Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Car­n­ey verður við­staddur stefnu­ræðu ESB-for­seta

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur þekkst boð um að vera viðstaddur stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í næsta mánuði. Sambandið og Kanada hafa færst nær hvert öðru í skugga ágreinings við Bandaríkjastjórn.

Erlent
Fréttamynd

Myrti for­eldra sína, ömmu, systur og fjögur börn

Átta meðlimir einnar fjölskyldu voru skotnir til bana þegar þeir komu saman til að borða á sunnudagskvöldið. Fjögur börn eru meðal hinna látnu en fjölskyldan hafði komið saman á kvöldverði í Montana í Bandaríkjunum þegar maðurinn gekk inn á heimili foreldra sinna, sem höfðu beðið hann um að flytja út, og hóf skothríð.

Erlent
Fréttamynd

Kanada svarar tollum Banda­ríkja­stjórnar

Fjármálaráðherra Kanada kynnti í dag hefndartolla Kanada á ýmsar bandarískar vörur sem svar við nýjum tollum Bandaríkjastjórnar. Lagður verður tollur á bilinu 15 til 50 prósent á ýmsar bandarískar vörur og taka þeir gildi á miðnætti 8. september.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Dolly Parton látin

Bandaríska söngkonan Dolly Parton er látin 80 ára gömul. Hún lést í dag á heimili sínu í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum. 

Lífið
Fréttamynd

Maxwell fær ekki dómnum hnekkt

Ghislaine Maxwell hefur ekki tekist að fá tuttugu ára fangelsisdómi sínum hnekkt. Bandarískur alríkisdómari hafnaði kröfu hennar og sagði rök hennar ýmist byggð á getgátum og rangfærslum eða komin of seint fram.

Erlent
Fréttamynd

Móðirin sem Banda­ríkja­menn deila um

Bandarísk móðir hefur viðurkennt að hafa orðið börnum sínum þremur að bana í janúar 2023. Réttarhöldin yfir henni hafa staðið yfir í rúmar fjórar vikur og styttist í að málið verði lagt fyrir kviðdóm. Hann mun skera úr um hvort móðirin hafi verið sakhæf þegar hún banaði börnunum.

Erlent
Fréttamynd

Yfir­maður CIA í Moskvu

Bandarískri herþotu var í morgun lent á Vnukovo-flugvellinum í Moskvu. Um er að ræða Boeing C-17 Globemaster III sem notuð er til þungaflutninga. Talsmaður forseta Rússlands, sagðist ekki hafa neinar upplýsingar um flugvélina í morgun og að ekki stæði til að funda með bandarískum erindrekum. Flugferðin vakti því töluverða athygli og furðu.

Erlent
Fréttamynd

Sögu­lega ó­vin­sæll Trump en stríðið er óvinsælla

Einungis 33 prósent bandarísku þjóðarinnar eru sátt við störf Donalds Trump, forseta, ef marka má nýja könnun Reuters og Ipsos. Það er sama hlutfall og í síðustu könnunun fyrirtækjanna en vinsældir forsetans hafa aldrei farið neðar. Stríð Trumps gegn Íran er þó enn óvinsælla og segjast einungis 31 prósent þjóðarinnar hlynnt því.

Erlent
Fréttamynd

Heita milljónum til að leysa fjölda morða og manns­hvarfa

Forsvarsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hafa heitið 25 þúsund dala (um þrjár milljónir króna) lágmarksverðlaunum fyrir upplýsingar í málum tuga manna og kvenna af frumbyggjaættum sem hafa horfið eða verið myrt. Tæplega 1.500 slík mál voru óleyst í Bandaríkjunum í lok síðasta árs en ofbeldi hefur lengi leikið samfélög fólks af frumbyggjaættum vestanhafs grátt.

