Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2026 18:40 Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili var að spila vel í rigningunni í dag. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili, ríkjandi Íslandsmeistari kvenna í golfi, átti góðan annan dag í rigningunni í dag á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli og meistarinn er því komin á toppinn.
Guðrún Brá lék annan hringinn á tveimur höggum undir pari og lék langbest allra kvenna í dag en engin önnur kona var á undir pari á vellinum á þessum öðrum hring. Guðrún náði með því toppsætinu af Elsu Maren Steinarsdóttur úr Golfklúbbnum Leyni sem var með forystuna eftir fyrsta hringinn. Guðrún Brá er samanlagt á þremur höggum undir pari eftir tvo fyrstu dagana og er með tveggja högga forskot þrátt fyrir að hafa endað hringinn á skolla. Elsa Maren lenti í smá vandræðum á seinni níu en hún lék þær á fjórum höggum yfir pari þar af fékk hún tvöfaldan skolla á sextándu holunni. Elsa er samt bara tveimur höggum á eftir Guðrúnu Brá. Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur er þriðja á fjórum höggum yfir pari en hún lék á tveimur yfir í dag. Það eru því fimm högg á milli annars og þriðja sætisins. Pamela Ósk Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er síðan fjórða á fimm höggum yfir pari og höggi á eftir henni í sjötta sætinu eru þær Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira