Sigur hjá strákunum í U-19 ára landsliðinu Íslenska landsliðið í knattspyrnu karla skipað leikmönnum nítján ára og yngri vann sigur á æfingamóti sem liðið leikur á í Slóveníu þessa dagana. Fótbolti 6. september 2023 17:30
Markahæsti leikmaður HM semur við Manchester United Markahæsti leikmaður svo til nýafstaðins HM kvenna í fótbolta, hin japanska Hinata Miyazawa, hefur samið við efstu deildar lið Manchester United. Frá þessu greinir félagið í tilkynningu á heimasíðu sinni. Enski boltinn 6. september 2023 17:01
Blikar sektaðir fyrir „óásættanlega framkomu“ fyrir leikinn gegn Víkingum Aga- og úrskurðanefnd KSÍ hefur komist að þeirri niðurstöðu að sekta knattspyrnudeild Breiðabliks um eitt hundrað þúsund krónur vegna framkomu karlaliðs félagsins fyrir leik liðsins gegn Víkingi Reykjavík í Bestu deild karla á dögunum. Íslenski boltinn 6. september 2023 16:51
Man United eytt meira en nokkurt annað félag undanfarinn áratug Þegar litið er á nettó eyðslu knattspyrnufélaga síðustu tíu ár má sjá að Manchester United hefur eytt umtalsvert hærri fjárhæðum í leikmenn en nokkurt annað lið í heiminum. Fótbolti 6. september 2023 15:00
Hermoso leggur inn kvörtun til saksóknara vegna forsetans Jennifer Hermoso, leikmaður spænska landsliðsins í fótbolta, sem mátti þola óumbeðinn rembingskoss frá forseta spænska knattspyrnusambandsins í kjölfar glæsts sigurs á HM í sumar, hefur lagt inn saksóknaraembættisins á Spáni vegna hegðunar forsetans, Luis Rubiales. Fótbolti 6. september 2023 13:57
Nafn konunnar sem lést á Vopnafirði Nafn konunnar sem lést í smábátahöfninni á Vopnafirði í gærmorgun var Violeta Mitul. Hún var 26 ára gömul. Innlent 6. september 2023 13:55
Bergþóra gengin til liðs við Örebro Knattspyrnukonan Bergþóra Sól Ásmundsdóttir er gengin í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins Örebro frá Breiðabliki. Fótbolti 6. september 2023 13:30
Varnir Stjörnukvenna brustu í seinni hálfleik Stjarnan á ekki möguleika á að komast í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Þetta var ljóst eftir 4-0 tap fyrir Levante frá Spáni í dag. Fótbolti 6. september 2023 13:02
Lokaorð flugmanns þyrlunnar sem fórst í Leicester opinberuð Lokaorð flugmannsins sem flaug þyrlu sem brotlenti, meðal annars með þáverandi eiganda enska knattspyrnufélagsins Leicester City, og með þeim afleiðingum að öll í þyrlunni fórust, hafa verið opinberuð í skýrslu um slysið. Enski boltinn 6. september 2023 12:31
Valur skrefi nær Meistaradeildinni Valur vann í dag mikilvægan 2-1 sigur er liðið mætti tyrkneska liðinu Fomget GSK í forkeppni Meistaradeildar kvenna. Fótbolti 6. september 2023 11:57
Manchester United birtir yfirlýsingu vegna Antony: „Lítum málið alvarlegum augum“ Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester Untied hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ásakana á hendur leikmanni félagsins, hinum brasilíska Antony. Fyrrum kærasta Antony sakar hann um líkamlegt og andlegt ofbeldi í sinn garð. Enski boltinn 6. september 2023 11:52
Vilda segir brottreksturinn ósanngjarnan Jorge Vilda, fyrrverandi þjálfari spænska kvennalandsliðsins, segir það ósanngjarnt að hann hafi verið rekinn frá störfum aðeins nokkrum vikum eftir að hann gerði liðið að heimsmeisturum. Fótbolti 6. september 2023 11:31
Hvernig Taylor Swift gæti hjálpað Bellingham að vinna eftirsótt verðlaun Bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift virðist ætla að hafa stór áhrif á valið á besta unga fótboltamanni Evrópu. Fótbolti 6. september 2023 10:01
Arteta íhugar að skipta um markvörð Markvörðurinn Aaron Ramsdale gæti misst sæti sitt í byrjunarliði Arsenal til Davids Raya. Enski boltinn 6. september 2023 09:30
Prumpaði í beinni Neil Lennon, fyrrverandi knattspyrnustjóri Celtic, lenti í óheppilegu atviki þegar hann var að greina leik Celtic og Rangers í sjónvarpi um helgina. Fótbolti 6. september 2023 08:01
Hlutabréfin í United hríðféllu og ekki verið lægri í ellefu ár Hlutabréfin í enska fótboltafélaginu Manchester United hríðféllu í gær og hafa ekki verið lægri í ellefu ár. Enski boltinn 6. september 2023 07:31
