Golf

Völlurinn fyrir Ís­landsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“

Aron Guðmundsson skrifar
Perla Sól Sigurbrandsdóttir freistar þess að verða Íslandsmeistari í annað sinn á ferlinum á Íslandsmótinu í golfi um komandi helgi. Mótið hefst á morgun og verður spilað á heimavelli Perlu, Korpúlfsstaðavelli. 
Perla Sól Sigurbrandsdóttir freistar þess að verða Íslandsmeistari í annað sinn á ferlinum á Íslandsmótinu í golfi um komandi helgi. Mótið hefst á morgun og verður spilað á heimavelli Perlu, Korpúlfsstaðavelli.  Vísir/Getty

Spennan er farin að magnast fyrir Ís­landsmótið í golfi sem hefst á Korpúlfs­staða­velli á morgun. Ís­lands­meistarinn í kvenna­flokki frá árinu 2022 sem spilar nú á heima­velli er gríðar­lega ánægð með keppnis­völlinn.

Leikinn verður 72 holu höggleikur yfir fjóra keppnisdaga en eftir fyrstu 36 holurnar verður skorið niður í hópi kylfinga fyrir síðustu tvo keppnisdagana.

Mikið er lagt í umgjörðina í kringum mótið, bæði fyrir kylfinga sem og áhorfendur. Íslandsmótið stærsta og virtasta mótið á ári hverju.

Kylfingarnir sem taka þátt finna fyrir bættri umgjörð. Þeirra á meðal er ríkjandi Íslandsmeistarinn í kvennaflokki, Guðrún Brá Björgvinsdóttir.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefur fjórum sinnum unnið Íslandsmótið í golfi.Getty/Charles McQuillan

„Mér finnst það frábært hvað bæði Golfsambandið og klúbbarnir hafa verið að gera í þessum efnum. Það er ótrúlega gaman að labba hingað og finna fyrir því að maður sé mættur á Íslandsmótið. Það gerir þetta skemmtilegt. Vonandi hvetur þetta fólk líka til þess að mæta á völlinn og horfa á.“

Verður mjög flott mót

Ríkjandi Íslandsmeistarinn í karlaflokki, Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR sem einmitt leikur á heimavelli á mótinu, er gífurlega ánægður með að sjá hversu mikið er lagt í mótið.

„Já þetta er náttúrulega hrikalega flott hjá öllum að halda mótið hérna og sjá hvað umgjörðin er orðin flott í kringum þetta. Þetta er alltaf að verða betra og betra. Þá eru kylfingarnir alltaf að verða betri og betri. Þetta verður mjög flott mót í ár.“

Yfirlitsmynd af keppnissvæðinu á Íslandsmótinu í golfi sem hefst á morgun.Mynd: GSÍ

Breytingar sem að vekja upp gamlar minningar

Systir hans, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, sem varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina skiptið til þessa árið 2022, er sama sinnis. 

Gerðar hafa verið ýmsar breytingar á vellinum til fyrir Íslandsmótið og það vekur upp nostalgíu hjá Perlu en hún og Dagbjartur þekkja Korpúlfsstaðavöllinn inn og út. 

„Teigarnir hjá okkur hafa færst svolítið aftar,“ segir Perla aðspurð hvernig breytingarnar leggjast í hana. „Mér finnst þetta geggjað því völlurinn er eiginlega orðin alveg eins og þegar að ég spilaði hann þegar að ég var lítil. Ég sló styttra þá. Núna er ég að slá svipuð inn á högg og ég gerði þegar að ég var lítil. Mér finnst það geggjað.“

Dagbjartur tekur undir með systur sinni.

„Þetta er mjög góður punktur hjá Perlu. Eins og á elleftu holu núna. Teigurinn er kominn yfir ána hjá okkur. Það er búið að lengja hana um einhverja sjötíu metra. Tilfinningin er eins og þegar maður var fjórtán ára að spila í fyrsta sinn á hvítu teigunum. Þá slær maður bara hægra megin við sandgryfjuna og þá er þetta orðin alvöru par fimm hola. Þá eru nýir teigar á sjónum líka (hluti Korpúlfsstaðavallar  ber nafnið Sjórinn), þá verður níunda holan einnig mjög flott. Þetta er mjög flott hjá GR, að bæta aðeins upp á fyrir lengri kylfingana.“

Nánar verður rætt við Dagbjart og Perlu Sól um komandi Íslandsmót í Sportpakkanum á Sýn í kvöld að loknum kvöldfréttum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×