Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum. Erlent 25.6.2026 17:35
Burnham formlega orðinn þingmaður Andy Burnham sór embættiseið fyrr í dag og er því formlega orðinn þingmaður Verkamannaflokksins fyrir Makerfield. Erlent 22.6.2026 16:57
Starmer segir af sér Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr leiðtogi Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. Erlent 22.6.2026 08:38
Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Fimm eru særðir eftir að bifreið var ekið inn í þvögu gangandi vegfarenda í miðbæ Arnold í Nottinghamskíri í Bretlandi í nótt. Einn þeirra særðu er í lífshættu og var fluttur á gjörgæslu að sögn lögreglu á svæðinu. Erlent 9. maí 2026 13:49
Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, óskar Nigel Farage, formanni Umbótaflokksins í Bretlandi, til hamingju með kosningasigur í sveitarstjórnarkosningum þar í landi á Instagram. Lífið 8. maí 2026 14:37
Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Englendingar gengu að kjörborðinu í gær þegar sveitarstjórnarkosningar fóru fram í landinu þar sem töluverðar breytingar virðast vera í farvatninu. Erlent 8. maí 2026 07:41
Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Rauðu djöflarnir í Manchester United unnu glæstan 3-2-sigur á erkifjendum sínum í Liverpool á Old Trafford í gær. Róbert Wessman, forstjóri Alvotech, mætti með fríðu föruneyti á völlinn og fylgdist með sínum mönnum fara með sigur af hólmi. Lífið 4. maí 2026 10:06
Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Essa Suleiman, 45 ára bresk-sómalskur maður, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hann stakk tvo menn af gyðingaættum í Lundúnum. Hann er talinn hafa stungið annan mann fyrr um daginn. Erlent 3. maí 2026 18:08
Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Tveir karlmenn af gyðingaættum voru stungnir í árás í norðurhluta Lundúna. Einn var handtekinn grunaður um árásina. Lögreglan hefur skilgreint árásina sem hryðjuverkaárás. Erlent 29. apríl 2026 12:54
Vilja festa símabannið í lög Ráðamenn í Englandi vilja setja það í lög að nemendum verði bannað að vera með síma í skólum þar í landi. Jacqui Smith, menntamálaráðherra, sagði á breska þinginu í dag að lögð yrði fram breytingartillaga á skólalögum þar sem forsvarsmönnum skóla yrði skylt að banna síma. Erlent 20. apríl 2026 22:05
Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Forsvarsmenn tónlistarhátíðarinnar Wireless hafa hlotið töluverða gagnrýni eftir að greint var frá því að bandaríski rapparinn Kanye West myndi stíga á svið öll þrjú kvöld hátíðarinnar. Styrktaraðilar hafa sagt sig frá hátíðinni og hefur forsætisráðherra Bretlands tjáð sig um málið. Lífið 7. apríl 2026 08:51
Niðurgreiða þyndarstjórnunarlyf fyrir þá sem hafa fengið hjartaáfall eða heilablóðfall Heilbrigðisyfirvöld á Englandi hyggjast niðurgreiða þyngdarstjórnunarlyf fyrir um það bil milljón manns sem eru í aukinni áhættu á að fá hjartaáfall eða heilablóðfall. Erlent 1. apríl 2026 07:47
Í haldi lögreglu eftir að hafa ekið á gangandi vegfarendur Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Derby í Englandi grunaður um tilraun til manndráps eftir að bíll hans hafnaði á sjö gangandi vegfarendum. Erlent 29. mars 2026 10:19
Banksy opinberaður, enn einu sinni Hulunni hefur enn einu sinni verið svipt af götulistamanninum Banksy, sem hefur í rúma þrjá áratugi farið huldu höfði, að mestu. Hann er fæddur 1973 sem Robin Gunningham og er frá Bristol í Englandi. Hann breytti þó nafni sínu í David Jones til að eiga auðveldara með að fara huldu höfði. Erlent 19. mars 2026 11:10
Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Yfirvöld á Bretlandseyjum hafa gefið út viðvörun og hvatt heilbrigðisstarfsmenn um að vera á varðbergi gagnvart einkennum heilahimnubólgu. Erlent 19. mars 2026 08:15
John Alford fannst látinn í fangelsinu Leikarinn John Alford er látinn. Hann lést föstudaginn 13. mars í HMP Bure fangelsinu í Norfolkfangelsi, tveimur mánuðum eftir að hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum. Erlent 15. mars 2026 10:09
Barton ákærður fyrir líkamsárás Fyrrum fótboltamaðurinn Joey Barton hefur verið ákærður ásamt öðrum fyrir meinta líkamsárás fyrir utan golfklúbb. Fórnarlambið er sagt í alvarlegu en stöðugu ástandi á spítala. Enski boltinn 10. mars 2026 14:45
Soham-morðinginn látinn Ian Huntely, sem myrti tvær ungar stúlkur í Soham árið 2002, lést á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir árás í hámarksöryggisgæslufangelsi. Hann starfaði sem húsvörður í skóla stúlknanna. Erlent 7. mars 2026 14:09
Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Bretinn Paul Buxton greindist nýlega með krabbamein í blöðruhálskirtli og gekkst undir skurðaðerð fyrr á árinu, þar sem blöðruhálskirtilinn var fjarlægður. Erlent 6. mars 2026 08:53
Andrew látinn laus Andrew fyrrverandi Bretaprins hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu á sjöunda tímanum í dag. Hann var handtekinn á heimili sínu í Wolferton í morgun vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. Erlent 19. febrúar 2026 19:32
Andrew handtekinn á heimili sínu Breska lögreglan mætti í morgun heim til Andrew fyrrverandi Bretaprins við Sandringham höll og handtók hann. Vísir fylgist með málinu í vakt sem finna má neðst í fréttinni. Andrew á afmæli í dag og er 66 ára gamall. Erlent 19. febrúar 2026 10:08
Trommari The Pogues er látinn Andrew Ranken, trommari ensk-írsku þjóðlagasveitarinnar The Pogues, er látinn. Hann varð 72 ára gamall. Lífið 11. febrúar 2026 14:36
Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Vopnaður ræningi sem reyndu að komast inn í svefnherbergi bandarísku leikkonunnar Anya Taylor-Joy og eiginmanns hennar Malcom McRae hefur verið úrskurðaður í fangelsi. Erlent 3. febrúar 2026 22:58
Í deilum við nágrannann vegna trjáa Bítillinn Paul McCartney stendur nú í deilum við nágranna sinn í Westminster í Lundúnum, vegna tveggja friðaðra tráa sem Paul vill fella en nágranninn ekki. Erlent 28. desember 2025 15:07