Öruggur heimasigur og sex mörk skoruð í opnunarleik EM Þýskaland vann afar öruggan 5-1 sigur gegn Skotlandi í opnunarleik Evrópumótsins. Fótbolti 14. júní 2024 21:00
Goðsögn kveður Dortmund Varnarmaðurinn Mats Hummels hefur ákveðið að kveðja herbúðir Dortmund eftir þrettán ár hjá félaginu. Fótbolti 14. júní 2024 14:45
Mættur á EM eftir að hafa gengið frá Glasgow til München Einn maður hefur lagt meira á sig en margir aðrir til þess að verða viðstaddur opnunarleik Evrópumótsins í fótbolta, milli Þýskalands og Skotlands í München í kvöld. Sá er stuðningsmaður skoska landsliðsins og heitir Craig Ferguson. Fótbolti 14. júní 2024 13:15
Stórskotalið var á blaðamannafundi Vals Valsmenn voru með skemmtilegan blaðamannafund klukkan 13.00 þar sem hitað var upp fyrir leik Vals og Víkings í Bestu-deildinni. Íslenski boltinn 14. júní 2024 12:30
Frábær umgjörð hjá kvennaliði Fylkis Helena Ólafsdóttir, umsjónarkona Bestu markanna, fór á dögunum í heimsókn í Lautina og tók púlsinn á Fylkisfólki. Íslenski boltinn 14. júní 2024 12:01
Everton vill fá 80 milljónir punda fyrir Branthwaite Man. Utd hefur náð samningi við Jarrad Branthwaite, varnarmann Everton, en þarf að opna veskið duglega til að fá hann. Enski boltinn 14. júní 2024 11:30
Skotar yfirtaka München: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ Mikil spenna ríkir fyrir opnunarleik Evrópumótsins í fótbolta í kvöld þegar að heimamenn í þýska landsliðinu taka á móti Skotum í München. Stuðningsmenn skoska landsliðsins hafa sett sinn svip á þýsku borgina eins og við var að búast. Fótbolti 14. júní 2024 10:31
„Fínt að vera í þessu umhverfi, fá smá mótlæti og brekku“ Fyrir síðasta tímabil skipti Kristall Máni Ingason til danska liðsins Sönderjyske eftir erfiðan tíma hjá Rosenborg í Noregi. Þar fann hann leikgleðina aftur og var einn besti maður liðsins sem tókst að tryggja sér sæti í efstu deild á næsta tímabili. Fótbolti 14. júní 2024 08:00
Knattspyrnusambandið lét Couto dekkja hárið: „Þau sögðu að bleiki liturinn væri heimskulegur“ Yan Couto, leikmaður Manchester City og brasilíska landsliðsins, segir knattspyrnusambandið þar í landi hafa beðið hann um að fjarlægja bleika litinn úr hárinu. Fótbolti 14. júní 2024 07:02
Bayern Munchen fékk óvænt til sín stjörnuvarnarmann Stuttgart Hiroki Ito gekk til liðs við Bayern Munchen frá Stuttgart í dag. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til félagsins síðan Vincent Kompany tók við stjórnartaumunum og skrifaði undir fjögurra ára samning. Fótbolti 13. júní 2024 23:30
Undanúrslit Mjólkurbikarsins: Arnar Grétarsson fer á fornar slóðir og bikarmeistararnir fá Stjörnuna Dregið var í undanúrslit Mjólkurbikars karla í kvöld. Þar munu mætast KA og Valur annars vegar, Víkingur og Stjarnan hins vegar. Íslenski boltinn 13. júní 2024 21:59
„Einn sá besti sem KA hefur haft í sögunni” Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var virkilega ánægður eftir að hafa tryggt KA farseðil í undanúrslit Mjólkurbikarsins með 3-0 sigri gegn Fram á heimavelli. Íslenski boltinn 13. júní 2024 21:52
Njarðvíkingar tylla sér á topp Lengjudeildarinnar Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild karla í kvöld. Njarðvík tyllir sér á toppinn eftir sigur gegn ÍR. ÍBV sótti Gróttu heim og vann örugglega en Afturelding þurfti að hafa meira fyrir sínum sigri gegn Þrótti. Íslenski boltinn 13. júní 2024 21:50
Helgi Guðjónss.: Strákarnir vita það að ég kem oftast með fasta bolta fyrir á þá Helgi Guðjónsson var einn af þeim leikmönnum Víkings sem hafði hvað mest áhrif á útkomu leiks þeirra gegn Fylki í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Hann lagði upp tvö mörk í 3-1 sigri og var ánægður með dagsverkið. Fótbolti 13. júní 2024 21:37
Markahæstur í sögu KA með hundrað mörk: „ Vonandi fer ég í 150” Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði sitt hundraðasta mark fyrir KA og varð í leiðinni markahæsti leikmaður í sögu félagsins þegar hann gulltryggði KA sigur gegn Fram í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í leik sem fram fór á Akureyri. Íslenski boltinn 13. júní 2024 21:04
