Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sindri Sverrisson skrifar 10. september 2026 17:00 Fanney Lísa Jóhannesdóttir og Sóley Edda Ingadóttir verða liðsfélagar hjá Molde, rétt eins og í U19-landsliðinu og hjá Stjörnunni. Molde FK Norska knattspyrnufélagið Molde hefur nú tryggt sér tvær af efnilegustu knattspyrnukonum landsins. Hin 17 ára Fanney Lísa Jóhannesdóttir kemur til félagsins frá Stjörnunni og hin 18 ára Sóley Edda Ingadóttir frá Val.
Þrátt fyrir ungan aldur hafa þær þegar öðlast góða reynslu í efstu deild hér á landi sem og með yngri landsliðum en þær voru til að mynda báðar í U19-landsliðshópnum í lokakeppni EM í sumar. Báðar eru þær uppaldar hjá Stjörnunni. Fótbolti.net segist hafa heimildir fyrir því að Molde greiði sjö milljónir íslenskra króna fyrir Fanneyju Lísu og ljóst er að Molde-fólk hrósar happi yfir að hafa klófest þær Sóleyju: „Með Sóleyju og Fanneyju fáum við tvo mjög spennandi hæfileikamenn og báðar hafa mikla reynslu úr efstu deild á Íslandi. Við höfum mikla trú á því að þær muni þróast áfram í okkar afreksmiðaða umhverfi og taka ný skref ásamt restinni af liðinu,“ segir Erlend Holmlund, yfirmaður kvennaknattspyrnu hjá Molde Fotballklubb. Þær Fanney Lísa og Sóley Edda eru þó enn ungar að árum og segir Holmlund að tillit verði tekið til þess. „Það er mikilvægt að þær fái tíma til að aðlagast nýju landi, félagi og umhverfi, þar sem við munum leggja okkur fram um að þær geti notað orku sína í að þróast á hverjum einasta degi.“ Hjá Molde er fyrir einn íslenskur leikmaður, A-landsliðskonan Amanda Andradóttir sem er einmitt fædd í Molde þar sem pabbi hennar, Andri Sigþórsson, lauk sínum atvinnumannsferli. Amanda spilar þó ekki meira á leiktíðinni, vegna meiðsla. Molde er í 7. sæti af 12 liðum í norsku úrvalsdeildinni nú þegar 14 umferðum af 22 er lokið.
Besta deild kvenna Norski boltinn Stjarnan Valur Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira