„Megum ekki gleyma því að við erum frábærir líka“ Valur Páll Eiríksson skrifar 30. janúar 2026 10:33 Gísli Þorgeir hefur verið frábær á Evrópumótinu til þessa og það mun mikið á honum mæða í undanúrslitaleiknum gegn Dönum í kvöld. Vísir/Vilhelm „Þetta er bara geðveikt. Það er gaman að koma inn í höllina og finna aðeins andrúmsloftið sem verður hérna á næstu dögum,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson í samtali við Vísi þegar hann var tekinn tali skömmu fyrir æfingu landsliðsins í Herning í gær.
Ísland mætir Danmörku í undanúrslitum á EM í Herning í kvöld. Landsliðið mætir til leiks eftir að hafa spilað sjö leiki á undanförnum 13 dögum, þar á meðal tvo leiki á um það bil einum sólarhring, við Sviss og Slóveníu í milliriðli í vikunni. Klippa: Gísli ræðir miðamál, Dani og frábært íslenskt lið Hvernig er staðan á mönnum eftir svona átök? „Skrokkurinn er svo sem fínn. En maður þarf að fá góðan svefn og halda einbeitingu hvað varðar endurhæfingu svo það gangi sem best,“ segir Gísli Þorgeir. Kúnstin að rétta sig af Ísland mætir til leiks eftir skrautlegan milliriðil þar sem skiptist á skini og skúrum. Tvisvar missti liðið örlögin úr eigin höndum, með tapi fyrir Króötum og svo jafntefli við Sviss. Á milli þeirra leikja kom stórkostlegur sigur á Svíum og svo gegn Slóvenum til að tryggja sætið. Gleðin var eðlilega mikil eftir sigurinn á Slóvenum en nú þarf að stilla sig af fyrir risastóra verkefnið sem bíður í kvöld. „Auðvitað erum við mjög glaðir en svo er ákveðin kúnst. Þetta er mjög stór leikur og þetta verður auðvitað eitt erfiðasta verkefni sem lið getur fengið upp í hendurnar,“ segir Gísli og bætir við: „Þeir hafa sýnt og sannað að þeir hafa verið gott sem óstöðvandi. Það er bara staðreynd. En þetta er verkefni sem ég er mjög spenntur að takast á við og vonandi að við getum strítt þeim almennilega.“ Ekki bara Danir sem eru góðir í handbolta Nú kemur að einu strembnasta verkefni sem býðst; að mæta heims- og Ólympíumeisturum Dana á þeirra heimavelli með nánast enga Íslendinga í höllinni. Gísli segir ekki mega gleymast hversu frábært íslenska liðið er, þó Danir séu vissulega líklegri fyrir fram. „Auðvitað eru þetta frábærir handboltamenn. En við megum ekki gleyma því að við erum frábærir handboltamenn líka. Við settum ákveðinn standard með þessum Svíaleik,“ „Með þannig frammistöðu getum við átt mjög góða möguleika gegn þessu danska landsliði. Ef við sýnum sömu geðveiki og erum á sama tíma klókir, þá eru okkur allir vegir færir,“ segir Gísli. Fleira kemur fram í viðtali við Gísla sem sjá má í spilaranum. Ísland mætir Danmörku klukkan 19:30 í Boxen í Herning í kvöld. Íþróttateymi Sýnar mun fylgja landsliðinu eftir og koma stemningunni vel til skila í fréttatímum Sýnar sem og á Vísi í allan dag.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Tengdar fréttir „Aðrir sjá um að tuða yfir því“ Þrátt fyrir misheppnaða rútuferð, aukið álag, miðamál í ólestri er Bjarki Már Elísson helst spenntur fyrir því að takast á við Dani í undanúrslitum á EM í dag. Það hefur ekkert upp á sig að spá í hitt bullið. 30. janúar 2026 08:30 Sömu og dæmdu í sigrinum á Svíum en fyrst dæma Íslendingar Þó að Íslendingar verði í miklum minnihluta á meðal áhorfenda í Boxen í dag þá verður svo sannarlega mikið af íslenskum þátttakendum í leikjum dagsins. 30. janúar 2026 10:00 Ísland næstbesta sóknarlið EM en því miður er Danmörk best Það má búast við fullt af mörkum og skemmtilegum leik þegar Ísland og Danmörk mætast annað kvöld, í undanúrslitum EM í handbolta, miðað við tölfræðiúttekt sérfræðings EHF. 30. janúar 2026 08:00 „Þetta eru bara menn sem vilja mikið og meira“ Íslenska karlalandsliðið í handbolta ætlaði sér í undanúrslit á Evrópumótinu og nú þegar því markmiði er náð er hætta á að hungrið vanti til að fara enn lengra. Sérfræðingarnir í Bestu sætinu veltu þessu fyrir sér. 30. janúar 2026 07:03 „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Elliði Snær Viðarsson hefur átt tvo mjög flotta leiki í sókninni í röð og verið markahæstur hjá íslenska landsliðinu í þeim báðum. Hann skoraði átta mörk úr níu skotum á móti Sviss og fylgdi því eftir með átta mörkum í níu skotum í sigrinum á Slóvenum. Elliði fékk líka hrós frá sérfræðingunum í Besta sætinu. 29. janúar 2026 23:03 EM í dag: EHF ekki í neinu uppáhaldi hjá Degi Sig og öðrum Íslendingum Eftir mikinn ferðadag er EM í dag komið til Herning. Bæjarins sem allir Íslendingar vildu vera í núna. 29. janúar 2026 20:06 Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira
„Aðrir sjá um að tuða yfir því“ Þrátt fyrir misheppnaða rútuferð, aukið álag, miðamál í ólestri er Bjarki Már Elísson helst spenntur fyrir því að takast á við Dani í undanúrslitum á EM í dag. Það hefur ekkert upp á sig að spá í hitt bullið. 30. janúar 2026 08:30
Sömu og dæmdu í sigrinum á Svíum en fyrst dæma Íslendingar Þó að Íslendingar verði í miklum minnihluta á meðal áhorfenda í Boxen í dag þá verður svo sannarlega mikið af íslenskum þátttakendum í leikjum dagsins. 30. janúar 2026 10:00
Ísland næstbesta sóknarlið EM en því miður er Danmörk best Það má búast við fullt af mörkum og skemmtilegum leik þegar Ísland og Danmörk mætast annað kvöld, í undanúrslitum EM í handbolta, miðað við tölfræðiúttekt sérfræðings EHF. 30. janúar 2026 08:00
„Þetta eru bara menn sem vilja mikið og meira“ Íslenska karlalandsliðið í handbolta ætlaði sér í undanúrslit á Evrópumótinu og nú þegar því markmiði er náð er hætta á að hungrið vanti til að fara enn lengra. Sérfræðingarnir í Bestu sætinu veltu þessu fyrir sér. 30. janúar 2026 07:03
„Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Elliði Snær Viðarsson hefur átt tvo mjög flotta leiki í sókninni í röð og verið markahæstur hjá íslenska landsliðinu í þeim báðum. Hann skoraði átta mörk úr níu skotum á móti Sviss og fylgdi því eftir með átta mörkum í níu skotum í sigrinum á Slóvenum. Elliði fékk líka hrós frá sérfræðingunum í Besta sætinu. 29. janúar 2026 23:03
EM í dag: EHF ekki í neinu uppáhaldi hjá Degi Sig og öðrum Íslendingum Eftir mikinn ferðadag er EM í dag komið til Herning. Bæjarins sem allir Íslendingar vildu vera í núna. 29. janúar 2026 20:06