Bílar

Bílar

Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.

Fréttamynd

Yngstu fara flestar ferðir

Nær helmingur landsmanna fer tvær til þrjár ferðir í umferðinni á dag. Ferðatíðnin minnkar almennt með hækkandi aldri en þeir yngstu fara að meðaltali 4,6 ferðir í umferðinni á dag.

Innlent
Fréttamynd

Neytendastofa tæklar bílastæðamálin

Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum.  Fyrirtækin verða beitt stjórnvaldssektum að upphæð tvö til fjögur hundruð þúsund krónum. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rekja hundruð dauðs­falla á ári til stærri bíla

Fjölgun jeppa og pallbíla í umferðinni er talin hafa leitt til allt að fjögur hundruð dauðsfalla gangandi vegfarenda í Bandaríkjunum á ári undanfarinn aldarfjórðung. Hátt húdd slíkra bíla og stærri blindsvæði auka hættuna á mannskæðum slysum.

Erlent
Fréttamynd

Einungis sjö bílar kallaðir inn

Eigendur Land Rover-bíla sem BL hefur innkallað vegna skipta á háspennurafhlöðu þurfa ekki að hætta að keyra bílana þar til þeir komast í viðgerð. Öruggt er að keyra þá en einungis sjö ökutæki er um að ræða. 

Neytendur
Fréttamynd

Mikil­vægur á­fangi fyrir eldri öku­menn

Við þinglok 2026 náðist mikilvægur áfangi í réttindabaráttu eldra fólks þegar Alþingi samþykkti einróma frumvarp Nönnu M. Gunnlaugsdóttur og meðflutningsmanna hennar um breytingar á gildistíma ökuskírteina eldri ökumanna.

Skoðun
Fréttamynd

Inn­kalla Land Rover-bíla vegna bruna­hættu

Bílaumboðið BL hefur innkallað fjórar undirtegundir nýrra Land Rover-ökutækja þar sem hætta er á ofhitnun háspennurafhlöðu sem gæti orðið til þess að kvikni í ökutækinu. BL mun skipta um rafhlöðu á þeim ökutækjum sem eru innkölluð. Innköllunin nær einungis til tengiltvinnbíla, eða „plug-in hybrid“ (PHEV).

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ók inn í hús og varð konu á sjö­tugs­aldri að bana

Tvítugur karlmaður er ákærður fyrir manndráp af gáleysi fyrir að aka bíl sínum á miklum hraða á íbúðarhús nærri Árósum með þeim afleiðingum að kona á sjötugsaldri lést. Áreksturinn varð eftir að ökumaðurinn reyndi að flýja lögreglu.

Erlent
Fréttamynd

Taka ekki upp gjald­skyldu við Kringluna

Ekki stendur til að taka upp gjaldskyldu á bílastæði við Kringluna líkt og ákveðið hefur verið að gera við verslunarmiðstöðina Smáralind. Markaðsstjóri Kringlunnar segir meiri aðsókn í verslunarmiðstöðina en bílastæðaskortur sé ekki sérstakt vandamál.

Neytendur
Fréttamynd

Taka upp gjald­skyldu við Smára­lind

Forsvarsmenn Smáralindar hafa ákveðið að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum við verslunarmiðstöðina en uppbygging á svæðinu og aðsókn í húsið eru meðal þess sem spilaði inn í ákvarðanatökuna að sögn markaðsstjóra Smáralindar.

Neytendur
Fréttamynd

Þrjú al­var­leg ofbeldisbrot

Erilsamri viku er nú lokið á Akureyri en þar höfðu síðustu daga farið fram Bíladagar, útskriftir úr mennta- og háskóla með tilheyrandi veisluhaldi, mótorhjólahittingur og fleira. Aðalvarðstjóri segir þrjú alvarleg ofbeldisbrot hafa verið tilkynnt til lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Öku­maður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í dag, mánudaginn 22. júní, afskipti af manni sem ók um á vespu en hann reyndist vera undir áhrifum fíkniefna, með fíkniefni á sér, án ökuréttinda og vespan, sem reyndist stolin, var ljóslaus og án skráningarmerkja.

Innlent
Fréttamynd

Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upp­tæka

Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri.

Innlent
Fréttamynd

Al­vöru þægindi eftir á­tján holur

„Golfhringur getur tekið fjórar til fimm klukkustundir og eftir hann er gott að setjast inn í bíl sem býður upp á alvöru þægindi,“ segir Hlynur Sigurðsson, framleiðandi og forfallinn golfari en hann lætur fara vel um sig í Hongqi EHS7 rafmangsbílnum frá BL í þáttunum Golfarinn á Sýn sem hann stýrir ásamt Ingu Lind.

Samstarf
Fréttamynd

Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferða­lögum

Hátt í 400 manns mættu á viðburð hjá Topptjöldum og vögnum þar sem nýjasta lína IKAMPER topptjalda var kynnt, auk rafmótorhjóla frá Talaria. Sigurður Þorsteinsson, einn eiganda Topptjalda og vagna, segir sífellt stærri hóp kjósa frelsið sem felst í því að ferðast með topptjald. IKAMPER topptjöldin eru þar í fararbroddi og standist íslenskar aðstæður allan ársins hring.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi

Rúnar Sigurjónsson, vélvirki og formaður Fornbílaklúbbsins, tók sæti á Alþingi sem varaþingmaður Flokks fólksins í gær. Verandi mikill fornbílakarl mætti Rúnar á vínrauðum, 95 ára gömlum Chevrolet Independence.

Lífið
Fréttamynd

Engar mála­miðlanir í 810 kíló­metra drægni

„Nú verður ekkert vesen að eiga rafbíl, við erum hætt málamiðlunum,“ sögðu stjórnendur Volvo þegar fyrirtækið kynnti nýja EX60, fimm manna fjölskyldu-rafjeppa í upphafi árs. Ekki þyrfti lengur lífsstílsbreytingu til að skipta úr dísel og bensíni yfir í rafmagnsbíl og frelsið loks orðið algjört til langra ferðalaga án hleðslustoppa.

Samstarf
Fréttamynd

Reynslu­akstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka

Mín fyrstu kynni af Land Rover má rekja aftur til níunda áratugarins og lengst upp í sveit. Skólabíllinn minn var sería II, blár og toppurinn hvítur, afi átti ljósan með rauðum sætum og ég man eftir fleirum, grænum, brúnum, löngum og stuttum. Annar hver bóndi átti Land Rover úr seríu I og II enda landbúnaðartrukkur par exelans. Leiðir mínar og Land Rover hafa þó lítið legið saman síðan þá. Það var því frekar spennandi að setjast upp í splunkunýjan Discovery 5, Adventure.

Samstarf
Fréttamynd

Rafsendibílar orðnir raun­hæfur kostur fyrir ís­lensk fyrir­tæki

Rafbílavæðing atvinnubíla er ekki lengur framtíðarmúsík heldur raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki í dag. Nýr Renault Master E-Tech er hannaður með það að markmiði að mæta þörfum atvinnurekstrar. Hann er miklu meira en rafvædd útgáfa af sendibíl, hann er fullbúinn vinnubíll sem stenst kröfur nútímans. Fagmönnum  er boðið í morgunkaffi í BL í dag á milli kl. 8 og 10 á Sævarhöfða.

Samstarf
Fréttamynd

Golfkúlum rigndi yfir bílaumboð og ekki í fyrsta sinn

Ungmenni í golfi á golfvelli Golfklúbbs Reykjavíkur léku sér á æfingabásum vallarins að því að dræva golfkúlum yfir Krókhálstjörn og inn á bílastæði þjónustuverkstæðis Öskju við samnefnda götu. Forstjóri Öskju segir nokkra bíla hafa orðið fyrir kúlu með tilheyrandi tjóni.

Innlent