Besta deild kvenna

Besta deild kvenna

Leikirnir




    Fréttamynd

    Upp­gjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara

    Þróttur Reykjavík og FH áttust við í annarri umferð Bestu deildar kvenna á AVIS-vellinum í Laugardal í kvöld. Um var að ræða jafnan og baráttumikinn leik þar sem FH var meira ógnandi lengi vel, en Þróttur sýndi mikinn karakter og sneri leiknum sér í vil. Lokatölur 2-1 fyrir heimakonum.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heima­leik

    Stjarnan og Valur áttust við í annarri umferð Bestu deildar kvenna á Samsung-vellinum í kvöld. Stjarnan var sterkari aðilinn allan leikinn og uppskar verðskuldaðan sigur. Birna Jóhannsdóttir skoraði fyrra mark Stjörnunnar en Jana Sól Valdimarsdóttir það síðara. Lokastaðan 2-0.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Breiða­blik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópa­vogi

    Breiðablik lagði Fram, 2-0, á Kópavogsvelli í 2. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Mörk frá Líf Joostdóttur van Bemmel og Barbáru Sól Gísladóttur tryggðu Blikum sigurinn eftir markalausan fyrri hálfleik. Breiðablik er því með fullt hús stiga eftir sigurinn á meðan Fram er enn án stiga eftir tvö töp.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Breiða­blik - FH | Bikar í boði í meistara­keppninni

    Hér fer fram bein textalýsing frá leik Breiðabliks og FH í Meistarakeppni kvenna í fótbolta. Um árlegan viðburð er að ræða þar sem að ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar mætast í leiknum sem útkljáir hverjir séu meistarar meistaranna. Breiðablik er hins vegar bæði ríkjandi Íslands- og bikarmeistari í þetta skipti. FH tapaði fyrir Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á síðasta tímabili og endaði í 2.sæti Bestu deildarinnar. Það er árangur liðsins í deildinni sem veitir FH þátttökurétt í Meistarakeppninni þetta árið.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Kane ver mark Blika

    Markmaðurinn Taylor Kane hefur skrifað undir hjá Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks og mun leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu deild kvenna.

    Íslenski boltinn