Leik lokið: KA - Fram 3-0 | KA í undanúrslit eftir hundraðasta mark Hallgríms Mar KA er komið áfram í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir afar öruggan 3-0 sigur gegn Fram. Bjarni Aðalsteinsson setti tvö mörk og Hallgrímur Mar gulltryggði sigurinn með sínu hundraðasta marki fyrir félagið, sem gerði hann að markahæsta leikmanni í sögu KA. Íslenski boltinn 13. júní 2024 20:00
Bolaði þjálfaranum burt en framlengdi svo ekki samninginn Edin Terzić sagði óvænt af sér í dag sem knattspyrnustjóri Borussia Dortmund aðeins tveimur vikum eftir að hafa leitt liðið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Ósætti við Mats Hummels er talin ástæðan, leikmaðurinn sagðist ekki vilja spila fyrir félagið undir hans stjórn, en hann vildi svo ekkert spila yfir höfuð. Fótbolti 13. júní 2024 19:14
Uppgjörið, myndir og viðtöl: Víkingur - Fylkir 3-1 | Víkingur hreinlega kann ekki að detta úr bikarnum Víkingur tryggði farseðilinn í undanúrlit Mjólkurbikarsins með famannlegum sigri á Fylki fyrr í kvöld. Leikurinn endaði 3-1 og er hægt að segja að leikurinn hafi verið í höndum heimamanna lungan úr honum. Fylkir ætlaði verjast djúpt og hafði ekki erindi sem erfiði. Íslenski boltinn 13. júní 2024 18:30
Arftaki Freys mættur aftur til Færeyja Magne Hoseth er mættur aftur til Færeyja eftir að hafa gert frábæra hluti með KÍ Klaksvík. Hann var ráðinn sem eftirmaður Freys Alexanderssonar hjá Lyngby en entist heldur stutt í starfi. Fótbolti 13. júní 2024 16:00
Þjálfari Hákons tekur við AC Milan AC Milan hefur fundið sér nýjan þjálfara og það er fyrrum þjálfari franska félagsins Lille, Paulo Fonseca. Fótbolti 13. júní 2024 15:16
Tilkynntu framlengingu Kerr með dramatísku myndbandi Sam Kerr, ein besta knattspyrnukona heims, verður áfram á mála hjá Englandsmeisturum Chelsea. Nýr samningur hennar var tilkynntur með hádramatísku myndbandi þar sem það virtist sem hún væri á förum frá félaginu. Enski boltinn 13. júní 2024 14:30
Dreymir um að dæma Evrópu- eða landsleiki Draumur Twana Khalid Ahmed, kúrdísks flóttamanns frá Írak, rættist á síðasta ári þegar hann dæmdi sinn fyrsta leik í efstu deild í fótbolta hér á landi. Hann vildi óska að hann hefði byrjað að dæma fyrr hér á landi til að geta dæmt á erlendri grundu sem og íslenskri. Íslenski boltinn 13. júní 2024 13:45
Breiðablik og Valur með elstu liðin í Bestu deild karla Breiðablik og Valur eru með hæsta meðalaldur liða í Bestu deildar karla í fótbolta. Íslenski boltinn 13. júní 2024 13:01
Óvænt hættur hjá Dortmund Edin Terzic hefur óvænt sagt upp störfum sem þjálfari Borussia Dortmund í Þýskalandi. Fótbolti 13. júní 2024 12:30
Fimm af flottari EM mörkum þessarar aldar Evrópumót karla í knattspyrnu hefst með leik Þýskalands og Skotlands á morgun, föstudag. Að því tilefni tók Vísir saman fimm af skemmtilegri EM mörkum þessarar aldar. Fótbolti 13. júní 2024 12:01
Bjarni lætur af störfum hjá KR Bjarni Guðjónsson, framkvæmdastjóri KR, lætur af störfum að eigin frumkvæði í lok ágústmánaðar og hverfur þá til annarra starfa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KR en Bjarni hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra síðan árið 2022. Fótbolti 13. júní 2024 11:25
Blása England upp í aðdraganda EM Evrópumót karla í fótbolta hefst á morgun, föstudag. Þrátt fyrir 0-1 tap fyrir Íslandi á uppseldum Wembley-leikvangi í aðdraganda mótsins þá eru sparkspekingar BBC, breska ríkisútvarpsins, kokhraustir. Fótbolti 13. júní 2024 11:01
Virkja 300 milljón króna klásúlu í samningi Ísaks og kaupa hann Þýska B-deildar liðið Fortuna Düsseldorf hefur virkjað klásúlu í samningi íslenska landsliðsmannsins Ísaks Bergmanns Jóhannessonar og mun hann ganga til liðs við félagið frá FC Kaupmannahöfn. Fótbolti 13. júní 2024 10:21
Myndi vilja tala við Rashford og Greenwood en selja Maguire Rio Ferdinand, fyrrverandi miðvörður Manchester United og enska landsliðsins í knattspyrnu, myndi selja Harry Maguire ef ákvörðunin væri hans. Þá myndi hann vilja tala við þá Marcus Rashford og Mason Greenwood áður en hann tæki ákvörðun. Enski boltinn 13. júní 2024 09:31
„Ég er ekki stoltur af þessu“ Danijel Djuric, leikmaður Víkings, segist hafa lært mikið af atviki sem átti sér stað eftir leik liðsins á Kópavogsvelli þann 30. maí. Hann var í kjölfarið dæmdur í tveggja leikja bann. Íslenski boltinn 13. júní 2024 08:00