Bílalyfta Herjólfs kramdi tvö ökutæki Bílalyfta Herjólfs fór niður öðrum megin er skipið var að bakka frá bryggju í Landeyjahöfn með þeim afleiðingum að tveir bílar krömdust. Engin slys urðu á fólki. Innlent 15. ágúst 2022 12:36
FÍB telur að olíufélög skuldi verðlækkun Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB telur að íslensku olíufélögin séu ekki að fylgja lækkuðu heimsmarkaðsverði á hráolíu á sama hátt og hækkunum á sömu hráolíu er gjarnan fylgt. Eins bendir FÍB á þá staðreynd á heimasíðu sinni að síðan hráolíuverð hefur lækkað um tæp 30% hefur eldsneytisverð lækkaðum 4,2% fyrir bensín og 4,7% fyrir dísel. Dönsk olíufélög hafa hins vegar lækkað bensín um 18,4% og dísel um 16,8% á sama tíma. Bílar 15. ágúst 2022 07:01
Nýr rafbíll frá MG Nýr rafbíll frá MG er væntanlegur til BL á haustmánuðum. Um er að ræða hlaðbak sem ber heitið MG4 sem er sérlega vel búinn fimm manna fjölskyldubíl í C millistærðarflokki. Forsala á MG4 hófst í vikunni og eru fyrstu bílarnir væntanlegir til BL við Sævarhöfða í lok október. Bílar 12. ágúst 2022 07:00
Myndband: Reipitog á milli Ford F-150 Lightning og Rivian R1T Tveir stórir rafpallbílar takast á í reipitogi. Bílarnir tveir eru ekki beinir keppinautar. Þeir eru þó meðal fyrstu rafpallbílanna sem komu á markað. Í myndbandinu má sjá Ford F-150 Lightning og Rivian R1T í reiðitogi. F-150 er talsvert stærri en R1T en þó ögn þyngri. Báðir eru bílarnir fjórhjóladrifnir. Bílar 10. ágúst 2022 07:00
Geggjað bílasafn á Breiðdalsvík Eitt glæsilegasta bílasafn landsins er á Breiðdalsvík en það er í gamla frystihúsinu á staðnum. Á safninu eru um tuttugu bílar, allt glæsikerrur, svo ekki sé minnst á sportbíla safnsins. Innlent 9. ágúst 2022 20:05
Tesla Model Y að verða mest seldi bíll heims Rafjepplingurinn Tesla Model Y er á hraðri leið með að vera mest seldi bíll ársins 2022 þegar horft er til tekna af sölu. Á næsta ári er útlit fyrir að Model Y verði mest seldi bíll heims þegar kemur að seldum eintökum. Það verður að teljast merkilegur árangur fyrir stóran rafbíl. Bílar 8. ágúst 2022 07:00
Elon Musk: Tæknilegar breytingar og verðið mun hækka á Cybertruck Framkvæmdastjóri Tesla, Elon Musk segir að margt hafi breyst síðan bíllinn var fyrst kynntur árið 2019. „Það þýðir að tæknilýsingin og verðið munu breytast,“ sagði Musk á hluthafafundi Tesla, sem kallast Cyber Roundup. Bílar 6. ágúst 2022 07:00
Porsche blæjubíllinn sem var aldrei smíðaður Porsche hefur nú birt frumgerð af blæju útgáfu af Cayenne sem er nú orðin 20 ára. Frumgerðin var kynnt sem hluti af 20 ára afmæli Cayenne. Hún er ekki ökuhæf og er í raun lítið annað en skelin. Bílar 5. ágúst 2022 07:00
DeWALT trukkurinn í fyrsta sinn á Íslandi DeWALT Yellow Deamon verkfæratrukkur með tengivagn er nú á ferðinni um landið. Trukkurinn er troðfullur af verkfærum sem hægt er að skoða og prófa og fá ráðgjöf sérfræðinga. Keppt verður um titilinn Skrúfumeistari Íslands og boðið upp á hamborgara. Trukkurinn verður staddur á Reyðarfirði á morgun, föstudag. Samstarf 4. ágúst 2022 14:12
Haukur Viðar á Heklunni Íslandsmeistari í torfæru Haukur Viðar Einarsson á bíl sínum Heklunni varð um helgina Íslandsmeistari í sérútbúnaflokki Íslandsmótsins í torfæru í fyrsta sinn, þegar tvær síðustu keppnir tímabilsins fóru fram á Akureyri. Haukur endaði með 101 stig í mótinu. Í öðru sæti varð Geir Evert Grímsson á Sleggjunni með 85 stig og í þriðja sæti varð Íslandsmeistari síðasta árs, Skúli Kristjánsson á Simba með 84 stig. Bílar 3. ágúst 2022 07:01
