Gert að greiða húsfélagi í Kópavogi 36 milljónir eftir ákvörðun Hæstaréttar Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni Byggingarfélags Gylfa og Gunnars um að taka mál þeirra gegn húsfélaginu Lundi 2 til 6 í Kópavogi. Málið varðar galla þakplötu á bílastæðahúsi sem fylgdi íbúðum í húsunum. Innlent 8. október 2023 17:41
Braut gegn barnungri stjúpdóttur sinni: „Ég hélt þú vildir þetta af því að þú klæddir þig þannig“ Karlmaður hlaut í gær tólf mánaða fangelsisdóm, þar af níu mánuði skilorðsbundna, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot gegn barnungri stjúpdóttur sinni. Honum var einnig gert að greiða stúlkunni 1,2 milljónir króna í miskabætur, en brotin áttu sér stað árið 2019, þegar hún var ellefu og tólf ára gömul. Innlent 7. október 2023 15:04
Að vera nauðgað af kunningja reyndist ekki eina áfallið Karen Eir Valsdóttir varð fyrir hrottalegri nauðgun í september árið 2018. Gerandinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir verknaðinn. Hann afplánaði tuttugu daga á Hólmsheiði áður en hann var fór í opið úrræði á Kvíabryggju. Fyrir dyrum stendur færsla í rafrænt eftirlit. Karen segir erfitt að lýsa reiði sinni að sá sem braut á henni hafi þurft að dvelja tuttugu daga í lokuðu fangelsi. Innlent 7. október 2023 10:10
Fimm ár, svefnlausar nætur en vonandi endapunktur Ragnhildur Eik Árnadóttir, lögmaður og brotaþoli í máli Jóhannesar Tryggvasonar, segir að sér sé létt eftir tíðindi úr Landsrétti í dag. Dómur yfir Jóhannesi var þyngdur og hann dæmdur í átján mánaða fangelsi í stað tólf og til þess að greiða tvær milljónir króna í miskabætur. Innlent 6. október 2023 16:53
Faðir sem ógnaði ítrekað lífi eiginkonu og barna sinna fær mildari dóm Landsréttur hefur mildað dóm yfir karlmanni sem hefur verið sakfelldur fyrir stórfelld brot gegn þáverandi eiginkonu sinni og tveimur börnum. Í Héraðsdómi Reykaness hlaut maðurinn tveggja ára fangelsisdóm, en Landsréttur dæmir hann til að sæta átján mánaða fangelsisvist. Innlent 6. október 2023 16:40
Dómur Jóhannesar Tryggva fyrir nauðgun þyngdur Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni vegna nauðgunarbrots gegn konu á nuddstofu hans árið 2012. Jóhannes var dæmdur í átján mánaða fangelsi og til þess að greiða tvær milljónir króna. Innlent 6. október 2023 14:16
Hvað telst vera eðlileg leið heim úr vinnu? Hæstiréttur ákvað í fyrradag að skokkari sem lenti í slysi á leið heim úr vinnu eigi rétt á bótum eins og um vinnuslys hafi verið að ræða þar sem leiðin milli vinnustaðar og heimilis taldist eðlileg, þrátt fyrir að ekki hafi verið um stystu leið að ræða. En hvað telst eðlileg leið? Innlent 6. október 2023 11:30
Kæra frávísun hryðjuverkaákærunnar Héraðssaksóknari hefur kært frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur í hryðjuverkamálinu svokallaða til Landsréttar. Ákæru í málinu hefur í tvígang verið vísað frá vegna annmarka. Innlent 5. október 2023 21:17
Dæmdur fyrir árás sem einungis hann sjálfur gat lýst Karlmaður hefur hlotið fjögurra mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir líkamsárás gagnvart öðrum manni. Brotaþoli árásarinnar kvaðst ekki muna eftir henni og þá mat dómurinn framburð vitnis ótrúverðugan. Þar af leiðandi var framburður ákærða í raun eina lýsingin á árásinni frá einstaklingi sem var viðstaddur atburðarásina. Innlent 5. október 2023 18:31
Réttað yfir ungmennum fyrir luktum dyrum Aðalmeðferð í Fjarðarkaupsmálinu svokallaða stendur yfir í Héraðsdómi Reykjaness. Fjögur ungmenni eru ákærð í málinu en þinghald í málinu er lokað. Innlent 5. október 2023 12:21
