Golf

Golf

Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Fréttamynd

Gæti misst af titilvörninni

Rory McIlroy neyddist til að draga sig úr keppni á Arnold Palmer-boðsmótinu í golfi um helgina vegna bakmeiðsla. Óvíst er með þátttöku hans á Players-móti helgarinnar.

Golf
Fréttamynd

Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golf­klúbbi

Áhugi á golfi virðist takmarkalaus með öllu. Golfforystan leggur allt í að draga alla og ömmu þeirra í golf og sú virðist nú raunin. Flestir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru hvellsprungnir, þar er uppselt, langir biðlistar hafa myndast og verðið fylgir eftirspurninni.

Innlent
Fréttamynd

Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga

Spænski kylfingurinn Jon Rahm heldur því fram að DP-heimsmótaröðin sé hreinlega að „kúga kylfinga“ eins og hann orðar það og útskýrði einnig hvers vegna hann er ekki í hópi keppenda á LIV-mótaröðinni. Sumir kylfingar hafa undirritað samkomulag sem gerir þeim kleift að spila á mótum beggja mótaraða. Rahm er ekki í þeim hópi.

Golf
Fréttamynd

„Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“

Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, var sérstakur gestur í golfhlaðvarpinu Seinni níu. Þar var farið yfir víðan völl en Þór er með 22 í forgjöf og liðtækur kylfingur. Ekki síst er það vegna þess að hann er með rándýran pútter í höndum sem hann nappaði úr nytjagámi í Sorpu.

Lífið
Fréttamynd

Spilaðu golf allt árið með Evrópu­ferðum

Fyrir þá fjölmörgu Íslendinga sem elska golfíþróttina er fátt skemmtilegra en að skipta vetrarkuldanum út fyrir sól, þægilega hafgolu og fagurgræna golfvelli í Suður Evrópu. Á meðan dimmir dagar og frost ráða ríkjum heima býðst kylfingum að leika á glæsilegum völlum á Spáni, í Portúgal eða á Gran Canaria þar sem aðstæður eru eins og best verður á kosið.

Lífið samstarf
Fréttamynd

LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna

Engin af þeim þremur stjörnum LIV-mótaraðarinnar í golfi sem stendur tímabundið til boða að snúa aftur á PGA-mótaröðina ætla að taka boðinu. Brooks Koepka, margfaldur risamótsmeistari, fékk inngöngu á PGA-röðina á dögunum.

Golf
Fréttamynd

Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum

Bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka snýr aftur á PGA-mótaröðina strax í lok þessa mánaðar eftir að hann samþykkti að gera yfirbót fyrir brotthvarf sitt til LIV-mótaraðarinnar. Undanþága sem er sérsniðin að stærstu stjörnum LIV stendur þeim tímabundið til boða.

Golf
Fréttamynd

Golf­völlur er heilsuauðlind

Vísindafólk á sviði heilbrigðisvísinda hefur lengi lagt kapp á að rannsaka hvað raunverulega eflir heilsu og hvernig hægt er að minnka byrði lífsstílstengdra heilsuvandamála og þannig auka líkur á farsælu og löngu lífi.

Skoðun
Fréttamynd

Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV

Bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka, sem unnið hefur fimm risamót á ferlinum, hefur ákveðið að yfirgefa LIV-mótaröðina og er þar með fyrsta stjarnan sem kveður þessa umdeildu mótaröð. Ekki liggur fyrir hvort það þýði að hann snúi aftur á PGA-mótaröðina.

Golf