Fram

Fram

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Fram í Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Öruggur sigur Fram á Skaganum

Fram vann öruggan 2-0 sigur á ÍA þegar liðin mættust á ELKEM-vellinum á Akranesi í kvöld. Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörk Framara í fyrri hálfleik, annað þeirra af vítapunktinum. Með sigrinum styrkti Fram stöðu sína í þriðja sæti Bestu deildarinnar og er nú komið með 26 stig, tveimur stigum á eftir KR í öðru sæti. ÍA situr hins vegar í sjöunda sæti með 15 stig eftir annað tap sitt í röð.

Fótbolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stór­sigri Víkings í toppslagnum

Elías Már Ómarsson skoraði þrjú marka Víkings þegar liðið kjöldró Fram í toppslag liðanna í 11. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld. Víkingur hefur níu stiga forskot á toppi deildarinnar eftir þennan sigur og fátt sem bendir til annars en að liðið verji Íslandsmeistaratitil sinn. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Upp­gjörið: KA - Fram 3-4 | Mörkunum rigndi á Akur­eyri í sigri Fram

Fram vann 4-3 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í dag í stórskemmtilegum leik sem bauð upp á markaveislu. Um sjötta sigur Fram í síðustu sjö leikjum liðsins í Bestu deildinni var að ræða en með sigri kvöldsins minnkar Fram bilið í KR í 2.sæti deildarinnar niður í tvö stig. KR á hins vegar leik til góða á morgun gegn Víkingi Reykjavík.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þetta er eins og aftanákeyrsla“

Jóhann Fjalar Skaptason og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir voru alls ekki sammála í Bestu mörkunum í gær og það hjálpaði lítið að fá sérfræðinginn Magnús Hauk Harðarson til að bregða sér í hlutverk sáttasemjara.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“

„Mjög þungt. Ég er mjög svekktur með það hvernig við komum inn í þennan leik. Við vorum arfaslakir í fyrri hálfleik og undir á öllum þáttum leiksins,“ segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir 4-3 tap fyrir Fram í Bestu deild karla í kvöld.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Allir tala um hvað ég er gamall“

„Þetta hefði verið meira gaman ef við hefðum unnið þá aðeins stærra, ég verð að segja það,“ segir Kennie Chopart, sem enn á ný er aðalmaðurinn hjá Fram, í þetta skipti í 4-3 sigri á Breiðabliki í kvöld.

Íslenski boltinn