Ökklabrotnaði við fall í tröppum á Eiðistorgi og fær engar bætur Tryggingafélagið Sjóvá er ekki skaðabótaskylt í máli manns sem féll niður tröppur í verslunarkjarnanum Seltjarnarnesi árið 2016. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu í vikunni ósannað að slysið hafi átt sér stað vegna vanrækslu Sjóvá eða vegna annarra atvika sem myndu gera félagið skaðabótaskylt. Innlent 5. október 2023 10:47
Hæstiréttur sneri við dómi sem hefur þegar verið afplánaður Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Ívar Guðjónssyni, fyrrverandi forstöðumanni eigin fjárfestinga Landsbankans, frá árinu 2014. Hæstiréttur hafði áður dæmt hann til tveggja ára fangelsisvistar en með umdeildri ákvörðun Endurupptökudóms var málið sent aftur til Hæstaréttar. Hann hefur þegar afplánað þann dóm og var því ekki dæmd refsing. Innlent 4. október 2023 18:40
Gekkst við „bossapartýi“ á leikskóla Ungur karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir blygðunarsemis- og barnaverndarlagabrot og kynferðislega áreitni gegn barni Ákvörðun um refsingu mannsins hefur verið frestað, og mun falla niður að fimm árum liðnum, en honum var gert að greiða þremur börnum miskabætur. Innlent 4. október 2023 16:22
Skokkarinn lagði Reykjavíkurborg með minnsta mun Starfsmaður Reykjavíkurborgar á rétt á slysabótum vegna slyss sem varð þegar hann hljóp heim til sín úr vinnunni. Þrír dómarar Hæstaréttar voru á þessari skoðun en tveir á móti. Þótt skokkarinn hefði ekki farið stystu leið heim þá hefði hún ekki verið úr hófi löng og réttlætanleg þar sem leiðin var um göngustíga. Innlent 4. október 2023 16:14
Átök ókunnugra kvenna við Petersen-svítuna enduðu fyrir dómi Ung kona var í dag dæmd í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir líkamsárás sem átti sér stað á djamminu í miðbæ Reykjavíkur í júní 2021, nánar tiltekið fyrir framan Petersen-svítuna. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness. Innlent 3. október 2023 16:00
Braut gegn lögregluþjónum en sagði þá ætla að drepa hann Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir valdstjórnarbrot fyrir að beita tvo lögregluþjóna ofbeldi. Maðurinn neitaði sök og hélt því fram að annar lögregluþjónninn hafi ætlað að drepa hann, og því sagðist því halda að þeir myndu drepa hann. Innlent 3. október 2023 06:30
Hryðjuverkaákærunni aftur vísað frá Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómi ákæru héraðssaksóknara á hendur tveimur karlmönnum fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilrauninni. Úrskurður var kveðinn upp á þriðja tímanum í dag. Innlent 2. október 2023 15:06
Krefst átta ára dóms: Búkmyndavél notuð við óvænta skýrslutöku Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari hjá héraðssaksóknara fór fram á átta ára fangelsisdóm yfir Alexander Mána Björnssyni í Bankastræti Club-málinu í málflutningi sínum í morgun. Búkmyndavél var notuð til að taka upp óvænta skýrslu yfir Alexander fyrir hádegi. Innlent 2. október 2023 12:54
Gert að sæta „öruggri gæslu“ eftir vopnað rán Karlmaður sem framdi vopnað rán þann 22. ágúst 2021 þarf að sæta öruggri gæslu á viðeigandi hæli. Þetta er niðurstaða dóms Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 2. október 2023 11:42
Dró játningu skyndilega til baka Alexander Máni Björnsson, sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps í Bankastræti-Club málinu svonefnda, hefur dregið aðra játningu af tveimur fyrir hnífsstungu til baka. Það gerði hann við upphaf þinghalds í Gullhömrum í morgun. Innlent 2. október 2023 10:17
