningsmönnum sínum og öðrum handboltaáhugamönnum að skyggnast bak við tjöldin í leik liðsins gegn Gummersbach í Evrópudeildinni.

HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“
Herði á Ísafirði hefur verið dæmdur 10-0 sigur gegn HK 2 í Grill 66 deild karla í handbolta þar sem HK-ingar ákváðu að mæta ekki til leiks. Harðverjar eru ósáttir og vilja að HK-ingar verði beittir viðurlögum.

Sameinast litla bróður hjá Kolstad
Handboltamaðurinn Arnór Snær Óskarsson er genginn í raðir Noregsmeistara Kolstad frá Rhein-Neckar Löwen. Þar hittir hann fyrir yngri bróður sinn, Benedikt Gunnar.

Tímabært að breyta til
„Þetta var ekkert auðvelt,“ segir Ágúst Jóhannsson sem mun hætta sem þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta í sumar til að taka við karlaliði félagsins.

Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad
Benedikt Gunnar Óskarsson fór fyrir Íslendingahersveit Kolstad í norska handboltanum í kvöld þegar liðið vann öruggan tólf marka sigur á Kristiansand 37-25.

Aftur eins marks tap en nú tekur EM við
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta varð aftur að sætta sig við eins marks tap, nú 29-28, gegn Sviss á heimavelli Svisslendinga í dag.

Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Sviss í öðrum vináttulandsleik á þremur dögum, í Sviss í dag, en þetta er síðasti leikur Íslands fyrir EM sem hefst í vikunni.

Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“
„Ég býst bara við að þessu verði vísað frá, þar sem þetta er algjörlega tilhæfulaust,“ segir Andri Már Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, um kæru ÍBV gegn félaginu eftir leik liðanna í Powerade-bikar karla.

ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“
Eyjamenn bíða nú eftir niðurstöðu Dómstóls HSÍ eftir að hafa kært Hauka fyrir að nota ólöglegan leikmann, í leik liðanna í Powerade-bikar karla í handbolta fyrir viku.

Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands
Norska kvennalandsliðið í handbolta, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, vann stórsigur gegn sterku liði Hollands í dag, á æfingamóti fyrir Evrópumótið sem brátt fer að hefjast.

Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki?
Leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í handbolta voru skiljanlega svekktar þegar í ljós kom að lokamark liðsins gegn Sviss í gær fengi ekki að standa.

Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit
Alls fóru fimm leikir fram í Olís-deild karla í handbolta. FH pakkaði ÍR saman á útivelli, lokatölur 24-41. Þá vann KA heimasigur á Fjölni, HK lagði ÍBV í Kópavogi og Afturelding vann Gróttu á heimavelli. Valur gerði svo góða ferð í Hafnafjörð og vann góðan sigur á Haukum.

Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum
Valur bar sigurorð af Haukum, 29-33, þegar liðin leiddu saman hesta sína í 11. umferð Olísdeildar karla í handbolta að Ásvöllum í kvöld. Valur er einu stigi frá toppliðum deildarinnar, FH og Aftureldingu, á meðan Haukar misstu aðeins af lestinni í toppbaráttunni með þessu tapi.