„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. Innlent 11. júní 2026 10:00
Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings, málið hafi verulega almenna þýðingu. Steina var í lok febrúar sakfelld í Landsrétti fyrir manndráp af gáleysi. Innlent 10. júní 2026 17:44
Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Nokkur mál varðandi brot á áfengislögum eru til afgreiðslu á ákærusviði lögreglunnar. Engin ákæra hefur verið gefin út í slíkum málum frá því í apríl. Innlent 10. júní 2026 16:43
Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna. Innlent 10. júní 2026 16:24
Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Elju starfsmannaþjónustu vegna dóms Landsréttar í máli sem til kom vegna ummæla Hjálmars Friðrikssonar blaðamanns í frétt á Samstöðinni. Ummælin voru í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023 en í máli Elju er fjallað um að Hjálmar hafi gengið hvað lengst þegar hann skrifaði að nútíma þrælahald, sem Elja stundi, hafi „nú dregið mann til dauða á Íslandi.“ Innlent 10. júní 2026 15:04
Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga. Innlent 10. júní 2026 14:48
Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið ákærður fyrir að flytja 43 kíló af sterku kókaíni til landsins með Norrænu í mars síðastliðnum. Um er að ræða eitt stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar. Innlent 10. júní 2026 11:04
Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Landsréttur staðfesti í gær að Hannes Valle Þorsteinsson sæti áfram gæsluvarðhaldi vegna kynferðisbrots gegn barni á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík. Innlent 9. júní 2026 13:48
Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Vottorð frá kírópraktor varð til þess að maður var sýknaður af ákæru um ölvunarakstur. Meiðsli eftir bílbeltið gáfu til kynna að hann hefði setið í farþegasætinu. Innlent 8. júní 2026 23:15
Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Margrét Friðriksdóttir leitar til almennings eftir styrkjum en hún hlaut að sögn þungt högg í héraðsdómi þegar hún var dæmd til að greiða sekt í ríkissjóð vegna ummæla um Barböru Björnsdóttur dómara þess efnis að hún væri lauslát mella. Innlent 8. júní 2026 16:49
Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Karlmaður hlaut á dögunum skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að áreita kynferðislega stúlku sem lá með skerta meðvitund í sjúkrarúmi á gangi bráðamóttökunnar Landspítalans í Fossvogi. Manninum var gefið að sök að kyssa stúlkuna á munninn og svo stinga fingrum sínum í munn hennar. Með því þótti hann sýna af sér ruddalegt og ósiðlegt athæfi. Innlent 7. júní 2026 16:01
Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á dögunum karlmann í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga tveimur konum. Í öðru málinu kom hann steinmunum fyrir í kynfærum þolanda síns. Innlent 7. júní 2026 10:18
Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Leigubílstjóri var á dögunum dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að valda líkamsmeiðingum af gáleysi og umferðarlagabrot með því að aka yfir gangbraut á rauðu ljósi og á konu, sem var gangandi vegfarandi. Innlent 6. júní 2026 14:34
Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ming Ting Mancel, sem ákærð er fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana á Edition-hótelinu í Reykjavík í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, sendi nýkaledónskum miðli yfirlýsingu vegna umfjöllunar hans um málið. Innlent 5. júní 2026 15:38
Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í gær að karlmaður á þrítugsaldri hefði gerst sekur um nauðgun með því að hafa samræði við þrettán ára stúlku. Í héraði var hann sýknaður á þeim forsendum að stúlkan hefði veitt samþykki. Talskona Stígamóta gagnrýnir að barnið hafi ekki fengið niðurstöðu í mál sitt fyrr en rúmum fjórum árum eftir nauðgunina. Innlent 5. júní 2026 13:02
Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Kröfum tónlistarkonunnar Bríetar Ísis Elfar á hendur þrotabúi Roks records, upp á tæpar átta milljónir króna, hefur verið vísað frá dómi vegna mikilla annmarka á kröfugerð. Pálmi Ragnar Ásgeirsson var eini eigandi Roks records og fór fram á frávísun málsins. Þrotabúið sjálft gerði ekki kröfu um frávísun en tók þó undir málatilbúnað Pálma Ragnars. Öðru máli þeirra á milli var þó ekki vísað frá. Innlent 4. júní 2026 16:41
Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Landsréttur hefur dæmt frjósemismiðstöðina Livio til þess að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum tuttugu og fimm milljónir króna í skaðabætur. Ingunn Jónsdóttir stefndi Livio fyrir að hafa sagt henni upp störfum á ólögmætan hátt. Innlent 4. júní 2026 15:06
Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms um sýknu íslenska ríkisins af öllum kröfum níu mótmælenda, sem töldu lögreglu hafa beitt þá óþarfa hörku á vettvangi mótmæla í Skuggasundi árið 2024. Innlent 4. júní 2026 15:02
Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot fyrir að hafa ekið skotbómulyftara á bíl á Lækjargötu undir áhrifum fíkniefna með þeim afleiðingum að ökumaður hins bílsins lést. Innlent 4. júní 2026 14:46
Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Lögregla hefur lokið rannsókn á lífshættulegri árás í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars. Málið er komið á borð héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um að gefa út ákæru. Innlent 4. júní 2026 14:04
„Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Margrét Friðriksdóttir, sem var í morgun sakfelld fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart. „Auðvitað stendur valdaklíkan saman það er gömul saga og ný á Íslandi, en þessum óréttláta dómi verður að sjálfsögðu áfrýjað,“ segir hún. Innlent 4. júní 2026 12:00
Lögsækja Reykjavíkurborg Öryrkjabandalag Íslands, ÖBÍ, hefur höfðað mál gegn Reykjavíkurborg vegna vanfjármögnunar NPA-samninga. Málið verður þingfest í dag. Innlent 4. júní 2026 10:55
Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Margrét Friðriksdóttir hefur verið dæmd til að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna ummæla hennar um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Þess var ekki krafist að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk og þau standa því. Margrét kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“. Innlent 4. júní 2026 10:18
Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Ólafur Hauksson héraðssaksóknari segir kæru á hendur Guðrúnu Björgu Birgisdóttur á borði embættisins. Hún er sökuð um að hafa dregið sér fé sem fjárvörslumaður dánarbús og grunur leikur á að um að það sé ekki eina brot hennar af þessu tagi. Innlent 3. júní 2026 12:01
Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður hefur verið kærð fyrir að draga sér á annan tug milljóna króna í störfum sínum sem skiptastjóri dánarbús konu. Innlent 2. júní 2026 20:36
Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti eftir að lögregla fann töluvert magn fíkniefna í leit í bifreið hans og heimili í Hveragerði. Innlent 2. júní 2026 16:44
Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Bandaríska söngkonan Sabrina Carpenter hefur farið fram á nálgunarbann gegn manni sem hún segir hafa birst við heimili hennar innan við sólarhring eftir að hafa verið handtekinn. Hann hafði reynt að þröngva sér inn um dyr heimilis hennar og þóst þekkja hana. Lífið 1. júní 2026 21:51
Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Pétur Guðmannsson réttarlæknir segir mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk og lögregla kunni að meta áverka sem geti myndast við kyrkingu í heimilisofbeldismálum. Eðli áverka geti sagt til um þrýsting sem var beitt og jafnvel tímalengd kyrkingarinnar. Manneskja missir meðvitund eftir aðeins sex til tíu sekúndur en kyrking geti verið óafturkræfanleg eftir um þrjár mínútur. Innlent 31. maí 2026 07:16
Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Maður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðbundið fangelsi og gert að greiða rétt tæpar tvær milljónir fyrir að veitast að ellefu ára dreng sem tók þátt í dyraati á heimili hans. Atvikið átti sér stað í nóvember 2024 en maðurinn kom að brotnu gleri í útidyrahurð sinni og ákvað að leita uppi drengjahóp sem hafði reglulega verið að prakkarast við húsið. Innlent 29. maí 2026 21:08
Eden Mining lagði sóknarbörnin Hæstiréttur dæmdi Eden Mining, sem hefur helst það verkefni með höndum að vera milliliður fyrir Sjöunda dags aðventista við námugröft, í vil í deilu þess við nokkra aðventista í vikunni og mál þeirra á hendur félaginu fer ekki fyrir dómstóla vegna aðildarskorts þeirra. Innlent 29. maí 2026 15:03