Töldu sig svikna eftir milljarða sölu og stefndu Helga Helgi Hermannsson, stærsti hluthafi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Sling, var í sumar dæmdur til að greiða fjórum hönnuðum samanlagt 67 milljónir króna. Starfsmennirnir stefndu Helga sem þeir töldu hafa svikið sig um gerða samninga þegar Sling var selt fyrir fleiri milljarða króna. Fyrirtæki sem þeir höfðu tekið þátt í að byggja upp og átt kauprétt í. Viðskipti innlent 2. október 2023 09:01
Brot í nánu sambandi: Njósnaði um farsímanotkun með forriti og beitti ofbeldi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir margvísleg brot í nánu sambandi á miðvikudag. Maðurinn var meðal annars ákærður fyrir að beita barnsmóður sinni líkamlegu ofbeldi, koma fyrir njósnaforriti í farsíma hennar og brjóta gegn nálgunarbanni. Innlent 29. september 2023 19:17
Svar til lögmanns Á Vísi er í dag, 29. sept., að finna grein eftir Sævar Þór Jónsson lögmann, þar sem hann skrifar um gagnrýni, sem ég birti á fasbókarsíðu minni um daginn. Notar greinarhöfundur fyrirsögnina: „Jón Steinar tekur upp hanskann“. Er svo að skilja á honum að ég hafi verið efnislega fylgjandi niðurstöðu dómarans. Skoðun 29. september 2023 17:01
„Ég vissi ekki að hann væri alvitur“ Rannsóknarlögreglumaður, sem stýrði rannsókn á hnífstunguárásinni á Bankastræti Club, fullyrti þegar hann gaf skýrslu fyrir dómi í dag að aðeins einum hníf hafi verið beitt í árásinni. „Ég vissi ekki að hann væri alvitur,“ sagði verjandi manns, sem ákærður er fyrir þrjár tilraunir til manndráps, en dró ummælin síðar til baka. Innlent 29. september 2023 15:46
Kannast hvorki við „Latino-hópinn“ né meinta vargöld Brotaþolar í Bankastrætis Club málinu segjast hvorki kannast við svokallaðan „Latino-hóp“ né meinta vargöld sem sakborningar í málinu hafa lýst milli hópsins og hóps sakborninga. Innlent 29. september 2023 07:00
Kokkinum sem lét ferskmetið standa hafnað í þriðju tilraun Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni yfirkokks á hóteli á Norðvesturlandi sem hafði krafist þess að fá laun á uppsagnarfresti, orlof, orlofsuppbót og desemberuppbót eftir að hafa verið rekinn úr starfi. Innlent 28. september 2023 22:31
Dreifðu grímum á Dubliner og ræddu vopnaburð á Prikinu Sakborningar í Bankastrætis Club málinu báru um fyrir dómi að um hafi verið að ræða einhvers konar uppgjör við hóp manna sem kallaður hefur verið „Latino-hópurinn“. Sakborningarnir hafi ruðst 25 saman inn á skemmtistað til þess að ógna meðlimum hópsins. Innlent 28. september 2023 18:01
„Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég hefði játað að hafa stungið alla þrjá“ Alexander Máni Björnsson, tæplega tvítugur karlmaður sem sætir ákæru fyrir þrjár tilraunir til manndráps á Bankastræti Club í febrúar í fyrra, segir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann væri að játa þrjár hnífstungur við þingfestingu málsins. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki að hafa ætlað að ráða þeim bana. Innlent 28. september 2023 16:06
Vildi spila viðtal við brotaþola Skýrslutökur brotaþola og annarra vitna hófust í morgun og því er töluvert fjölmennara í dómsal í Gullhömrum við aðalmeðferð Bankastrætis Club málsins en síðustu daga. Þónokkrir sem sæta ákæru eru mættir til þess að fylgjast með framgangi mála, þar á meðal sá eini sem ákærður er fyrir að hafa reynt að verða brotaþolum að bana. Innlent 28. september 2023 13:40
Sýndi skjáskot af millifærslum sem höfðu aldrei farið í gegn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í fjögurra mánaða fangelsi fyrir röð brota, meðal annars að hafa í nokkrum tilvikum fengið fólk til að afhenda sér vörur eftir samskipti á samfélagsmiðlum, og sýna þeim skjáskot af millifærslum án þess að greiðslurnar hafi raunverulega farið í gegn. Innlent 28. september 2023 10:23