Besta deild karla

Besta deild karla

Leikirnir




    Fréttamynd

    „Við þurfum að læra í þessum heimi“

    „Mér líður bara mjög vel. Þetta var skemmtilegur leikur og tilfinningin var að við hefðum átt að geta gert betur,“sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 3-3 jafntefli við Breiðablik í 19. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Hann vill sjá lið sitt læra að lifa í toppbaráttu þar sem hver leikur skiptir gríðarlega miklu máli.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“

    „Súrt, í hálfleik vorum við 3–1 undir en keyrðum vel á þetta í seinni. Við vorum svolítið fram og til baka en mér fannst við geta stolið þessu í lokin svo þetta er súrt núna,“ sagði Halldór Snær Georgsson, markvörður KR, í viðtali eftir 3-3 jafntefli við Blika í kvöld.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    „Langar bara að verða betri í fót­bolta“

    Ágúst Orri Þorsteinsson skoraði þriðja mark Breiðabliks þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við KR í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Markið kom Blikum 3-1 yfir en slakur síðari hálfleikur kostaði stigin þrjú. Hann var þó sáttur með margt í leik síns liðs.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“

    Keflavík sótti 2-0 sigur gegn Þór á VÍS-vellinum á Akureyri í dag og situr Þór áfram á botni deildarinnar eftir 19 umferðir. Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var langt frá því að vera sáttur við spilamennsku liðsins sem og baráttu og vilja sem honum fannst verulega ábótavant.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    „Ís­land breytti lífi mínu“

    Skotinn David Winnie átti frábæran tíma hér á landi í kringum aldamót sem leikmaður KR. Ísland á sérstakan stað í hjarta hans og hann nýtur sín vel í sumarfríi hér þessi dægrin.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Öll lið lenda í þessu

    Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir eðlilegt að lið gangi í gegnum lægðir, líkt og Víkingar hafa gert að undanförnu. Hann leitar allra leiða til bóta þar á.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar

    KR hefur slegið rúmlega þrjátíu ára gamalt met ÍA yfir flest mörk eins liðs í fyrstu átján leikjum á einu tímabili í efstu deild á Íslandi. KR-ingar skoruðu fimm mörk gegn Frömurum í gær og hafa skorað 64 mörk í fyrstu átján leikjum sínum í Bestu deildinni, eða 3,6 mörk að meðaltali í leik.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“

    Galdur Guðmundsson átti fantagóðan leik fyrir KR í kvöld þegar KR lagði Fram á útivelli í 18. umferð Bestu deildar karla. Hann skoraði fimmta mark leiksins og kom mikið að marki númer 2. Leikurinn endaði 2-5 fyrir KR sem hoppaði yfir Fram í annað sætið.

    Íslenski boltinn