Næsta kynslóð af Dodge Charger og Challenger verða rafbílar Gömlu vígin falla nú hvert á fætur öðru. Fleiri og fleiri rótgrónir framleiðendur eru að snúa sér að hreinum rafbílum. Dodge er sá nýjasti í þeim hópi og það með sportbílum sínum, Charger og Challenger. Bílar 2. ágúst 2022 07:01
Dacia Duster á toppnum annan mánuðinn í röð Flestar nýskráningar í júlí voru skráningar bíla af Toyota tegund með 296 bíla og Kia var í öðru sæti með 239. Dacia var í þriðja með 234 bíla nýskráða. Vinsælasta nýskráða undirtegundin í júlí var Dacia Duster, annan mánuðinn í röð, með 226 bíla nýskráða. Upplýsingar um nýskráningar eru fengnar af vef Samgöngustofu. Bílar 1. ágúst 2022 07:01
Alfa Romeo ætlar óvænt að kynna nýjan sportbíl á næsta ári Ítalski framleiðandinn, Alfa Romeo hefur gefið út að sportbíllinn sem er búið að bíða eftir lengi verði kynntur á fyrri helmingi næsta árs. Bílinn mun svipa til T33 Stradake, samkvæmt yfirmanni verkefnisins hjá Alfa Romeo, Jean-Philippe Imparato. Bílar 30. júlí 2022 07:01
Númeraplötur hækka um 136 prósent Ný gjaldskrá Samgöngustofu tekur gildi í byrjun ágúst. Almenn verðhækkun er fimm prósent en athygli vekur að skráningarmerki, almennt kölluð númeraplötur, hækka í verði um 136 prósent. Innlent 29. júlí 2022 10:24
Ódýrara að leggja einkaþotu en bíl Það er ódýrara að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli en bíl í bílakjallara í miðbæ Reykjavíkur. Fimm daga stæði á Reykjavíkurflugvelli kostar 35.485 fyrir einkaþotu. Innlent 27. júlí 2022 07:27
Skýring á brotthvarfi Herbert Diess frá Volkswagen Group Ákvörðun um uppsögn Herbert Diess, framkvæmdastjóra Volkswagen Group kom mörgum í opna skjöldu. Raunveruleg ástæða þess að hann var að endingu látinn taka pokann sinn var sú að eina verkefnið sem var eftir á borði hans síðan í desember síðastliðnum, olli talsverðum seinkunum á kynningum rafbíla eins og Porsche Macan, Artemites verkefni Audi og Bentley rafbílum. Diess var enn yfir hugbúnaðardeildinni CARIAD sem virðist hafa verið síðasta hálmstráið. Bílar 27. júlí 2022 07:01
Háskólanemar hanna bíl sem fjarlægir koltvísýring úr andrúmsloftinu Bíllinn gengur undir nafninu Zem og er frumgerð af rafbíl sem notar sérstakar síur sem hreinsa koltvísýring úr loftinu á meðan á akstri stendur. Bíllinn er hannaður af nemendum við Eindhoven háskóla í Hollandi. Bíllinn er ekki fyrsti byltingarkenndi bíllinn sem nemendur skólans hanna. Bílar 26. júlí 2022 07:01
Framkvæmdastjóri Volkswagen Group hættir Herbert Diess, framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar hefur sagt starfi sínu lausu og mun láta af því 1. september næstkomandi. Næsti framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar verður Oliver Blume, núverandi framkvæmdastjóri Porsche. Bílar 23. júlí 2022 07:00
Dótturfélag Hyundai nýtti sér barnaþrælkun í Alabama Fyrirtækið SMART Alabama LLC nýtti sér barnaþrælkun við gerð parta fyrir bíla bifreiðaframleiðandans Hyundai. Í sumum tilvikum voru starfsmenn fyrirtækisins einungis tólf ára gamlir. Viðskipti erlent 22. júlí 2022 23:02
