Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Arsenal hóf titilvörn sína í ensku úrvalsdeildinni með sannfærandi hætti þegar liðið vann nýliða Coventry City 3-0 í gærkvöld. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Enski boltinn 22.8.2026 10:21
Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Arsenal hóf titilvörn sína í ensku úrvalsdeildinni með sannfærandi hætti í kvöld þegar liðið vann nýliða Coventry City 3-0 á Emirates Stadium. Enski boltinn 21.8.2026 18:30
Konsa orðinn leikmaður Arsenal Enski landsliðsmaðurinn Ezri Konsa er orðinn leikmaður Arsenal. Hann er keyptur til Englandsmeistaranna frá Aston Villa fyrir um 51 milljón punda. Enski boltinn 21.8.2026 09:16
„Við spiluðum frábæran fótbolta“ Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, var kátur eftir 3-0 sigur á Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í dag. Englandsmeistararnir voru komnir yfir strax á fyrstu mínútu og unnu mjög sannfærandi sigur á bikarmeisturunum. Enski boltinn 16. ágúst 2026 16:32
Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Arsenal hóf nýtt tímabil með titli þegar liðið vann Manchester City 3-0 í Samfélagsskjöldinum á Principality Stadium í Cardiff í dag. Enski boltinn 16. ágúst 2026 13:30
The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Leikurinn um Samfélagsskjöldinn fer vanalega fram á Wembley-leikvanginum í London en svo verður ekki raunin í dag. Enski boltinn 16. ágúst 2026 09:03
Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Englandsmeistarar Arsenal hafa áhuga á því að fá enska landsliðsmanninn Jarrel Quansah til liðs við sig frá Bayer Leverkusen. Quansah er opinn fyrir því að ganga í raðir Arsenal. Enski boltinn 14. ágúst 2026 10:24
Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Myles Lewis-Skelly, 19 ára leikmaður Englandsmeistara Arsenal hefur engan áhuga á því að yfirgefa uppeldisfélag sitt nú þegar hann er orðaður við lið á borð við Manchester United og Chelsea. Enski boltinn 13. ágúst 2026 15:01
Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að Englandsmeistararnir séu enn að leita að leikmönnum fyrir titilvörn næsta tímabils. Enski boltinn 13. ágúst 2026 07:31
Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Ensku úrvalsdeildarfélögin Manchester United og Arsenal gerðu bæði 1-1 jafntefli í æfingarleikjum sínum í kvöld. Báðir leikir fóru í vítakeppni og þar höfðu United og Arsenal betur. Enski boltinn 12. ágúst 2026 20:25
Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur tilkynnt um kaup á framherjanum Romelu Lukaku frá Napoli sem gæti rutt brautina fyrir Brasilíumanninn Gabriel Jesus að yfirgefa Arsenal. Enski boltinn 12. ágúst 2026 17:02
Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Ensku liðin áttu misjöfnu gengi að fagna í æfingaleikjum dagsins í fótboltanum. Englandsmeistarar Arsenal töpuðu öðrum leik sínum í röð á undirbúningstímabilinu og Liverpool missti niður tveggja marka forystu yfir í tapaðan leik. Enski boltinn 9. ágúst 2026 15:20
Grípa í taumana eftir banaslys Enska knattspyrnusambandið hefur lagt blátt bann við því að steinsteyptir veggir umkringi velli á Englandi eftir dauðsfall Billy Vigar, fyrrverandi leikmanns í akademíu Arsenal. Enski boltinn 8. ágúst 2026 14:30
Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Brasilíumaðurinn Bruno Guimaraes er orðinn leikmaður Englandsmeistara Arsenal. Hann var keyptur á 75 milljónir punda frá Newcastle United og skrifar undir fjögurra ára samning í Norður-Lundúnum með möguleika á árs framlengingu. Enski boltinn 8. ágúst 2026 11:21
Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, talaði um að leikmenn sínir hefðu verið mjög reiðir eftir 3-1 tap á móti Real Betis í æfingarleik í Dublin á miðvikudagskvöldið. Enski boltinn 7. ágúst 2026 06:30
Samningur í höfn hjá Vinicius Junior og Real Madrid Skriður komst á samningaviðræður Real Madrid og fulltrúa Vinícius Júnior á ný þegar spænska félagið lagði fram nýtt og endurbætt tilboð og nú er sex ára samningur í höfn samkvæmt helstu fótboltaskúbburum heims. Fótbolti 6. ágúst 2026 19:31
Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að það hafi soðið á leikmönnum liðsins eftir tapið fyrir Real Betis, 1-3, í æfingaleik í gær. Enski boltinn 6. ágúst 2026 10:31
Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Englandsmeistarar Arsenal töpuðu 3-1 á móti spænska félaginu Real Betis í æfingarleik í Dublin í kvöld. Enski boltinn 5. ágúst 2026 20:39
Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Manchester City hafði betur í baráttunni við Englandsmeistara Arsenal í sumar en bæði voru að eltast við hinn unga og efnilega knattspyrnumann Jeremy Monga. Enski boltinn 5. ágúst 2026 19:30
Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Arsenal nálgast samkomulag við Newcastle United um kaup á Bruno Guimaraes miðjumanni liðsins. Enski boltinn 4. ágúst 2026 15:07
Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? Vinicius Jr. mun halda áfram í samningaviðræðum við Real Madrid í vikunni en hægst hefur á þeim á síðustu dögum. Áhugi Arsenal er til staðar fyrir brasilíska framherjann ef hann fer frá Real Madrid. Enski boltinn 3. ágúst 2026 23:18
Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Newcastle hefur hafnað fyrsta tilboði Englandsmeistara Arsenal í brasilíska miðjumanninn Bruno Guimaraes en þetta kemur fram á Sky Sports. Enski boltinn 3. ágúst 2026 11:48
Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Arsenal, gaf engin færi á sér er hann var spurður út í áhuga félagsins á Brasilíumanninum Vinícius Júnior hjá Real Madrid. Enski boltinn 2. ágúst 2026 09:32
Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Grikkinn Christos Tzolis skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Arsenal þegar liðið vann Girona í æfingaleik 4-1. Enski boltinn 1. ágúst 2026 23:30