Erlent
Fréttamynd

Elkem segir toll­frelsi geta skilað 350 milljónum á ári

Elkem áætlar að núverandi tollakjör í Bandaríkjunum geti bætt afkomu verksmiðjunnar á Grundartanga um 300 til 350 milljónir króna á ári. Íslenskt kísiljárn, sjávarafurðir og eldisafurðir eru nú tollfrjálsar á Bandaríkjamarkaði á meðan vörur frá nokkrum helstu samkeppnisríkjum bera viðbótartolla.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Við þurfum ekki á Kanada að halda“

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Kanada hafa kallað eftir því að Mark Carney, forsætisráðherra, opinberi þau samningsdrög sem lágu fyrir í viðræðunum við Bandaríkin. Kanadamenn neituðu að skrifa undir samninginn og í kjölfarið setti ríkisstjórn Donalds Trump umfangsmikla tolla á vörur frá Kanada en Carney hafði varað við aðgerðum sem þessu í ræðu í Davos fyrr á árinu.

Erlent
Fréttamynd

Leik­konan Bunny Levine er látin

Leikkonan og bókasafnsvörðurinn Bunny Levine er látin, 97 ára að aldri. Hún lést í svefni á heimili sínu í Tarzana í Kaliforníuríki á fimmtudaginn. 

Lífið
Fréttamynd

„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“

Forsætisráðherra Kanada hefur sagt að bylgju bandarískra tolla á landið sé ætlað að „skaða og sundra okkur“, eftir að viðskiptaviðræður fóru út um þúfur á dögunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað tilkynnt nýja íþyngjandi tolla og nú hefur forsætisráðherrann sagst ætla að jafna bandaríska tolla „dollara fyrir dollara“ frá og með 8. september.

Erlent
Fréttamynd

Sakamálið sem skekur Banda­ríkin

Réttarhöld yfir bandarískri konu, sem játað hefur að hafa myrt börnin sín þrjú, hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim. Mikill fjöldi fylgist með réttarhöldum í beinni útsendingu á degi hverjum og hefur málið hrundið af stað umræðu um fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun.

Innlent
Fréttamynd

Stöðug­leiki í vaxtaþróun langra ríkis­bréfa merki um „seiglu“ ís­lenska markaðarins

Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá sumum ríkjum.

Innherji
Fréttamynd

TikTok gert að greiða Banda­ríkjunum sögu­lega upp­hæð

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls.

Erlent
Fréttamynd

Etur kappi við Obama og Reynolds

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Bautista hleypur í skarðið

Leikarinn Dave Bautista hefur verið ráðinn til að leika stríðsguðinn Kratos í sjónvarpsþáttum byggðum á tölvuleiknum God of War eftir að Ryan Hurst, sem átti upphaflega að fara með hlutverkið, slasaðist alvarlega í tökum. Bautista mun þar leika á móti Ólafi Darra Ólafssyni í hlutverki þrumuguðsins Þórs.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri?

Donald Trump hefur heitið því að beita klerkastjórnina í Íran enn harðari efnahagsaðgerðum og þvinga Írani þannig til uppgjafar, þar sem beinn hernaður virðist ekki ætla að virka. Þá segist forsetinn ætla að einangra Íran með því að beita ríki sem eiga í viðskiptum við klerkastjórnina einnig refsiaðgerðum.

Erlent
Fréttamynd

Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum

Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að hætta tilraunum með sérstaka drónahersveit, sem hefur verið staðsett í Evrópu, og reynt að læra af reynslu Úkraínumanna. Hermennirnir eiga að snúa sér aftur að grunngildum sínum sem fótgönguliðar en eiga að miðla reynslu sinni til yfirmanna hersins.

Erlent
Fréttamynd

Barnastjörnurnar sem Hollywood brást

Leikkonan Hayden Panettiere lést á sunnudaginn, aðeins 36 ára gömul, en hún er ein af mörgum barnastjörnum sem sködduðust við að alast upp í Hollywood og báru þess aldrei bætur. Börn sem frá unga aldri eru berskjölduð fyrir gráðugum og stjórnsömum foreldrum, bransafólki sem misnotar stöðu sína, stöðugu áreiti fjölmiðla og auðveldu aðgengi að vímuefnum.

Lífið