Segir fásinnu að stuðningur við rafbíla sé óhagkvæmur Formaður rafbílasambands segir mikið af ranghugmyndum í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar um hagkvæmni loftslagsaðgerða. Stofnunin gefi sér mikið af röngum forsendum og algjör fásinna sé að skella loftslagsskuldinni á rafbíla. Innlent 22. júlí 2022 12:55
Alpine kynnir rafdrifna blæjuútgáfu af A110 Franski sportbílaframleiðandinn Alpine, sem er í eigu Renault hefur kynnt til sögunnar hreinan rafblæjubíl sem er byggður á A110 bíl framleiðandans, sem til þessa hefur verið knúinn áfram af bensínmótor. Rafdrifna útgáfan mun bera nafnið A110 E-ternité Bílar 22. júlí 2022 07:01
Hyundai staðfestir væntanlegan ódýran og smáan rafbíl Hyundai hefur staðfest að unnið sé að smáum og ódýrum rafbíl fyrir evrópskan markað. Verðið á að vera um 20.000 evrur eða um 2,8 milljónir króna. Bíllinn er ekki væntanlegur alveg strax. Huyndai kynnti nýlega Ioniq 6. Bílar 20. júlí 2022 07:01
Pagani ætlar að þróa rafbíla eftir allt saman Pagani hefur staðfest að fyrirtækið ætli að framleiða ofurrafbíl þrátt fyrir orðróm um að ekkert yrði að smíðum slíks bíls. Pagani segist vera með annað augað á framtíðarlausnum. Bílar 18. júlí 2022 07:01
Myndband: Einvígi olíulausra V8 véla Hvað gerist þegar olían er tekin af vélum tveggja bíla sem eru yfir tuttugu ára gamlir og átta strokka? Hvort endist BMW vélin lengur eða Lexus vélin, eins og myndbandið setur einvígið upp, Þýskaland gegn Japan. Annar bíllinn endist talsvert lengur en hinn. Bílar 16. júlí 2022 07:02
Ioniq 6 Saloon kynntur til sögunnar Hyundai Motor hefur frumsýndi nýlega Ioniq 6 sem verður nýjasti rafbíllinn úr smiðju Hyundai, búinn 77 kWh rafhlöðu með 610 km drægni. Ioniq 6 styður við bæði 400-V og 800-V hleðslustöðvar. Með 350 kW hleðslu er hægt að hlaða Ioniq 6 frá 10 til 80 prósenta á aðeins 18 mínútum. Bílar 15. júlí 2022 07:01
Fyrsti rafbíll Lamborghini verður jepplingur Fyrsti rafbíll ítalska sportbílaframleiðandans Lamborghini verður jepplingur og er væntanlegur árið 2028. Það er líflína fyrir bensín bíla þrátt fyrir rafvæðinguna. Bílar 14. júlí 2022 07:01
Framleiðslu BMW i3 hætt BMW hefur nú hætt framleiðslu rafbílsins i3 eftir að 250.000 eintök hafa verið smíðuð á þeim rúmu átta árum sem bíllinn hefur verið í framleiðslu. Síðustu tíu bílarnir voru framleiddir í sérstakri heimahafnar útgáfu (e.HomeRun). Bílar 11. júlí 2022 07:01
Kia EV6 valinn bíll ársins Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB hefur valið Kia EV6 sem bíl ársins. Fyrir nafnbótina hlýtur bíllinn stálstýrið. Bíllinn var frumsýndur í nóvember á síðasta ári, síðan þá hefur hann einnig verið valinn bíll ársins í Evrópu. Bílar 9. júlí 2022 07:01
Ríkið hagnist helst á heimsmarkaðshækkun olíuverðs Framkvæmdastjóri hjá Orkunni segir ríkið vera eina aðilann sem grætt hafi á hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu. Ríkið innheimti nú um tuttugu krónum meira á hvern lítra af bensíni en í byrjun janúar. Olíufélögin hafi lítið svigrúm til mikilla lækkana á bensínverði. Viðskipti innlent 7. júlí 2022 18:56
Óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs Formaður FÍB óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs hér á landi. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um 9,5 prósent í gær og aftur um rúm þrjú prósent í dag. Innlendar bensínstöðvar hafa flestar lækkað lítraverð sitt um tvær og hálfa krónu í dag. Viðskipti innlent 6. júlí 2022 20:38