„Á rosalega erfitt með að skilja við þetta í þessari stöðu“ Pálmi Rafn Pálmason ætlar að koma KR í fremstu röð á nýjan leik. Liðið leikur í þriðju efstu deild á næsta tímabili en hann mun stýra liðinu næstu þrjú árin. Íslenski boltinn 6. september 2023 07:00
Van Dijk ekki sammála því að allt hafi verið gert til að Messi ynni HM Virgil van Dijk, fyrirliði hollenska landsliðsins í knattspyrnu, er ekki sammála fyrrverandi þjálfara liðsins að allt hafi verið gert til að Lionel Messi og Argentína yrðu heimsmeistarar í Katar undir lok síðasta árs. Fótbolti 5. september 2023 23:00
Hvaða leikmenn gæti Sádi-Arabía reynt að lokka til sín fyrir gluggalok? Félagaskiptaglugginn í Sádi-Arabíu lokar á fimmtudag. Knattspyrnufélög þar í landi geta því enn sótt leikmenn þó glugginn í stærstu deildum Evrópu sé nú lokaður. Fótbolti 5. september 2023 21:30
Segir það ekki satt að Amrabat sé meiddur Miðjumaðurinn Sofyan Amrabat gekk nýverið í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United á láni. Í kjölfarið fóru orðrómar af stað að leikmaðurinn væri meiddur á baki og gæti verið frá í allt að sex vikur. Enski boltinn 5. september 2023 20:45
Umfjöllun: ÍBV - Selfoss 2-1 | Eyjakonur sendu Selfoss niður um deild Selfoss er fallið úr Bestu deild kvenna eftir 1-2 tap gegn ÍBV á Hásteinsvelli. Áslaug Dóra kom Selfyssingum yfir eftir hornspyrnu en Olga Sevcova skoraði svo tvö mörk fyrir Eyjakonur og gerði útaf við allar vonir gestanna. Íslenski boltinn 5. september 2023 19:00
Selma Sól lagði upp í stórsigri Selma Sól Magnúsdóttir kom inn af bekknum í stórsigri Rosenborg á Stabæk í norsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Sigurinn þýðir að Rosenborg heldur í við topplið Vålerenga. Fótbolti 5. september 2023 18:31
Jesus inn fyrir Antony Gabriel Jesus, framherji Arsenal, kemur inn í brasilíska landsliðshópinn í stað vængmannsins Antony sem hefur verið sendur heim vegna ásakana fyrrverandi kærustu hans. Enski boltinn 5. september 2023 17:45
Úlfur skoraði í fyrsta leiknum fyrir Bládjöflana Úlfur Ágúst Björnsson var ekki lengi að stimpla sig inn hjá Duke háskólanum í Bandaríkjunum. Hann skoraði í sínum fyrsta leik fyrir fótboltalið skólans. Fótbolti 5. september 2023 17:00
Mál Morten Beck ekki lengur á borði ÍSÍ Mál Morten Beck, fyrrum leikmanns FH hefur verið vísað frá af áfrýjunardómstóli Íþróttasambands Íslands, ÍSÍ. Beck var að áfrýja ákvörðun Knattspyrnusambands Íslands að aflétta félagaskiptabanni FH en félagið hafði upprunalega verið dæmt í slíkt bann þar sem það skuldaði Morten laun. Íslenski boltinn 5. september 2023 15:49
Vilja fá Guardiola til að taka við enska landsliðinu Enska knattspyrnusambandið vill fá Pep Guardiola til að taka við enska karlalandsliðinu ef Gareth Southgate hættir eftir EM á næsta ári. Enski boltinn 5. september 2023 15:01
Spánverjar reka heimsmeistaraþjálfarann Eins og við var búist hefur spænska knattspyrnusambandið sagt Jorge Vilda upp störfum sem þjálfara kvennalandsliðsins, þrátt fyrir að hafa gert það að heimsmeisturum í síðasta mánuði. Fótbolti 5. september 2023 14:48
Onana snýr aftur í landsliðið eftir að hafa lagt hanskana á hilluna í fyrra Andre Onana, markvörður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, er mættur aftur í kamerúnska landsliðið þrátt fyrir að hafa lagt landsliðshanskana á hilluna á síðasta ári. Fótbolti 5. september 2023 13:30
Grafalvarleg staða: KSÍ skoðar mögulegar lausnir en stjórnar ekki öllu Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, segir þá stöðu sem upp er komin varðandi komandi leiki Breiðabliks í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í vetur, sýna þá grafalvarlegu stöðu sem íslenskur fótbolti er í. Íslenski boltinn 5. september 2023 13:01
Van Gaal segir að allt hafi verið gert til að láta Messi vinna HM Louis van Gaal segir að allt hafi verið gert til að láta Lionel Messi og Argentínu vinna heimsmeistaramótið í Katar í fyrra. Hann segir að brögð hafi verið í tafli. Fótbolti 5. september 2023 11:31