Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 21.4.2026 08:02
Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Einn er í haldi eftir líkamsárás á Akureyri. Annar var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn vera í lífshættu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til vegna málsins. Innlent 21.4.2026 07:48
Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Einn var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu við Gránufélagsgötu á Akureyri í nótt, þar sem sérsveit ríkislögreglustjóra kom að málum. RÚV greinir frá og segir mikinn viðbúnað hafa verið á svæðinu. Innlent 21.4.2026 06:38
Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi. Innlent 9. apríl 2026 09:01
Fólk stillt að mestu á Akureyri Varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri segir kvöldið hafa gengið rólega fyrir sig þrátt fyrir mikinn fjölda fólks í bænum yfir helgina. Lögregla sinnti minniháttar líkamsárás. Innlent 5. apríl 2026 10:14
Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði afskipti af þremur afhendingarstöðum áfengisverslana og lét loka þeim í gær. Óheimilt er samkvæmt áfengislögum að afhenda áfengi á helgidögum. Embættið hefur haft eftirlit með sömu stöðum í dag. Innlent 3. apríl 2026 15:11
„Þetta hlýtur að verða metdagur“ Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður skíðasvæðisins telur líklegt að um metdag sé að ræða. Innlent 3. apríl 2026 14:16
Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fara fram á að starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri skili páskaeggjum sem það fékk að gjöf frá Smáríkinu, sem opnaði í bænum í vikunni. Forstjóri sjúkrahússins segist hingað til hafa tekið við öllum gjöfum og ekki gert upp á milli gefenda. Verkferlar verði þó skoðaðir. Innlent 3. apríl 2026 12:10
Færri strætóferðir um páskana Strætó verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana á höfuðborgarsvæðinu og á sunnudags- og laugardagsáætlun landsbyggðinni. Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina. Innlent 31. mars 2026 08:22
Gerum hlutina almennilega! Aðstöðumál íþróttafélaga skipta sköpum fyrir öflugt íþróttastarf. Þau skipta líka miklu máli fyrir samfélagið í heild. Svo Akureyri sé aðlaðandi kostur fyrir fjölskyldufólk til að setjast að þarf aðstaða fyrir börn og ungmenni að vera í lagi. Þar gegna íþróttamannvirki lykilhlutverki. Skoðun 30. mars 2026 13:00
Foreldrar segja lögreglu gera lítið úr meintu kynferðisbroti á barni sínu á leikskólaaldri Foreldrar gera alvarlegar athugasemdir við opinbera umfjöllun lögreglu um mál er varðar meint kynferðisbrot starfsmanns leikskólans Tröllaborga á Akureyri á barni sínu. Innlent 27. mars 2026 18:28
Snekkjan fékk undanþágu frá hafnbanni Snekkja skattsvikarans og auðjöfursins rússneska Olegs Tinkov, La Datcha, liggur við bryggju á Akureyri þar sem hún tekur olíu og neyðarvistir. Hafnarbann á snekkjunni vegna þvingunaraðgerða gegn Rússum er enn í gildi en undanþága var veitt af öryggisástæðum. Innlent 27. mars 2026 17:42
Meint kynferðisbrotamál rannsakað í tvígang en fellt niður Meint kynferðisofbeldi gegn barni á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri var rannsakað í tvígang en fellt niður í bæði skiptin. Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að enginn rökstuddur grunur sé um brot gegn barninu. Hann á að hafa starfað í sex vikur á leikskólanum eftir að málið kom upp. Innlent 27. mars 2026 10:26
Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Heilbrigðisráðuneytinu bárust sjö umsóknir um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Ráðuneytið auglýsti starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsóknar þann 26. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Innlent 26. mars 2026 16:59
Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp en foreldrar voru ekki látnir vita. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla. Bærinn hefur óskað eftir því að rannsókn verði hafin á ný. Innlent 24. mars 2026 10:21
Skálmöld gæddi sér á hráefni sögulegs „ógeðsdrykkjar“ Skálmaldarmönnunum Snæbirni Ragnarssyni og þó helst Þráni Árna Baldurssyni leiðist ekki að borða mat sem fólki býður oftar en ekki við. Þeir komust því heldur betur í feitt þegar þeim var boðið til alvöru „súrströmming-veislu“ á Akureyri. Þar sporðrenndu þeir glaðir aðalhráefninu í sögulegasta ógeðsdrykk 70 mínútna. Lífið 24. mars 2026 07:32
Öllu innanlandsflugi aflýst Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst vegna veðurs. Innlent 23. mars 2026 15:48
Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Glæsisnekkju rússneska skattsvikarans Oleg Tinkov var meinuð hafnarkoma á Akureyri fyrr í dag á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja. Landhelgisgæslan greinir frá þessu í fréttatilkynningu. Innlent 21. mars 2026 22:09
Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Snekkja í eigu skattsvikara og fyrrverandi milljarðamærings frá Rússlandi sigldi inn Eyjafjörðinn nú í morgun. Ekki liggur fyrir hvort eigandinn sé um borð. Lífið 21. mars 2026 14:16
Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Um þrjátíu lið geta ekki sótt Goðamótið sem fram fer á Akureyri um helgina vegna óveðurs. Víðtækar veðurviðvaranir eru nú í gildi víðast hvar á landinu og verða til morguns og lokanir á vegum á Vesfjörðum og á Norðurlandi, veðurfræðingur segir útlit fyrir vont veður fram á nótt. Innlent 20. mars 2026 12:02
Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun Fjórar Kappahl-verslanir verða opnaðar klukkan 12 á morgun; á Glerártorgi á Akureyri, á Akranesi og Selfossi og í Krossmóa á Suðurnesjum. Stefnt er að því að opna samtals átta Kappahl-verslanir á næstu misserum og að minnsta kosti eina Newbie-verslun. Viðskipti innlent 20. mars 2026 08:49
Hvað veistu um… Akureyri? Akureyri er oft kölluð höfuðstaður Norðurlands og það er auðvelt að skilja hvers vegna. Bærinn stendur við innarlega í Eyjafirði, umkringdur fjöllum og náttúru sem breytist með árstíðunum. Lífið 18. mars 2026 20:00
Loka hæð vegna myglu á sjúkrahúsinu Niðurstöður sýnatöku hafa staðfest vöxt myglusveppa í hluta húsnæðis Sjúkrahússins á Akureyri á Kristnesi. Einni hæð hefur verið lokað. Innlent 18. mars 2026 14:42
„Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Alma Möller heilbrigðisráðherra segir persónulega þætti koma hvergi nærri ákvörðun um skipun næsta forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Hún segist hæf til sjá um málið þó svo að hún hafi lýst sig vanhæfa til að fjalla um uppsögn ferliverksamninga á spítalanum. Alma segir þó að úrvinnsla málsins muni fara eftir því hverjir umsækjendur verða. Innlent 17. mars 2026 08:07
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent